Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1970, Síða 43

Æskan - 01.01.1970, Síða 43
Arngrímur Sigurðsson Tcl^nílcnr flnCrVf'líir og Skúli J. Sigurðsson skrifa um luivll//lvcll llLI^VCýlcll Ljósm.: Ólafur Árnason. Klemminum fyrst, en hann var þá nýkominn heim frá námi. Hann tók síðan við að fljúga flugvélinni í stað Agnars og flaug í marz, april og maí, einkum til að kanna lendingarstaði á Suðausturlandi, þvi að þar þóttu skilyrði verst fyrir sjóflugvélar. Voru flug þessi farin á vegum Flugmálafélagsins. Lent var á ýmsum stöðum, t. d. Stjórnarsandi, Fosssandi og svo Egilsstöðum. Flogið var með póst og stundum fólk. Með þessari flugvél var haldið uppi fyrsta áætlunarflugi, sem svo mætti kalla, með landflugvél. Var það á vegum Flugmála- félagsins. Flogið var á milli Reykjavikur og Hornafjarðar, en lent var á mörgum fleiri stöðum, t. d. Vik, Kálfafellsstað, Kirkjubæjar- klaustri, Fagurhólsmýri, Hellu og Skógasandi. Flugmaður i þess- um ferðum var Björn Eiríksson, og fór hann fyrstu ferðina 6. júní 1939. Ferðin tók um 3 tima. Að jafnaði var flogið einu sinni í viku með póst, en einnig farþega og sjúklinga. Síðari hluta septembermánaðar flaug Örn Ó. Johnson Klemm- inum við síldarleit. Þar sem þetta var landflugvél, þótti nauð- synlegt að hafa björgunarbát, og var það ein vindsæng ásamt pumpu. Síðasta póstflugið til Hornafjarðar fór Björn Eiriksson 16. febr. 1940, en 4. febrúar flaug Agnar síðast Klemminum. Klemminn var mikið notaður til alls konar flugs. Sigurður Jóns- son flaug honum mikið og lenti t, d. við Grænalón (með Pálma Hannesson) og við Vatnajökul norðanverðan (með þýzkan vís- indamann). Reyndist flugvélin jafnan hið bezta. Þess skal að lokum getið, að Klemminn var fyrsta landflug- vélin, sem lenti í Vestmannaeyjum (Agnar og Bergur G. Gíslason). Klemminn flaug síðast um miðjan febrúar 1940. Þá vantaði í hana nýjan mótor. Sigurður Jónsson pantaði hann, og var mótor- inn sendur af stað til íslands með Gullfossi, sem komst þó aldrei lengra en til Kaupmannahafnar. Þar var hann öll striðsárin og flugvélin áfram mótorlaus í Reykjavík. Árið 1955 kom loks nýr mótor, en flugvélin var þá orðin óflughæf að öðru leyti. Hún er enn geymd og kann að verða gerð upp. KLEMM KL 25E: Hreyflar: Einn 70/80 Hirth HM 60R. Vænghaf: 13,00 m. Lengd: 7,78 m. Hæð: 2,70 m. Vængflötur: 20,7 m^. Far- þegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 443 kg. Hámarksflugtaks- þyngd: 650 kg. Arðfarmur: 207 kg. Farflughraði: 140 km/t. Há- markshraði: 160 km/t. Flugdrægi: 650 km. Flughæð: 4.800 m. Aðrar athugasemdir: Framleidd af Leichtflugzeugbau Klemm GmbH, Böblingen, Þýzk.alandi. WACO Z.K.S. TF-SGL Þessa flugvél, TF-SGL, keypti Flugfélag Islands hf. nýja. Hér flaug hún undir nafninu Haförninn. Smíði hennar lauk 17. apríl 1940 (reynsluflogið 26. apríl) hjá The Waco Aircraft Company, Troy, Ohio. Raðnúmer: 5237. Hér á íslandi var hún reynd 6. júlí 1940. Flugmaður var Örn Ó. Johnson. Daginn eftir var flogið frá Reykjavík til Raufarhafn- ar (3:05). Haförninn var mikið notaður til farþega-, póst- og sjúkra- flugs; einnig til síldarleitar. Gekk rekstur hans vel, og 12. ágúst 1943 hafði hann flogið i 1831 tíma. Auk Arnar flugu honum Björn Eiríksson (frá 18. 7. 42) og Sigurður Jónsson. 3. desember 1943 stórlaskaðist Haförninn í flugtaki á Horna- fjarðarósi, er hann lenti á sandrifi, sem rétt flaut yfir. í flugvél- inni voru, auk flugmannsins, tveir farþegar og sjúklingur i sjúkra- körfu, en engan mann sakaði. Flugvélin var talin ónýt og flaug ekki eftir það. Sem dæmi um annir Hafarnarins má geta þess, að 22. júni 1943 fór Björn Eiriksson 6 ferðir fram og til baka milli Hafnar, Egilsstaða, Búðareyrar og Breiðdalsvíkur með 3 farþega í hverri ferð. Ljósm.: Jón N. Pálsson. Ljósm.: Edvard Sigurgeirsson. 43

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.