Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1978, Side 74

Æskan - 01.11.1978, Side 74
on rauou H ugsiö ykkur að þið væruð komin til landsins, sem þessi saga gerist í! Ykkur langar sjálfsagt í epli en þið fáið þau ekki. Það er eitthvað annað en hjá bóndanum, sem sagði: — Ég sé að við getum ekki torgað öllum eplunum úr garðinum mínum í haust. Þess vegna held ég að við verðum að selja öíl rauðu eplin þarna á stóra trénu neðst í garðinum — hin eplin verða meir en nóg handa okkur. — Selja? Það á að selja okkur! hvísluðu rauðu eplin þegar þau heyrðu þetta. Og þau fundu til sín af upphefðinni. — Þetta er mikill heiður, sagði perutréð, sem stóö þarna hjá. — Það eru ekki nema fallegustu og bestu eplin sem fólk vill kaupa — séu blettir eöa vankantar á þeim, er ekki hægt að selja þau nema fyrir hálfvirði í mesta lagi. Og séu þau ormétin þá vill enginn líta við þeim. — Við erum hvorki blettótt né orm- étin! sögðu rauðu eplin og litu hróðug kringum sig. En sum eplin þögðu því að þau fundu að ormur hafði étið sig inn í þau. En þau vonuðu að enginn tæki eftir því. — Niðurföllnu eplin duga ekki í annað en svínamat, sagði plómutréð við girðinguna, — það er alveg um þau eins og niðurföllnu plómurnar. — vinnumaðurinn tínir þær upp í hjól- börur og fleygir þeim í svínin. — Uss, uss! sögðu rauðu eplin með skelfingu og fyrirlitningu. — Ekki mundi okkur þykja gaman að láta svínin bryðja okkur. — Hvað viljið þiö þá? spurði peru- tréð. — Vió viljum láta selja okkur! svöruðu öll rauðu eplin einum rómi. Gamla eplatréð skellihló að krökk- unum sínum, það hristist af hlátri svo að fáein af eplunum, sem voru ógn- lítið ormétin, duttu niður og kútveltust í grasinu. Þar staðnæmdust þau inn- an um hálfþroskaðar plómur og perur. Hin tvö trén hlógu líka og svo sögðu þau: — Jæja, þið eplin talið eins og þið hafið vit til! Þið viljið láta selja ykkur — ójá, en hvað svo? Hvað haldið þið að verði um ykkur? Það vissu eplin nú ekki, en þau vonuðu að þau kæmust á einhvern ósköp fínan stað. Og svo þreyttust þau aldrei á að pískra um það, meðan þau héngu þarna á greinunum og voru að þroskast í haustsólinni, hvað eiginlega mundi verða af þessum fínu eplum, sem ætti að selja. Þau höfðu vitanlega ekki hugmynd um þetta og þess vegna dreymdi þau stóra drauma um framtíðina og óskuðu sér margs. Svo voru þau tínd af trénu einn morguninn, þau voru vafin í pappír og raðað saman hlið við hlið ofan í kassa og svo vissu þau ekki meir — þau fundu bara að þeim var lyft upp og þau voru borin, keyrð og síðan lyft upp á ný og svo var þeim ekið aftur . . . þetta var svo skrítið að þau rugluðust alveg í ríminu, þangað til loksins að þau fundu, að nú varð breyting á. Því að kassarnir sem þau lágu í voru opnaðir aftur, pappírinn tekinn ofan af þeim og svo kom ókunn hönd ofan í kassann og tók um þau og lyfti þeim upp. — Lítið þér á, þetta eru Ijómandi falleg rauö eðli. Einmitt epli sem hæfa yður, Epla-Stína! Það eru þessi ep,li, sem börnunum þykir vænst um að fá, og þér skuluð fá þau með gamla verðinu! — Jæja, það er þá best að ég kaupi þau, sagði vinaleg rödd og nú fengu eplin að sjá þessa konu, sem kaup- maöurinn hafði kallað Epla-Stínu. Hún var nærri því eins og epli íframan sjálf— eins og gárótt vetrarepli ■— liti! og gömul og með svo mikið af sjölum og klútum, að það lá við að hún vaeri eins og hnykill í laginu. Epla-Stína hafði sýslað með ep1' lengst af ævinnar. í fyrsta lagi var hún dóttir garðyrkjumanns og hafði hjálp- að honum þegar hún var barn, síðan giftist hún einum af vinnumönnum hans og loks þegar hann var dáinn og börnin þeirra komin að heiman, vildi Epla-Stína samt ekki hætta við eplin Hún fékk leyfi til að hafa svolítinn söluskúr við götu milli tveggja stórra skólahúsa og þar sat hún í hvaða veðri sem vera skyldi og seldi ávexti — einkum epli. — Það er miklu hollara að börnin fái falleg rauð epli að borða en dí- sætan brjóstsykur eða súkkulaði- sagöi Epla-Stína. — Það er miklu hollara og eplin eru svo einstaklega góð á bragðið. Að vísu voru það sum börn, sem kusu heldur að fara inn í sælgaetis' búðina á horninu og kaupa sér saet' indi, en þó voru hin miklu fleiri sem komu til Stínu og keyptu sér hnefa af plómum, peru eða epli. Og Stína var engin smásál. Það kom oft fyrir, þegsr hún sá lítinn dreng sem enga pening3 átti, renna augunum til ávaxtanna, að hún kallaði á hann og sagði: — Taktu þér epli þarna, kunningi! Og það lét enginn drengur segja ser tvisvar. Nú fékk Epla-Stína öll rauðu ep|in og hún nuddaði þau þangað til ÞaU
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.