Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 42

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 42
ÍSLENZKA flugsagan Ljósm.: Ólafur Árnason. WACO YKS-7 TF-ÖRN Þessi flugvél, sem var eign Flugfélags Akureyrar (síðar Flug- félags íslands hf.), kom til landsins í aprílmánuði 1938. Hún var keypt ný af Waco-verksmiðjunum í Bandaríkjunum (reynsluflogið þar 6. des. 1937). Hún fékk einkennisstafina TF-ÖRN og var venjulega kölluð Örninn. Smíði hennar lauk 1. desember 1937 hjá The Waco Aircraft Company, Troy, Ohio. Raðnúmer: 4683. Hér var hún sett saman af vélvirkjunum Gunnari Jónassyni og Birni Ólsen ásamt Agnari Kofoed-Hansen, en hann reynsluflaug flugvélinni hér 28. april 1938. Örninn flaug frá Reykjavík til Akureyrar (flugm. Agnar Kofoed- Hansen) 2. maí (flugtími samtals 2:20), og frá Akureyri var farið hringflug þennan dag. 3. maí var ílogið frá Akureyri til Siglufjarð- ar og Raufarhafnar. 4. maí var svo fyrsta áætlunarflugið farið frá Akureyri til Reykjavíkur (3:00) og til baka til Akureyrar (2:05). Örninn var mikið notaður til alls konar flugferða, svo sem far- þega- og þóstflugs, sjúkraflugs, síldarleitar, ískönnunar, land- helgisgæzlu (23. 2. ’39) og svo til hringflugs. 10. júní 1939 tók Örn Ó. Johnson við Erninum sem flugmaður, en auk hans og Agnars flugu Erninum Sigurður Jónsson (frá 26. 10. 40) og Björn Eiríksson (2. 41). 3. febrúar 1940 vildi það til, að sviptivindur hvolfdi flugvélinni, er hún var að búa sig undir flugtak á Skerjafirði. Farþegunum tveimur og flugmanni tókst að komast út úr flugvélinni. Báðir hægri vængirnir brotnuðu og efri vinstri vængur, svo og bakið á skrokknum, hliðarstýri og uggi, og allar rúður brotnuðu. Brandur Tómasson gerði við hreyfilinn, en aðrar viðgerðir allar önnuðust þeir Gunnar Jónasson og Björn Olsen. Þá voru hjól sett undir í stað flotholta (sem sett voru á TF-SGL), og reynsluflug var farið 9. júlí 1940. 20. janúar 1941 var flugvélin á leið til Egilsstaða, en er austur kom, var ófært að lenda þar. Yfir Reyðarfirði var flogið lágt til að athuga lendingarstað, en þá lenti flugvélin í sterku niður- streymi og settist á tún (í Fagradal upp af Reyðarfirði) og lenti á girðingu. Vinstri neðri vængur brotnaði og hjólabúnaður lask- aðist. Flugvélin var flutt til Reykjavíkur, þar sem Gunnar Jónas- son og Björn Olsen gerðu við hana. Flaug hún aftur 18. febrúar 1941. 29. apríl 1941 var flugvélin í flugtaki í Vatnsmýrinni, er hjól hennar rákust í braggaþak, og steyþtist hún fram yfir sig á hvolf og stórskemmdist. Flugmaðurinn og einn farþegi sluppu ómeiddir. Þegar þetta gerðist, hafði flugvélinni verið flogið í rúma 1316 tíma. Eftir þetta óhapp endurbyggðu þeir Gunnar Jónasson og Björn Olsen flugvélina. Var því lokið í apríl 1942, og þá fékk flugvélin nýtt nafn, Smyrill. 14. apríl 1942 steyptist flugvélin til jarðar eftir misheppnað flugtak af Reykjavíkurflugvelli. [ flugvélinni voru, auk flugmanns, þrir farþegar. Allir slösuðust mikið og létust tveir farþeganna. Flugvélin var gjörónýt. Ljósm.: N. N. WACO Y.K.S.-7: Hreyflar: Einn 225 ha. Jacobs L4-M. Vænghaf: 10,13 m. Lengd: 7,70 m. Hæð: 1,67 m. Vængflötur: 22,67 m^. Fsrþegafjöldi: 4. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 880 kg. Hámarksflugtaks- þyngd: 1.243 kg. Arðfarmur: 347 kg. Farflughraði: 225 km/t (185 á bátum). Hámarkshraði: 270 km/t. Flugdrægi: 830 km. Flughæð: 3.800 m. KLEMM KL 25 TF-SUX Á vegum Flugmálafélags íslands kom hingað þýzkur flugleið- angur sumarið 1938. Dvaldist hann hér um tíma, og kenndu þá þýzkir svifílugkennarar íslenzkum nemendum svifflug á Sand- skeiðinu. Þeir höfðu meðferðis svifflugur og eina vélflugu af gerðinni Klemm (framleiðslunr. 847), sem var tveggjasæta kennslu- flugvél. Þegar þýzku flugmennirnir fóru héðan, keyptu Flugmálafélagið og ísíenzka ríkið í sameiningu þessa vélflugu. Hlaut hún ein- kennisbókstafina TF-SUX (áður D-ESUX). Þessi flugvél tók þátt í fyrstu flugsýningu á íslandi, sem haldin var á Sandskeiðinu, áður en þýzki leiðangurinn hvarf úr landi. 13. seþt. 1938 lagði TF-SUX uþp í hringferð um ísland til að kanna lendingarstaði. Flugmaður var Agnar Kofoed-Hansen. I janúar 1939 flaug TF-SUX sjúkraflug til Ólafsfjarðar, þar eð sjófiugvél varð ekki við komið. 20. feb. 1939 flaug Örn Ó. Johnson 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.