Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 34
Sigursælt knattspyrnulið.
GREIN REYNIS KARLSSONAR
neina kappleiki á milli þeirra sökuin
aldursmunar meðlimanna. I>að er fyrst
árið 1911, að Fram og KR kepptu, en Jiað
var á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar for-
seta. Ári síðar liófst keppni um nafnbót-
ina Bezta knattspyrnufélag fslands, og
bar KR ]>á sigur úr býtum. Ressa nafnbót
hefur KR unnið oftast frá upphafi, en
næst koma Fram og Vaiur.
Iðkun knattspyrnu hefur aukizt ár frá
ári og hcfur knattspyrnumönnum verið
mikil hvatning í síauknum viðskiptum
við erlend kapplið. Fyrsta erlenda knatt-
spyrnuliðið, sem heimsótti okkur, var Aka-
demisk Roldklub frá Kaupmannahöfn ár-
ið 1 !> 19, en fyrsti landsleikurinn fór fram
1946 og ]>á við Dani. Utan héldu knatt-
spyrnumenn okkar fyrst 1930 og ]>á til
Færeyja.
Aðstaða öll til knattspyrnuiðkunar hef-
ur mjög batnað um land allt síðustu ára-
tugi, og hafa mörg bæjarfélög auk lteykja-
víkur átt góðum kappliðum á að skipa
1>Ó hæst hafi ]>ar borið Akurnesinga árin
1950—1960. Freistandi væri að nefna hér
einstaka leikmenn, sem borið hafa af
öðrum á ýmsum tímum, en vonandi móðg-
ast enginn, ]>ó að tveir knattspyrnumenn
séu settir sér á bekk, en ]>að eru ]>eir Al-
bert Guðmundsson, sem gat sér frægð
í knattspyrnu víða um veröid og kom
siðan heim og er nú formaður Knatt-
spyrnusambands íslands, og Rikliarðuv
Jónsson, sem átti mestan þátt í sigur-
göngu Akurnesinga og oft góðri frammi-
stöðu landsliðsins. Ressum tveimur mönn-
um og fjöhnörgum öðrum tápmiklum og
áhugasömum eigum við ]>að að ]>akka, að
knattspyrnunni hefur verið svo vel tekið
hér á landi, að knattspyrnumenn liorfa
nú björtum og eftirvæntingarfullum aug-
um til framtíðarinnar.
Mynd þessi sýnir spennandi augnablik í knattspyrnukappleik, sem fram fór miili Dana og Finna.
Nú eigiS þið að spreyta ykkur á að sjá í hvaða hring boltinn er á þessu augnabliki í leiknum. Svar
er í næsta blaði.
34