Heima er bezt - 01.11.1995, Page 28
skammt frá sjávarströndinni eða í
Jökulsá. Ef selurinn verður ekki fyrir
i styggð, er hann í eðli sínu forvitinn
og gæflyndur. Og oft sáum við þá
liggja uppi á eyrum utarlega í ánni
eða úti undir ósnum, og þar voru þeir
oft líka furðugæfir. En kæmi að þeim
einhver styggð, voru þeir fljótir að
brölta út í vatnið. Og þá komu þeir
j kannski ekki upp aftur, fyrr en ein-
hvers staðar langt í burtu. Og aldrei
gleymi ég hver hreyfingar þeirra
I voru skrýtnar og skemmtilegar, þegar
þeir flýttu sér út í vatnið. Þeir geta
j ekki gengið, og hreyfingar þeirra eru
því sérstæðar og klunnalegar.
En nú er réttast að ég segi ykkur
| ofurlítið meira frá selunum, líkams-
byggingu hans og lifnaðarháttum.
Hér við land eru aðeins tvær selateg-
undir allt árið, landselur og útselur.
I Heima hjá okkur á Völlum var aðeins
um landsel að ræða, og er svo fyrir
öllu Norður- og Austurlandi. Utselur-
inn er nokkru stærri og hann er ein-
göngu við Suður- og Vesturland.
Vaxtarlag selanna og líffæri eru
eingöngu miðuð við það að hreyfa
sig í vatni og afla sér þar matar. Hárið
j er snöggt og fituborið, svo að það
blotni ekki. Þeir smjúga vatnið mjög
vel og eru frábærlega fimir að synda.
Utlimir þeirra nefnast hreifar, og auð-
vitað hafa þeir sundfit á milli tánna
eins og sundfuglarnir, til þess að eiga
léttar með að synda. Undir húðinni
hafa þeir þykkt fitulag (spik), fyrst og
fremst til þess að skýla sér fyrir
I kulda, en einnig léttir það þá í sjón-
um (vatninu). Selir lifa á ýmsum teg-
undum af fiski sem þeir gnpa með
kjaftinum af mikilli fimi. En lax og
silungur er uppáhaldsfæða þeirra.
Þess vegna er landselurinn svo oft
við árósa, þar sem mikið er um lax
og silung og gerir þar oft mikinn
usla.
Selurinn getur alls ekki andað í
vatni fremur en við, og það er einmitt
þess vegna, að hann andar með lung-
um. Hann þarf alltaf að koma upp á
yfirborðið öðru hverju til að anda, og
hann mundi kafna í vatninu ef hann
gæti það ekki, alveg eins og ósyndur
maður mundi kafna eða drukkna, eins
og það er nefnt, ef hann dettur í djúpt
vatn og enginn er nærri til að bjarga
honum. En selurinn er þannig gerður,
af því að hann er sjávardýr, að hann
getur ótrúlega lengi haldið niðri í sér
andanum, eins og við komumst
stundum að orði um okkur sjálf. En
þegar sá tími er liðinn, og hann getur
eftir atvikum varað margar mínútur,
verður dýrið að koma upp til að anda,
annars er dauðinn vís.
Þó að aðeins tvær selategundir eigi
heima við Island, eru til ýmsar fleiri
hér og þar í heiminum. I Ishafinu,
langt norðan við landið okkar, eru til
dæmis nokkrar tegundir, sem koma
stundum til Islands. Eg nefni hér að-
eins þijár: vöðusel, hringanóra og
blöðrusel. Þetta eru eins konar
flökkuselir, sem synda í stórum hóp-
um, vöðum, um Ishafið eftir miðjan
vetur og fram á vor. Koma þeir þá
gjarna um stund upp að norðurströnd
Islands, meðal annars inn í fjörðinn
okkar, Lónafjörð, og upp að strönd-
inni.
Við strákarnir fengum ævinlega á
hverjum vetri, einhvern tíma á þessu
tímabili þegar veður var stillt og
bjart, að fara út á reka og sjá þessa
eftirminnilegu sýn. Hún er ein af
þeim mörgu minningum mínum, sem
aldrei fýkur yfir né fyrnist.
Þessir flökkuselir voru töluvert
veiddir í Lónafirði, eftir að ég fór að
muna eftir mér, og faðir minn stund-
aði líka þessar veiðar á yngri árum
sínum. Hann sagði okkur oft frá þeim
og þessum selategundum.
Þessi vöðuselaveiði hafði verið
stunduð fyrir öllu Norðurlandi um
langan aldur og verið mikil búbót
fyrir fjölda heimila, jafnvel stundum
heil byggðarlög ef vel veiddist. En
selakjöt og spik er holl og góð fæða,
sem allir fögnuðu að fá, því að þá var
oft minna um matarforðann en nú á
dögum.
Veiðarnar voru einkum stundaðar
með tvennum hætti: I net, sem lögð
voru í góðu veðri utan við ströndina
og látin liggja þar meðan fært var
vegna veðurs, og svo með því að róa
í sel, eins og það var kallað. Þá voru
venjulega fimm menn saman á traust-
um árabáti, fjórir undir árum en einn
selaskytta. Þá skipti auðvitað mestu
máli í þeim ferðum, að skyttan væri
vel æfð og vön og byssan langdræg
og traust.
Eftir því sem ég veit best, hafa
þessar veiðar nú algjörlega lagst nið-
ur af tveimur ástæðum. Sú fyrri og
stærri er sú, að á síðustu áratugum
hafa ýmsar þjóðir, og þá ekki síst
frændur okkar Norðmenn, veitt þess-
384 Heima er bezt
ar selategundir svo gegndarlaust, að
þeir eru nú miklu sjaldséðari hér við
land en fyrr. Hin ástæðan er sú, að
vegna hinna margvíslegu breytinga
sem orðið hafa á þjóðlífsháttum okk-
ar íslendinga á síðari árum, er ekki
ástæða til að stunda þessar áhættu-
sömu veiðar.
En nú ætla ég ekki að draga lengur
að segja ykkur frá því, sem ég hafði
fyrst og fremst í huga í dag, en það
var að segja ykkur ofurlítið nánar frá
landselnum okkar og veiðunum í
Jökulsá.
Þótt furðulegt sé, gekk selur, oft
margir selir, á vorin upp í ána stóru
og vatnsmiklu, Jökulsá í Lónafirði,
sem rennur til sjávar skammt fyrir
vestan bæinn á Völlum. Vafalaust
hefur hann þá verið í ætisleit, því að
silungsgengd hefur alltaf verið þar
mikil, bæði sjóbirtingur og urriði en
aldrei þó lax. Langflestir selirnir fóru
aldrei langt upp í ána, aðeins einn til
tvo kílómetra mest, en stöku selir þó
miklu lengra.
Þegar ég var lítill drengur, voru
selveiðar stundaðar í ánni á vorin eða
snemma sumars, þegar tækifæri gafst
til, og hafði svo verið um langt ára-
bil. Bændumir urðu að gera þetta til
að afla matar handa stórum fjöl-
skyldum, sem þá voru nær undan-
tekningarlaust á hverjum bæ. En á
þeim tíma, og ekki síst fyrr á árum,
var lífsbarátta fólksins í landinu okk-
ar miklu erfiðari en nú, svo að nota
varð hvert gott tækifæri, sem gafst til
að draga björg í bú. Eg vil að þið vit-
ið, að fyrr á tímum, og raunar um
margra alda bil, var alltaf mikil fá-
tækt á mörgum heimilum á Islandi,
og þá fengu áreiðanlega mörg börn
lítið að borða og voru sársvöng tím-
um saman. En hamingjunni sé lof, nú
eru gjörbreyttir tímar á íslandi miðað
við það sem áður var. Nú þarf enginn
að svelta hér lengur. Nú fá allir nóg
að borða.
Hér látum við svo numið staðar að
þessu sinni. En í næsta skipti lýk ég
við að segja ykkur frá selunum á
Völlum og veiðunum í Jökulsá
Hlaðvarpinn framhald afbls 360
Það er ekki ýkja langt síðan, að
menn fóru að geta tekið ljósmyndir
af eldingum. Þegar farið var að
skoða þær, kom ýmislegt merkilegt
í ljós. Eitt sinn þegar tekin var ljós-
mynd úr flugvél af eldingu frá
þannig sjónarhomi, að bæði sást
undir og yfir skýið, sem eldingunni
laust úr, uppgötvuðu menn, að það
laust ekki bara eldingu niður til
jarðar, eins og þá var talið, heldur
laust líka annarri upp í gufuhvolfið.
Þetta þótti mönnum nokkuð
merkilegt og vita náttúrlega ekki al-
veg, hver ástæðan eða tilgangurinn
er. Kenningasmiðir hafa engu að
síður farið af stað, og ein kenningin,
sem litið hefur dagsins ljós, er sú,
að þama sé jörðin sjálfkrafa að
tappa af sér út í geiminn of heitu
lofti og þenslu, sem myndast hefur
innan gufuhvolfsins. Og hvemig má
það vera í formi eldinga? Jú, eitt af
því, sem menn hafa uppgötvað, er
það að eldingum lýstur ekki niður
til jarðar, heldur upp til skýjanna.
Já, undarlegt er það. Ferillinn mun
vera þannig, að frá skýjunum mynd-
' ast einhvers konar eldingargöng,
slöngulaga rafmagnsgöng, sem
lengjast í þrepum, u.þ.b. 50 metra í
einu, niður til jarðar. Við hvert þrep
stansar lengingin augnablik og
greinist í sundur. Eftir um 1/100 úr
sekúndu hefur „slangan“ náð neðsta
stigi. Hús, tré og möstur senda frá
sér, vegna hins miklu spennumunar,
veikan rafstraum upp í loftið og
virka þeir eins og n.k. þreifiangar.
Þegar rafgöngin hitta síðan á slíkan
anga, slær eldingu upp frá jörðinni
og til skýsins. Eins og gefur að
skilja, á sér stað á þessu augnabliki
gífurlegur orkuflutningur. Elding-
arnar, sem myndast fyrir ofan skýin
og munu ná upp í allt að 400 kíló-
metra hæð, em þó ekki alveg sama
eðlis og þær, sem slær niður til jarð-
ar eða upp til skýja, samkvæmt hinni
nýuppgötvuðu staðreynd. Þær eru
greinóttari og mynda blárri leiftur.
En kenningin er sem sagt sú, að
þær slái gat á gufuhvolfið, þar sem
út losni um leið talsverður varmi.
Þessar eldingar séu nokkurs konar
aftöppunarloki, líkt og öryggisvent-
ill á hraðsuðukatli eða gufukatli.
En hvort sem það er rétt ályktað
eða ekki, og þá einnig hvort gróður-
húsaáhrifin margumtöluðu nái
vegna þessa aldrei að myndast al-
mennilega og breyta veðurfari og
öllu því, sem í kjölfarið kæmi, skal
ósagt látið hér. En merkileg er upp-
götvunin engu að síður og sýnir
okkur ágætlega, að jörðin eða nátt-
úran sem slík, lumar á ýmsum
trompspilum til þess að viðhalda
ríkjandi aðstæðum.
Með bestu kveðjum.
Guðjón Baldvinsson.
Eldri HEB-
Óska eftir að kaupa
september-, október-,
nóvember- og
desemberhefti
Heima er bezt,
ársins 1956.
Sigrún Hjálmarsdóttir,
sími 452-4546.
blöð óskast
Heimaerbezt 385