Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1970, Page 48

Æskan - 01.01.1970, Page 48
átt uppi í ijalli einu í Skot- landi bjó eitt sinn fátæk /> ekkja með litlum dreng sín- um. Konunni gekk mjög erfiðlega að sjá fyrir sér og drengnum. Nú þegar vetur fór í hönd, ákvað ekkj- an að fara til ættingja sinna og leita hjálpar þeirra. Hún lagði því af stað eins og leið lá með drenginn í fanginu. Hún vafði hann í föt og sjöl, svo að hon- um yrði ekki kalt. Hún var ekki komin langt frá heimili sínu, þegar bylur skall á, og hún vissi varla, livað til bragðs skyldi taka. Hún fór úr sinni eigin kápu og vafði utan um drenginn. Síðan lagði hún hann undir klett í skjól fyrir vindinum. Svo yfirgaf hún drenginn og fór að leita hjálpar. Þegar hún var komin skamman spöl frá klettinum, reið yfir svo snörp vindhviða, að hún svipti konunni til jarðar. Næsta morgun fannst konan dáin á veginum. Hjálparsveitir komu fljótt til að leita að drengnum. Það gekk vel að finna drenginn grátandi undir klett- inum. Hann var vel frískur og veðrið hafði ekki orðið honum að meini. Drengurinn óx upp og var kallað- ur í herinn, þegar hann hafði aldur til. Hann særðist og var tekinn til fanga. Síðar, þegar hann var laus úr her- þjónustu, lerðaðist hann til margra landa, en hann kom aldrei í kirkju. Eitt sinn gekk hann inn í kirkju til að hlýja sér, en ekki til að lilusta á prestinn. Þetta var í Glasgow. Presturinn, sem var roskinn mað- ur, var í stólnum og talaði um kær- leika Guðs til mannanna, sem þeir ekki þökkuðu. Svo sagði presturinn frá konunni, sem hafði lagt af stað til að leita hjálpar fyrir sig og dreng- inn sinn og lenti í vondu veðri. Til þess að halda barninu heitu klæddi hún sig úr kápunni sinni til að vefja utan um drenginn sinn. Hún dó svo sjálf úr kulda. Haklið þið ekki, að þessi drengur hafi haft ástæðu til að þakka móður sinni lífgjöfina? Vesalings maðurinn fór nú að hugsa. Hann gleymdi öllu í kring- um sig. Hann vissi ekki fyrr en hann var kominn út á götu. Hann sáónóð- ur sína fyrir augum sér í snjóhríð með drenginn sinn í langinu. Hvað hafði hann gert til að endurgjalda henni fórn hennar. Nokkrum dögum síðar var barið að dyrum á húsi prestsins og mað- ur kom og bað prestinn að heim- sækja mann, sem lægi lyrir dauðan- um. Presturinn fékk heimilisfang hins sjúka manns. Hann staðnæmdist fyr- ir utan dyrnar hjá hinum sjúka og var þá gripinn miklum sársauka yfir allri þeirri eymd, sem hann sá þar. Hann áræddi samt að ganga inn í húsið. Hann kom loks inn í óhreint herbergi, sem angaði af vínlykt. Úti í einu horninu lá sjúklingurinn á fatahrúgu. Hann benti prestinum að koma nær og bað hann fyrirgefn- ingar á því, að hann hafði sent eftir honum. „Þér þekkið mig víst ekki,“ sagði hinn sjúki. ,,Ég heyrði yður tala um dreng, sem frelsaður var á und- arlegan hátt. Þessi drengur er ég. Síðan ég varð fullorðinn hef ég ferð- azt víða um lönd og unnið mikið. Það versta er, að ég hef aldrei viljað leita til þess guðs, sem hjálpaði móð- ur minni til að frelsa mig frá dauða. Þrátt fyrir það hef ég aldrei getað gleymt kærleika móður minnar og fórnarlund. Hún lagði líf sitt í sölurnar fyrir mig. Nú vil ég gjarnan fá að hvíla við hlið hennar í þeim kirkjugarði, sem hún var jörðuð í.“ Presturinn fylltist meðaumkun yf- ir allri þeirri eymd og neyð, sem ungi maðurinn hafði fallið í. Að endingu sagði hann unga mannin- um frá kærleika [esú. Síðan báðu þeir saman. Presturinn heimsótti síðan hinn sjúka mann á hverjum degi, þar til hann dó. Hann sá einnig um, að ungi mað- urinn var lagður við hlið móður sinnar. Af þessari sögu getum við lært, hve mikils virði er að eiga góða og kærleiksríka móður. Þökkum guði fyrir slíka móður. Jóna K. Jónsdóttir þýddi.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.