Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 44

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 44
B Dimmalimm og Pétur prins. arnaleikrit Þjóðleikhússins verður að þessu sinni „Sagan af Dimmalimm kóngsdóttur" eftir Helgu Egilsson. En eins og nafnið bendir til, þá er leik- urinn byggður á hinu þekkta ævintýri Muggs. Ævintýrið samdi hann og teiknaði myndir með fyrir litla frænku sína, sem þá var aðeins þriggja ára, en þessi frænka Muggs er einmitt höfundurinn að barnaleiknum, sem Þjóðleikhúsið frumsýnir á næstunni. Síðan Muggur samdi þetta undur- fagra ævintýri um Dimmalimm, er liðin nær hálf öld, og all- an þann tíma hefur „Sagan um Dimmalimm konungsdóttur" verið íslenzkum börnum hugleikið lestrarefni. Atli Heimir Sveinsson hefur samið tónlist við leikinn og munu nemendur úr Listdansskóla Þjóðleikhússins dansa með í sýningunni. Leikstjóri er Gísli Alfreðsson, en aðal- hlutverkin tvö, Dimmalimm og Pétur prins, eru leikin af börnum, þeim Júlíönu Kjartansdóttur og Ólafi Flosasyni. Með önnur hlutverk fara leikararnir Gunnar Eyjólfsson, Bryndís Schram, Bessi Bjarnason, Árni Tryggvason, Klem- enz Jónsson, Flosi Ólafsson, Brynja Benediktsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Anna Herskin, Jón Júlíusson og fleiri. Leik- myndir eru gerðar af Birgi Engilberts og er reynt í þeim að ná ævintýrablænum, sem Muggur náði svo glæsilega i teikningum sínum í sögunni um Dimmalimm. Þess gerist vart þörf að rekja söguþráðinn í leiknum um Dimmalimm konungsdóttur, því öll íslenzk börn kannast við þetta ævintýri. En rétt er samt að geta þess að höfund- inum tekst mjög vel að fylgja því í öllum aðalatriðum. Að sjálfsögðu koma fyrir nokkrar nýjar persónur í leiknum, sem ekki eru í ævintýrinu. Fullyrða má að bæði gamlir og ungir munu hafa gaman af að endurnýja gömul kynni við Dimmalimm konungsdóttur og félaga hennar á sviði Þjóð- leikhússins. DIMMALIMM í Þjóðleikhúsinu f l WACO ZKS: Hreyflar: Einn 275 ha. Jacobs. L-5. Vænghaf: 10,13 Lengd: 7,70 m. Hæð: 1,67 m. Vængflötur: 22,7 m^. Farþegafjöldi: 4. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 1.010 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 1.472 kg. Arðfarmur: 460 kg. Farflughraði: 225 km/t. Hámarkshraði: 270 km/t. Flugdrægi: 830 km. Hámarksflughæð: 3.800 m. ÖGNIN TF-OGN Þessi flugvél var fyrst sýnd á flugvélasýningu í K.R.-húsinu dagana 12.—16. júní 1932, en þá var hún mótorlaus. Smíði flugvélarinnar, sem var öll úr viði, hófst snemma árs 1932. Þeir, sem hana smíðuðu, voru Björn Olsen og Gunnar Jónasson, og höfðu þeir sjálfir teiknað flugvélina. Þeim til að- stoðar voru Björn Eiríksson og Sigurður Jónsson. Erling Smith keypti mótorinn í Ögnina hjá Wideröe-flugfélag- inu í Noregi. Ögnin flaug fyrst 23. nóvember 1940. Flugmaður var Örn Ó. Johnson, og völlurinn var I Vatnsmýrinni. Flugvélinni var flogið 4 sinnum, síðast 7. desember 1940, en Bretar höfðu lagt blátt bann við flugi hennar. Bergur G. Glslason hafði getað fengið leyti til reynsluflugs, en eftir það vildu Bretar ekki að hún væri hér á flugi. Þetta er eina vélflugan, sem smíðuð hefur verið á Islandi. Leifar af henni eru enn til. (Á myndinni standa þeir Gunnar Jónasson og Björn Olsen við vélina í Vatnsmýrinni). ÖGNIN — Einkennisbókstafir: TF-OGN, Hreyflar: Einn 90 ha. Gipsy I. Vænghaf: 7,25 m. Lengd: 6,00 m. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 400 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 700 kg. Farflughraði: 125 km/t. 1. flug: 23. nóvember 1940. Ljósm.: N. N. MYNDAVÍXL Þau mistök urðu hjá prentmyndagerðarmönnum í síðasta blaði, að tvær myndir af Junkers-flugvélum voru settar á skakk- an stað. Myndin af lsland-1 átti að fylgja textanum um hana og myndin af fsland-2 með textanum um jsland-2, en ekki öfugt. Nöfn ljósmyndara voru hins vegar á réttum stað miðað við texta. Þá var sú prentvilla, að í textanum um Avro 504K átti að standa 25. júní (þegar Frank byrjar að fljúga), en ekki 25. júlí. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.