Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1967, Blaðsíða 16

Æskan - 01.09.1967, Blaðsíða 16
'IIT'inu sinni voru kóngur og drottn- JL/ing í ríki sínu. Þegnarnir lifðu aðallega á hrísgrjónum. Fólk vissi þá ekki, að hrísgrjónakjarninn er ágætis matur, en hélt, að hann væri bein grjónsins. í höll konungs var margt þjónustufólk, þar á meðal stúlka, sem Minja hét og þjónaði hún drottning- unni sérstaklega. Drottningin var skaphörð og £ór illa með stúlkurnar, sem stjönuðu undir henni. Ýmist at- yrti hún þær eða lét berja þær. Oft og einatt lét hún þær ekki fá nóg að borða. Dag nokkurn, þegar Minja var í seinna lagi að færa drottning- unni vatn, æpti hún upp yfir sig: „Ég el þig vel, en þú þjónar mér illa. Héðan í frá skalt þú ekkert fá að borða.“ Minja var neydd til að stjana undir drottningunni, en fékk samt ekkert að borða. Með hverjum deginum sem leið varð hún grennri, og andlit henn- ar varð fölt eins og deyjandi lauf á hausti. Loks kom að því, að hún varð svo hungruð, að hún gat ekki unnið meir. Hún hugsaði með sér: Mér er ekkert gefið að borða, en ég get ekki lognazt svona út af, án þess að gera tilraun til að bjarga lífinu. Ég ætla að reyna að borða „beinin" úr hrxs- grjónunum. Hún tíndi því saman dá- lítið af hrísgrjónum, sem hafði verið fleygt með öðru rusli, sauð þau og át. Þegar hún hafði borðað fyrstu munnfyllina, varð hún ekki lítið hissa. „Hvað er að tarna,“ sagði hún við sjálfa sig, „beinið er miklu betra en kjötið.“ Upjr frá því safnaði hún saman öllum þeirn hrísgrjónum, sem hún gat fundið, faldi þau á afvikn- um stað og á hvei jum degi sauð hún dálítið og át. Dagarnir liðu, en Minja dó ekki úr hungri, þvert á móti varð hún hraustlegri og fallegri með hverj- um deginum sem leið. Andlit hennar fékk yndislegan roða og húð hennar varð ferskleg sem nýfallin morgun- dögg. Hitt þjónustufólkið skildi ekk- ert í, hvernig á þessari breytingu á útliti hennar stóð. Bros hennar var svo yndislegt, að karlþjónamir dróg- ust að henni eins og býflugur að hun- angsköku. Hver á fætur öðrum lædd- ust þeir á fund hennar og spurðu: „Minja, hvernig stendur á því, að þú verður svona falleg, þótt þú fáir ekk- ert að borða? Jafnvel draumadísirnar eru ekki eins fagrar og þú. Vertu nú góð og segðu okkur, hvað þessu veld- ur og hvert er leyndarmál þitt.“ Minja sagði þeim þá, að hún væri farin að boiða „hrísgijónabeinin". „En um- fram allt, segið engum lifandi manni frá þessu og allra sízt drottningunni." Eftir það heimsótti þjónustufólkið Minju og borðaði hjá henni eins og það gat í sig troðið af „hrísgrjóna- beinum". Þegar drottningin sá, hve Minja var orðin fögui', fylltist hún öfund- sýki. Henni datt jafnvel í hug, að hans hátign konunginum kynni að fara að lítast betur á hana en sig, hann kynni ef til vill að skilja við sig og gera Minju að drottningu sinni. Þess vegna hataði drottningin Minju og lét kalla hana fyrir sig. Hún var þó svo slóttug, að hún lét ekki á hatri sínu bera og talaði mjög vin- gjarnlega við Minju: „Elsku litla Minja mín,“ sagði hún, „mikið ert þú orðin falleg, segðu mér nú, hvern- ig þú ferð að því að fegra þig svona. Ef þú gerir það, skal ég gefa þér hvað sem þig langar til að eignast. Gerðu þetta, því annars er mér lífið óbæri- legt. Ég veit, hvað þú ert framúrskar- andi hjartagóð, og að þú munt ekki geta séð mig þjást svona afskaplega mikið.“ Drottningin hélt, að þetta skjall myndi duga til þess, að Minja segði henni leyndarmál sitt og þannig gæti hún líka orðið fögur. En hin fyrirlit- lega framkoma drottningarinnar reitti Minju til reiði. Þess vegna svaraði Minja henni ekki einu orði, en starði á hana með djúpri fyrirlitningu. Þegar drottningin fékk ekki orð upp úr henni, varð hún í mjög vondu skapi, það sem eftir var dagsins, og um kvöldið bylti hún sér í rúminu og gat ekki sofnað fyrir gremju. Drottningin veitti því athygli, að þjónustuliðinu þótti orðið sérstaklega vænt um Minju og að Minju þótti engu síður vænt um það. Hún ákvað því að notfæra sér þetta til að koma vilja sínum fram. Kallaði hún þá Minju fyrir sig og sagði ógnandi: „E£ þú ekki segir mér leyndarmál þitt, ótugtin þín, skal ég biðja konunginn um að láta taka allt þjónustufólk hirðarinnar af lífi.“ Minja flýtti sér til herbergis síns, og þar setti að henni ofsalegan grát. Þegar þjónustufólkið sá hana skömmu síðar útgrátna, spurði það hana, hvað hryggði hana svo og hvort drottning- aiótugtin hefði nú barið hana enn einu sinni. En Minja svaraði því ekki, en grét þeim mun sárar. Vinir henn- ar tóku þá að gráta með henni, en upp á það gat hún ekki horft og sagði þeim eins og satt var. Drottningin Hrísgrjón. Kínversk þjóðsaga 324

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.