Æskan - 01.09.1967, Blaðsíða 37
'•o*o*o«o»o*o«o*o*o«o*o*o«o«o#oéo*oéo«o«o$<
HlTTogÞETTA li HEIÐA — iiainlialclsSíi^a í mynílum,
rs
•o
ss
S8
Slátrarinn.
Óli litli var í sveitinni i sum-
ar, og áður en hann færi heim,
sá hann þar f járrekstur. Hann
spurði, hvert ætti að fara með
þessar kindur, og honum var
sagt, oð þær ættu að fara i
sláturhúsið, svo að hann gæti
fengið nýtt kjöt. Þegar Óli litli
kom lieim, sá hann 100 króna
seðil hjá mömmu sinni. Aftan
á seðlinum er mynd af fjár- \
rekstri. Óli varð hrifinn af því !
að sjá myndina og gat nú frætt i
mömmu sína á þvi, að þarna <
væri verið að reka fé i slátur- :
hús. Svo sneri hann seðlinum !
við og spurði:
— Mamma, er þetta þá slátr- j
arinn? j
Fúleggin.
Kaupmaðurinn hafði lengi
keypt egg frá Jóni bónda og
höfðu þau reynzt vel, en svo
brá allt i einu út af þessu og
reyndust allmörg fúlegg meðal
eggjanna. Næst þegar Jón kom
með egg hafði kaupmaðurinn
orð á því við hann, að i síðustu
eggjasendingunni hefðu verið
mörg fúlegg, en slíkt væri
vörusvik. „Já, þetta var ég
alltaf smeykur um,“ segir Jón,
„en ég fékk enga áheyrn hjá
henni Sigriði minni, hún hefur
alltaf i seinni tíð verið að troða
súrmjólk og signum fiski i
hænsnin."
Rauðhærðir.
Margir frægir menn í mann-
kynssögunni hafa verið rauð-
hærðir. Sá frægasti þeirra i
fornöldinni var rómverski liarð-
stjórinn Nero, en sá nafnkunn-
asti á miðöldunum var Friðrik
Barbarossa. Oliver Cromwell,
hinn þekkti stjórnmálamaður
Breta, var rauðhærður og einn-
ig Garibaldi, frelsishetja ítala.
Meðal rauðliærðra skálda má
nefna Shakespeare, Schiller og
Bernard Shaw.
Pabbi sofnaði.
Það er komið kvöld, en Siggi
litli getur alls ekki sofnað.
Hann er alltaf að stríplast.
Þegar mamma þykist ekki geta
komið neinu tauti við hann,
69. KENNARINN stendur með bók í hendi og starir agndofa á kettlingana. Ungfrú Rottenmeier
situr fyrst sem þrumulostin, en þegar einn kettlingurinn byrjar að klifra upp eftir kjólnum
hennar, tekur hún að æpa og skrækja. Hún þorir hvorki að hreyfa legg né lið. Fleiri kettlingar
kynnu að reyna að klifra upp í kjöltu hennar. Tína þjónustustúlka og þjónninn koma nú hlaup-
andi og smala kettlingunum út úr herberginu — 70. NÚ kemur það í Ijós, að Heiða á sök á þessu
öllu, en Heiða sér ekki, að hún hafi unnið neitt til saka. „Aðalheiður,“ segir ungfrú Rottenmeier
ströngum rómi, „nú er bezt þú komir niður í dimma kjallarann. Þegar þú hefur verið þar innan
um rottur, fer mesti gáskinn kannski af þér, svo að þú valdir ekki slíkum óspektum oftar hér í
húsinu.“ — Klara hrópar í skelfingu: „Nei, nei, við skulum bíða með það, þangað til pabbi kemur
heim. Hann kemur bráðum, og hann á að ákveða, hvað gera skuli.“ „Já, ég ætla að tala við herra
Sesemann,“ segir ungfrúin og rigsar burtu.
§• 71. HEIÐU dreymir um kofann hans afa, um fjöllin og fallegu blómin. Hún situr ein síns liðs,
•J því það er hvíldartími hjá Klöru. Á meðan á Heiða að halda kyrru fyrir inni í sínu herbcrgi.
SS Daglega situr hún þar alein og hugsar um allt heima hjá afa. Nú eru hlíðarnar orðnar grænar,
§§ Og blómin anga í sólskininu. Henni stendur allt heima Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum. Heim-
•§ þráin er að yfirbuga hana. — 72. DAG nokkurn ákveður Heiða að halda heim. Dídí frænka hafði
§§ sagt, að hún gæti farið heim, þegar hún vildi. Hún sækir stóru, rauðu hyrnuna sína. í henni hef-
§§ ur hún geymt hveitibrauðin. Hún ætlar að færa ömmu þau. Því næst nær hún í gamla stráhatt-
inn sinn. Hún ætlar að hafa hann á höfðinu, þegar hún kemur aftur heim til hans afa.
S*
'•0«0»0»0»0»0*C*0*0*0*0*0«0*0*0*0»<
biður hún pabba að fara inn í
svefnherbergið til Sigga og
svæfa hann. Pabbi fer inn í
svefnherbergið og svo líður góð
stund. Þá kemur Siggi fram í
stofu til mömmu sinnar og
segir:
— Loksins er pabbi sofnaður.
Skrifið eftir verðlista
yfir leikaramyndir
og bœkur
Frímerkja'
húsið
Lækjargötu 6A.
SS8888SS888SSSS88888888S88S8S8888888SS88888SSSSSSSSSS88888S888S8SSSSS8SSSS8SS8SSSS88S8SSSSÍ
S8SS8888S8SS88SSS8SSSSS8SSSS8SSS<