Æskan - 01.02.1970, Blaðsíða 22
í Barnatíma mínum 28. des. s.l. spjallaði ég við 3 ára telpu,
sem heitir Helga Halldóra Ágústsdóttir.
Helga-Dóra vakti mikla athygli. Hún söng og fór með margar
vísur og eignaðist strax ótal aðdáendur sem sögðu, að gaman
hefði verið að geta séð hana líka. Ekki er þó hægt að sjá í
gegnum veggi hljóðvarpsins, en hér geta aðdáendur Helgu-Dóru
séð hana.
Eftir að Helga-Dóra kom fram hef ég hitt nokkur börn á svip-
uðum aldri og svolítið eldri, og hef ég sérstaklega tekið eftir
því, að þau hafa verið að læra vísur og lofa mér að heyra. Það
er eins og þau séu ósjálfrátt að keppa við Helgu-Dóru. Það er
ágætt! En um leið sannar það, að fjölmiðlunartækin hafa sterk
áhrif, ekki sízt á börnin. Því þarf að gæta vel að öllu, sem þar
fer í gegn. Ekki ætla ég þó að ræða það núna. Heldur segja,
að mikið er gaman að vita, hversu mörg börn eru áhugasöm
og dugleg að læra, bæði vísur og fleira — eins og t. d. um-
íerðarreglurnar!
Helga Halldóra Ágústsdóttir 3ja ára, sem kom nýlega fram í
Barnatima Ingibjargar.
Nýlega voru birtar tölur um slys hér á s.l. ári. Þær tölur voru
of háar. Sum þessara slysa voru óheppni, en önnur vegna óvar-
kárni. Hið eina, sem getur úr því bætt, er aukin umferðar-
menning, og mikið er gert til að efla hana, bæði í skólum og
annars staðar. Ef allir reyna að hlýða umferðarreglunum, hlýtur
umíerðarslysum að fækka.
Það hljóta að vera heimskir strákar, sem hanga aftan I bílum
eftir að hafa heyrt um hin hræðilegu slys af þeim völdum, og
síðast dauðaslys nú í vetur.
Það hljóta líka að vera heimskir strákar, sem henda snjó-
holtum í bíla. Oft skemmir það lakkið á bílunum og jafnvel hefur
það sett I þá dældir og brotið rúður.
Svo er annað, sem þeir íhuga kannski ekki. Bílstjóranum get-
ur brugðið svo, að hann stígi óvart fastar á bensíngjöfina. Þá
getur farið illa. Kannski missir hann stjórn á bílnum. Þá getur
orðið árekstur. Kannski verður saklaus vegfarandi fyrir honum
o. s. frv.
Nei, enginn strákur vill að svo fari, því að strákar eru yfirleitt
ekki illviljaðir. Þeir halda kannski, að það sé eitthvað sniðugt
að henda í bíla og hanga aftan í þeim. — En þegar þeir hugsa
betur um það og hugsa um afleiðingarnar, sem slíkt getur haft
I för með sér, gera þeir það áreiðanlega ekki. Því enginn vill
vera eins heimskur og hænsnin í umferðinni. — En sagt er,
að þau gleymi öllum reglum!
Eitt er líka gott að hafa hugfast: Það er ekki gott að treysta
því, að bifreið geti numið staðar á jafn stuttu færi í hálku og
á auðum götum. Því er bezt að halda sig í hæfilegri fjarlægð,
hvort heldur maður er akandi, hjólandi, gangandi eða á sleða!
Aukin umferðarfræðsla. I skólum hefur áreiðanlega gert mikið
gagn. — En betur má ef duga skal — eins og þeir segja!
Nú eru börnin ekki lengur hrædd við lögregluna. Ég vona
samt, að viss ótti og virðing haldist fyrir lögreglunni. Þið vitið
það, börnin góð, að lögreglumennirnir eru vinir ykkar, á meðan
þið eruð löghlýðin og góð. Svo er það undir ykkur sjálfum komið,
hvort sú vinátta helzt.
Ágætri hugmynd f umferðarfræðslu yngri skólabarna hafa Ás-
mundur Matthíasson og fleiri góðir lögregluforingjar komið í
framkvæmd. í vetur hefur börnunum verið boðið í heimsókn til
stöðva Umferðarlögreglunnar í Reykjavík. Þar hafa þau fengið
að sjá skemmtilegan leikþátt, „Nýja reiðhjólið'1, eftir Ármann Kr.
Einarsson rithöfund. Slíkt kunna þau vel að meta. Þau læra
margt um leið og þau skemmta sér.
Vísur Þorsteins Valdimarssonar úr ,,Vegastafrófinu“ eru sungn-
ar í þessum ágæta leikþætti Ármanns. Og ég sendi ykkur hér
tvö lítil lög, sem ég samdi fyrir þennan þátt. Það eru lögin um
heimsku hænsnin í umferðinni, og strákaglannana, sem hjóla
hlið við hlið I beygjunum. Ég læt hér aðeins laglínurnar rneð
gítarhljómum, því að þannig njóta þau sín bezt.
Svo geta þeir, sem ennþá grípa I gitarinn sinn, spilað þau og
sungið fyrir yngri börnin. — Og vitanlega minnt þau á, að „Allir
hlýða löggunni, sem vaxnir eru upp úr vöggunni“!
Kærar kveðjur!
INGIBJÖRG.
86