Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 35

Æskan - 01.01.1970, Blaðsíða 35
 John Lennon hefur stofnaS lítið fyrirtæki sem nefnist Friður. Á stefnuskrá þess er allt það sem getur leitt 'til friðar á jörðu, hvort sem það er i hernaði eða annað. Þær leiðir, sem Lennon og Yoko hafa valið til áróðurs friðar, eru ærið einkenni- legar og mikið umdeildar. Lennon lætur það ekki mikið á sig fá þótt fólk sé ósátt aðferðum þeim, er hann notar við friðarboðskaþ sinn, en segir að það sé einungis betra, því að þá sé meira talað um það. Fyrsta verk þeirra hjúa Johns og Yokos var að leggjast í rúmið í eina viku og vildu Friðarframleiðsla Johns Lennons Plastic Ono Band, sem spilaði á rokkhátið- inni, talið frá vinstri: Klaus Voorman, Alan White, Yoko Ono, John og Eric Clapton. John Lennon og Yoko Ono á bak við mynd af plastkössum og segulbandstæki, með tilheyrandi fylgidóti. þau með þvi mótmæla öllu ofbeldi sem til er í heiminum. John sagði við það tæki- færi að hann hefði gefið mikið af pen- ingum til góðgerðastofnana, en það hefði minnst að segja, því það lengdi aðeins gálgafrest þeirra er hans biðu. „Það þarf að stoppa byssurnar," sagði hann. Næsta verk þeirra var að gefa út plötu með boðskap sinum. i Hotel La Reine Elizabeth, Montreal, Kanada, 2. júní 1969 var í herbergi nr. 1742 samankominn hóp- ur af friðelskandi fólki. Þar á meðal voru dr. Timothy Leary sérfræðingur í LSD, Tom Smothers, annar Smothersbræðra, blaðafulltrúi Bítlanna, Dered Taylor, og að minnsta kosti 36 aðrir friðarsinnar. Þau sungu öll og klöppuðu undir [ laginu „Give Peace a Chance“, sem allir nú þekkja. Næsta skref Johns og Ono var að fó nokkra víðfræga karla í lið með sér eins og Eric Clapton, sem er í hljómsveitinni Blind Faith, Klaus Voorman, sem var söngvari hjá Manfred Mann, og Alan White, sem áður var með Alan Price. Þetta eru eins og sjá má ekki neinir karlar af lakara taginu. Verk þeirra var að fljúga til Toronto í Kanada og spila þar undir nafninu „Plastic Ono Band“ á rokk stór- hátíð, sem þar var haldin. Meðal þeirra er þar komu fram voru rokk framámenn eins og Little Richard, Chuck Berry, Gene Vincent, Bo Diddley og Doors. Nýlega gaf John-Yoko út nýja plötu í nafni „Plastic Ono Bands“ og heita lögin „Cold Turkey" og „Don’t worry Kyoko (Mummy's only looking for a hand in the snow)“. Eins og sjá má á myndum af John Lennon undanfarið þá klæðist hann að mestu í hvítt, en það merkir frið. Lennon og Ono segja, að þetta allt sé aðeins byrjunin, — og með því að nota orðið friður, friður, friður aftur og aftur, verði að lokum hægt að gera alla að frið- elskandi mönnum, sem vilji frið alls staðar. John Lennon. 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.