Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1978, Page 69

Æskan - 01.11.1978, Page 69
Trúið þið því, að jólasveinarnir séu til? Því trúðu börnin í fyrri daga. Fullorðna fólkið sagði þeim það til að hræða Þau. Jólasveinarnir hér áður voru ekki í fallegri, rauðri kápu með poka á baki fullan af gjöfum handa börnunum. Þá hefði enginn haft beyg af þeim. Vitið þið, hvað þeir voru margir og hvað þeir hétu? Þeir hétu: Gluggagægir, Gáttaþefur, Bandaleysir, Pottasleikir, Pönnusleikir, Hlöðustrangi, Ketkrókur, Kertasníkir og Lampaskuggi. Þeir komu ekki færandi hendi, jólasveinarnir í þá daga. Þeir voru, eins og nöfnin benda til, sársvangir sjálfir og gráðugir í allt matarkyns. Þá var oft lítið til að borða, og það er trúlegt, að börnin hafi verið hrædd um matinn sinn fyrir þeim. Jólasveinarnir komu níu nóttum fyrir jól og fóru á þrettándanum. Svona voru jólasveinarnir í gömlu, íslensku þjóðtrúnni. Jólasveinarnir voru alls staðar nálægir. Ef hurð stóð í hálfa gátt, þá var Gáttaþefur kominn þar til að gægjast inn. Það var þægilegt fyrir hann, því að frammi í 9öngunum var oftast skuggsýnt. Það var sums staðar ekki siður að breiða fyrir glugg- ana á kvöldin. Þess þurfti ekki, því að á sveitabæjum er ekki alltaf ókunnugt fólk á gangi úti fyrir, eins og í Reykjavík. En þá var bærilegt fyrir Gluggagægi að liggja f bæjarsundinu og horfa inn í baðstofuna alla kvöld- vökuna. Lampinn hékk í sperrunni eða niður úr mæni. Uppi í ræfri var skuggsýnt. Þar gat Lampaskuggi falið sig og séð allt, sem fram fór. í búrinu var Pottasleikir og allir hinir, sem voru sí- svangir. Sá, sem fór út í hlöðu til að taka kúaheyið, gat átt von á, að Hlöðustrangi sæti uppi á stabbanum. Og þegar komið var í fjósið, kom það fyrir, að einhver kýrin var laus. Þá hafði Bandaleysir verið þar að verki. Væri ekki gaman að teikna alla þessa karla, þó að þeir hafi aldrei verið til? .................................... I f*ku fólki og ég veit, hvernig þaö er að vera svangur á mesta hátíðisdegi I ársins. Svo hélt hann áfram með skjálfandi í rödd: — Ég ætla nú að biðja ykkur þess ennþá einu sinni, að Ijá lið ykkar °9 listgáfu til þess að aðstoða á hknarskemmtun til ágóða fyrir mat- 9jafir á jólunum. Áheyrendurnir létu að orðum 9amla mannsins og skemmtunin var . haldin. Hún varð fjölsótt og gaf mikinn árð. Það voru hvít jól í þetta sinn og það Þótti Parker vænt um. Hann var nú orðinn of gamall til þess aó sitja í ekilssætinu og fara um borgina með jólakörfurnar og hafa taumhald á vilj- I ugum hestunum og þess vegna varð það að ráði, að annar maður gerði þetta, en Parker gamli var við af- hendinguna á gjöfum í klúbbhúsinu. Allir fengu troðna körfu og vingjarn- leg orð, og augu Parkers gamla Ijóm- uðu af gleði. Þetta var dagurinn hans og hann vildi fá sem mesta ánægju af honum. Loks voru allar körfurnar farnar. Svo fór hann heim með neðan- jarðarjárnbrautinni. Brosið lék ennþá um varir hans, þó að hann væri dauðþreyttur. Hann sá í draumi fátæka menn og konur, sem ekki höfðu fengið neina jólagleði nema körfuna hans. Klukkutíma síðar sat hann við lítið borð í heldur fátæklegri stofu. Bogin, hvíhærð kona sat beint á móti honum. — Góði Robert, viltu ekki skera steikina, sagði hún með hefðarsvip eins og húsmóðir í stóru samkvæmi. — Meó ánægju, frú Parker. Þunnar ' sneiðar? — Já, þökk, hr. Parker. — Er það ekki yndislegt? sagði hann. — Varstu feimin Mary? Það var ekki með léttu hjarta, sem ég gerði það. Þegar röðin kom að þér og ég rétti þér körfuna, var ég lafhræddur um, aö einhver af gömlu kunningjun- um mundi þekkja þig aftur. Parker sat um stund og virtist við- utan. Svo bætti hann við: — En hvers vegna ætti ég að blygðast mín fyrir þetta? Við erum eflaust með þeim allra fátækustu, sem hafa fengið jóla- körfu í dag.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.