Æskan - 01.11.1978, Síða 75
Föndur
Jólasveinninn bak við rammann
Teiknið myndina með aðstoð kalkipappírs á karton og
klippið hana út. — Skerið eða klippið slaufuna þannig,
að hún geti hangið yfir rammann. Málið sveininn með
vatnslitum og stingið grenikvisti í hönd hans.
Jólavöndull
Takið eina örk af grænum glanspappír og klippið eftir
endilöngu 12 mm breiða ræmu. Klippið nú 7 mm inn í
rasmuna með 2 cm millibili. Setjið saman 2 eða fleiri
pípuhreinsara og smyrjið lími á þá. Vefjið síðan grænu
klipptu ræmunni utan um og límið endana fasta.
Blóm
Teiknaðu með hringfara hring á rauðan kreppappír.
Klipptu hann út og strikaðu hann í jafna parta. Klipptu
voru orðin spegilfögur og það var
blindös kringum skúrinn hennar þeg-
ar hún fór að selja þau.
Þá kom gamall og viðfelldinn karl
að skúrnum til Epla-Stínu. Hann nam
staðar og sagði með aðdáun:
— En hvað þetta eru Ijómandi
falleg og rauð epli! Heyrið þér, það er
best að ég kaupi þau öll, ég ætla að
Qefa þau á jólatrésskemmtunina á
barnahælinu. Það er einhver munur
fyrir börnin að fá þetta eða súkkulaði
og brjóstsykur!
— Jólatré . . . Hvað er það? spurðu
öll eplin þá.
— Það veit ég! sagði snjótittlingur
sem var að vappa þarna skammt frá.
— Það er stórt, grænt grenitré, sem er
skreytt með logandi kertum og flögg-
um og glitþræði og með stjörnu í
toppinum. Ekkert í heiminum er eins
fallegt og jólatré!
— Við eigum að sjá jólatré! Við
eigum að fá að sjá það fallegasta í
heimi! hvísluðu eplin og svo voru þau
borin heim á barnahælið og þar tóku
stúlkur með hvítar svuntur á móti
beim og hrópuðu upp af kæti þegar
Þaer sáu hve falleg eplin voru.
— Við höfum átt fagra ævi og
öeyjum í fegurð! sögðu eplin hvert við
annað þegar þau voru hengd á jóla-
tréð. — Við komum af tré og endum
með því að hanga á öðru tré og
börnunum þykir svo vænt um okkur
að þau mega til að éta okkur! getur
maður hugsað sér það betra?
einn partinn alveg úr (sjá mynd A) en brjóttu afganginn 5
sinnum saman (sjá B). Teiknaðu blað á þetta saman-
brotna blað og klipptu afganginn (X) af. Flettu blöðunum
sundur og límdu saman þar sem þarf. Litaðu pípu-
hreinsara grænan og notaðu sem legg. E. t. v. mætti
skreyta blómið í miðjunni með örsmáum gulum krep-
pappírsræmum.
Bjallan er búin til úr mjóum pappírsrenningum, sem
vafðir eru upp í plötu til að byrja með (sjá mynd) en síðan
er bjallan formuð til með því að ýta miðjunni upp á við þar
til bjölluformið er komið. Berið lím og glimmer á.
ÞEKKIRÐU LANDIÐ?
Verðlaunaþrautin „Þekkirðu landið?"
varð mjög vinsæl ef dæma má eftir
öllum þeim fjölda lausna sem bárust.
Lausn á mynd nr. 1 var: frá Bessa-
stöðum. Úr réttum lausnum voru
dregin eftirtalin nöfn: Þórhildur Jóns-
dóttir, Bjarghúsum, Vesturhópi, 531
Hvammstanga; Jón Svanberg
Hjartarson, Brimnesvegi 14, Flateyri,
Önundarfirði; Stefanía Karlsdóttir,
Grund, Jökuldal, 701 Egilsstaðir;
Matthildur Kr. Elmarsdóttir, Kirkju-
vegi 18, Ólafsfirði og Katrína Ólafs-
dóttir, Bólstaðarhlíð 64, 105 Fteykja-
vík. Verðlaunahafar fá bækur sínar
sendar í pósti.
RQ