Æskan - 01.03.1966, Blaðsíða 36
SAMVINNUSKÓLINN BIFRÖST
Kæra Æska. Getur l>ú gefið mér upplýsingar um Samvinnuskólann
Bifröst? Hver er skólastjóri ]>ar? Hverjar eru aöalkennslugreinar,
og iivaða menntun ]>arf að hafa til l>ess að komast inn í skólann?
Með fyrirfram þöklí. Magga.
Svar: Inntökupróf fara fram árlega fyrir þá nemendur, sem
ætla sér að setjast í fyrsta bekk skólans, en sá bekkur getur tekið
á móti 34 nýjum nemendum árlega. Gagnfræðapróf er nauðsyn-
legt áður en gengið er undir inntökupróf. Skólinn cr tveggja ára
framhaldsskóii og tekur eðlilega við af miðskóla eða gagnfræða-
skóla. Samvinnuskólinn Bifröst er menntostofnun, sem starfrækt
er af samvinnuhreyfingunni á fslandi, en nýtur ríkisstyrks. Skól-
inn býr nemendur undir almenn viðskiptastörf, skrifstofu- og
verzlunarstörf. Námsefni skólans er þrenns konar: 1) Almenn
fræði. 2) Erlcnd tungumál. 3) Viðskiptagreinar. Auk þess er lögð
áherzla á að veita nemendum tækifæri að rækja sérstök áliuga-
efni í leik og starfi. Námsgreinar skólans eru: islenzka, enska,
þýzka, menningarsaga, samvinnusaga, bókfærsla, hagfræði, verzl-
unarreikningur, verzlunarréttur, vörufræði, húðastörf, auglýsinga-
teiknun, vélritun, skrifstofustörf, fundarstjórn og fundarreglur.
Skólinn er heimavistarskóli. Þannig fer fram einn dagur i skól-
anum: Nemendur eru vaktir kl. 7.30 að morgni og eru þeim ætiað-
ar fimmtán mínútur til að klæða sig og snyrta, en kl. 7.45 skulu
allir vera mættir að matborði. Morgunverður stendur í röskan
hálftíma. Kl. 8.20 hefjast kennslustundir. Kennslustundir vara 40
mínútur og eru 4 til hádegisverðar, kl. 11.40. Kl. 12.35 Jiefst
kennsla að nýju og þá er kennt i 2 stundir til kl. 14.00 e. h. Kl.
14.15 hefst skyldu-útivist til kl. 15.30. Síðdegiskaffi er drukkið
frá kl. lfi.00 til 16.30. Þá er lestrartimi til kl. 20.00. Kvöldverður
er frá 20.00 til 20.30. Þeir nemendur, sem ekki hafa lokið náms-
lestri, geta varið timanum frá kl. 20.30 til 22.30 til þeirra hluta,
en aðrir taka þátt í frístundastörfum, sem skólinn lætur skipu-
leggja. Kl. 22.30 eiga nemendur að vera komnir til herbergja
sinna, en Ijós slökkt í nemendabúðum kl. 23.30. — Samvinnuskól'
inn er skóli hugsjónastefnu, samvinnustefnunnar. BræðralagS'
hugsjónin er undirstaða hennar. Mótun nemenda skólans verður
i anda þeirrar stefnu. Kristindómurinn er grundvöllur vestrænn-
ar menningar og samvinnustefnan hyggir á honum. Skólinn gern'
nemendum sínum Ijóst gildi kristindómsins. Skólinn hvetur neni'
endur sína til hindindissemi. Áfengisneyzla er hrol á reglun1
skólans. Nemendum er bannað með öllu að reykja í lcennslustof'
um, á skólagangi og í matsal.
Skólanum hafa verið fengin til afnota fegurstu Iiúsakynni, alH
liefur verið gert til að húa honum beztu starfsskilyrði. SkólinU
hefur því ekki aðcins möguleika til að veita nemendum slnum
óvenjulega aðstöðu til náms og mennta, heldur jafnframt að bua
þeim samastað, glæsilegt heimili og menningarsetur.
Skólastjóri er Guðmundur Svcinsson.
'M
SX
y<
>x
Jafnaldrar
í öðrum
löndum.
Þeim unglingum, sem hiðja
um bréfaviðskipti við jafnaldra
sina i Danmörku, Noregi og
Færeyjum, skal hent á að skrifa
til þessara blaða: Norslt Barne-
blad, Larvik, Norge; Det Njc
Dansk Familieblad, Rygmester'
vej 2, Köbenhavn NV, Danmark
og Barnahlaðið i Tórshavn, Fðr*
oyum.
Lengst til vinstri í haksýn er bústaður skólastjóra, þá nær kennaraíbúðir tveggja hæða með svölum, og bak við það sér á hús
smíða- og tómstundasal og íþróttasal, síðan fremst á myndinni elzta húsið með matsölum, hátíðasal og setustofum, og loks ')C
yfir það og fram fyrir það lengst til hægri aðalskólahúsið á þrem hæðum með heimavist nemenda og kennslustofum.
132