Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1970, Blaðsíða 42

Æskan - 01.02.1970, Blaðsíða 42
Indíánunum. Svarti Haukur var ungur piltur af ættflokki Shawnee- Indíána og faðir hans, Hái Haukur, var einn hraustasti karlmaðurinn í þorpinu þeirra. Hann hafði lagt sig mjög fram um að kenna syni sínum allt, sem hann gat, um ýms- ar listir veiðimanna, svo sem fiskveiðar, hvernig læðast skal að veiðidýrum með spjót að vopni og margt fleira, sem veiðimönnum er nauðsynlegt að vera leiknir í. Hái Haukur varð einnig mjög hreykinn af syni sínum, hvern- ig hann þroskaðist með hverju ári að vizku og afli, og sagði oft við konu sína, Fimu Dúfu: „Sérðu, hvað dreng- urinn verður stór og sterkur. Hann verður hraustasti pilt- urinn í þorpinu. Já, hann verður gleði og stolt föður síns.“ Fima Dúfa hneigði höfuðið til samþykkis, enda vissi hún bezt, hve mikið Hái Haukur hugsaði um son sinn. Vorið var gengið í garð og Shawnee-Indíánamir voru að huga að veiðitækjum sínum, því að þorpsbúar gerðust þurfandi fyrir nýtt kjöt í matinn og þá vanhagaði ekki síður um skinn í föt og tjöld. Allir feður þjálfuðu syni sína sem bezt þeir gátu og nú reið á fyrir verðandi veiði- menn að nota tímann sem bezt, svo þeir yrðu ekki sjálf- um sér og feðrum sínum til skammar, þegar hin stóra stund rynni upp. Að síðustu var öllum undirbúningi lokið, veiðimenn- irnir kvöddu kunningja og ástvini og lögðu af stað í norð- urátt, en fregnir höfðu borizt um, að þar hefði sézt til dá- dýrahópa. Þegar þeir voru komnir alllangt frá þorpinu, tók Hái Haukur þó að undrast með sjálfum sér yfir því, að einungis einstök dádýr skyldu sjást, en sá um leið, að þeir voru komnir of langt frá þorpinu inn á veiðisvæði annars ættflokks. Hann gaf flokknum merki um að stanza og bað tvo af foringjunum að tala við sig. „Nú höfum við farið of langt,“ sagði hann. „Álítið þið skynsamlegt að halda lengra? Við höfum séð allmörg einstök dýr en enga hópa eða hjarðir. Svo er þetta svæði, sem við erum nú staddir á, bæði heimaland og veiðiland Conestoga-Indíánanna. Við skulum hverfa héðan vegna þess, að við erum ekki lengur á okkar landi.“ Hann ætlaði einmitt að segja nokkur fleiri orð, þegar annar þeirra greip fram í fyrir honum og sagði: „Já, við erum á þeirra landi, en þurfum við að snúa við þess vegna. Þeir eru fáir og ekki beysnari en venjulegir hreysikettir." Þá sagði Hái Haukur: „Þetta er þeirra land og við virð- um eignarréttinn, snúum því við og höldum heim á leið. Heimskulegt væri að gera það ekki, því þeir eru margir og mundu fljótlega yfirvinna okkur. Það gæti einnig kost- að mörg mannslíf." Hinn sagði: „Ertu nú hræddur, Hái Haukur? Er hjart- að komið á sund í maga þínum?“ Vinir og veiðimenn „Ég er ekki hræddur við Conestogamenn á meðan að- eins er einn á móti einum,“ sagði Hái Haukur þá. „Ég yrði jafnvel ekki hræddur móti tveim af þeim kynflokki, því það mega guðirnir vita, að einn góður Shawnee-maður getur fullkomlega borið af tveimur hinna. En við erum á þeirra landi og ekki mjög margir á ferð, svo að við mætt- um þakka fyrir að sleppa lifandi, ef þeir fjölmenntu á móti okkur. Ég ráðlegg þér, heimskingi, að snúa við. Leita má hvar sem vera skal annars staðar að veiðidýr- um.“ Síðan sneri Hái Haukur sér að flokknum og endurtók álit sitt. Óánægjukurr heyrðist frá þeim, sem ekki voru honum sammála, en hinir voru þó fleiri, sem vildu hverfa til baka. Þeir höfðu sent njósnara á undan til að kanna leiðina og rétt í þessu kom einn þeirra með þær fréttir, að mikill fjöldi Conestoga-manna væri á leið til þeirra. Hái Haukur gaf merki og félagar hans flýttu sér af stað í átt til þorps síns. Þeir hvíldu sig ekki allan daginn og sumir voru að niðurlotum komnir af þreytu undir kvöldið. Hái Haukur brýndi þá raustina og sagði: „Haldið áfram, aumingjar. Viljið þið að höfuðleður ykkar prýði heimili Conestogamanna? Meiri skömm er þó vart hægt að láta um sig spyrjast." 106
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.