Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 21

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 21
Xl' GLEÐILEGT NÝÁR! HJARTANS ÞAKKIR FYRIR LIDNA ARIÐ! inhvern tíma heyrði ég sagt: Þegar einar dyr lokast, opnast aðrar. Það er gott að treysta því. Gott að láta bjartsýnina ráða. — Nú sé ég fyrir mér tvennar dyr. Á annarri hurðinni stendur 1969. — Þær dyr eru nú alveg lokaðar, og opnast aldrei aftur. — Ég veit hvað er innan þeirra dyra, sem ég sé. Og þið vitið líka, hvað býr að baki þeirrar hurðar, sem þið sjáið standa á 1969. Þegar við hugsum um 1969, vitum við öll, að það er svo margt, sem við hefðum getað látið fara betur. Of seint er þó að hugsa um það. Þær dyr opnast aldrei framar, og þar verður engu þreytt, hversu fegin, sem við vildum. En svo er það hin hurðin. Á henni stendur 1970, og er hún rétt að byrja að Ijúkast upp. Þar bíða okkar ný tækifæri. Þau íækifæri skulum við nota vel, svo að við getum glöð og ánægð horft á þær dyr lokast um næstu áramót, fullviss um, að þar sé svo að segja allt, eins og það átti að vera. Já, nú er nýtt ár að byrja, og ekki aðeins nýtt ár, heldur einnig nýr tugur. Það finnst manni alltaf heldur merkilegra. beim, sem hafa lifað aldamót, finnst það stórkostlegt. — Og Þeim, sem eiga eftir að lifa næstu aldamót, — lifa það að sjá árið 2000 heilsa, mun einnig finnast svo. — En nú er ég líklega farin að hugsa nokkuð langt fram [ tímann! Þó að áætlanir séu þegar miklar í sambandi við 21. öldina og spádómar um, að hitt og þetta verði svona og svona, þá vitum við ekkert með vissu. Mennirnir reyna að ráða gátu lífs og dauða, reyna að stjórna veðri og vindum, — og mennirnir geta margt. — En æðra og sterkara vald er samt til; afl Guðs. — Guð getur allt. . . Þess vegna biðjum við hann að gefa okkur gott ár, Qleðilegt og gæfuríkt. Við biðjum hann að varðveita landið okk- ar. og ekki aðeins það, heldur allan hnöttinn okkar. Ef Guð gleymist alveg, er hnötturinn okkar í hættu. Hugsið ykkur bílstjóra, sem horfði einungis á mælaborðið, meðan hann ®ki, en ekkert fram fyrir sig. Hann myndi fljótlega keyra sjálfan Sl0 og aðra í klessu, Þannig gæti farið fyrir mannkyninu, ef tölvur f®kju algerlega við stjórninni. Oft finnst mér ég sjá óánægju- og fýlusvip á börnum, sem hafa allt það bezta, sem hugsast getur. Það er eins og þau i^unni ekki að brosa. Þau geta kannski hlegið, en þá er það oft hlátur, sem minnir á taugaveiklun, fremur en kæti eða gleði. Kannski er þetta vegna þess, að þau þekkja ekki Guð, bara tölvur. Við verðum öll að vera á verði. — Reyna að vera ekki gervi- fblk. Reyna að brosa — ekki bara með munninum — heldur emnig með augunum. — Þá vitum við hvað hamingja er... Nútíma sálfræðingar iýsa því yfir, að unga fólkið þurfi að bskra til að fá útrás! Ég spyr: Eykur það ekki fremur þá spennu, sem stuðlar að rótleysj og ringulreið? — Veikir það ekki fremur viðkvæmar iaugar? Mér finnst það eins og bergmál vonleysis og glundroða. Er ekki eitthvað, sem skortir í uppeldi þess barns, eða kannski væri réttara að segja þess þjóðfélags, sem þarf að öskra eins og viliidýr? — Eða, erum við á svo mikilli niðurleið, að ekki þekkist fegurri fögnuður? — Hvernig var með hrun Rómaveldis? En eins og ég sagði hér í upphafi, er bezt að láta bjarisýnina ráða. Kannski er ekkert að óttast. . . Kannski getum við tekið undir í laginu úr leikritinu „Ferðinni til Limbó", sem ég sendi ykkur hér, og sungið eins hreystilega og krakkarnir á nýju plöt- unni okkar Guðrúnar, „Hver myndi óttast. .. Ekki ég, ekki ég, ekki ég!“ Og við skulum vona, að á þessu nýbyrjaða ári þurfum við ekkerl að óttast. Heldur finna lífsgleði og hamingju. Svo heilsum við nýja árinu og bjóðum það velkomið með því að syngja og spila á gítarinn okkar barnasálminn „Ó, Jesú bróðir bezti" (bls. 24). Kærar kveðjur! INGIBJÖRG. 'o2o.£2!í0*°«0*0«0»0»0»0*0*0*0*0#0*0*0#0«0*0»0»0*0*0»0»0«0«0*0*0*0»0*0*0»0*0*0*0»0*0»c*0*0»0i '-•^•o»o»o*o*o*o*o*o»o*o*o»o*o*o«o*o»o*o#o»o*o»o*c»o»o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*o*g#o*o«o<»i o*o*o*o*o*o*o*o*o*oi 0*0*0«0*0*0*0*0*0*0*0*0*0| 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.