Æskan - 01.02.1980, Síða 15
faldað og reiknað út, hvað hver
maður á að fá í sinn hlut. Kaupmönn-
unum yfirsést mjög oft. Margir bænd-
ur hafa sagt mér að þó þeir fari með
minna magn af hnetum til að selja en
síðastliðið ár, þá fái þeir samt meiri
Peninga fyrir þær. Ég held að kaup-
mennirnir lesi ekki nógu rétt. Ef þeir
laesu rétt myndu þeir varla gera slíkar
vitleysur.
Höfðingi okkar segir, að ég eigi að
ganga í skóla til að geta gert það, sem
er jafnvel ennþá meira en þetta. Hann
vill að einhver þorpsbúi geti útskýrt
fyrir honum hvað hvíti maðurinn
segir, þegar hann kemur til hans að
tala um búskapinn, meðulin og skól-
ana. Þorpsbúarnir segja, að í skól-
anum muni ég öðlast mikla þekkingu
og geti að lokum hjálpað þeim til að
greina rétt frá röngu. Þeir vilja um-
fram allt vera góðir þorpsbúar og ekki
eftirbátar annarra. Ef til vill get ég
einhvern tíma orðið umboðsmaður
þorpsins i ríkisráðinu. Sumir segja að
ég geti einnig orðið fuiltrúi höfðingj-
ans í höfuðborginni. En mig langar
hvorki til að verða fulltrúi né umboðs-
maður. Þegar ég hef lokið skólanám-
inu vil ég helst fara heim í þorpið mitt
og hjálpa bændunum. Flestir drengj-
anna vilja fara til höfuðborgarinnar og
veróa lögfræðingar eða læknar.
Ég tek vel eftir þegar við vinnum á
búgarðinum, því að þar eru okkur
kenndar betri aðferðir við að nota
okkar eigin verkfæri.
Einu sinni, þegar pabbi kom að
heimsækja mig, sýndu þeir honum
hvernig hægt er að nota hlújárn á
mismunandi hátt. Við lærum einnig
að vera hófsamari í mat og að geyma
bestu og stærstu plönturnar til fræ-
töku næsta ár, og þannig verður
grænmetið okkar stærra og stærra
eftir því sem árin líða.
Eitt er það sem ég hef alveg sér-
staklega mikinn áhuga á aö læra í
skólanum, en það er ræktun ávaxta-
trjáa. Hvíti lyfjafræðingurinn okkar
segir að við verðum að borða mikið af
ávöxtum. Við fáum nóg af þeim í
skólanum, en sítrónutré, appelsínu-
tré, vínviður og bananatré þurfa mjög
Þýtt úr The king’s messenger.
** yi
góða aðhlynningu á meðan þau eru
ung. Ég vona að ég geti gróðursett
mikið af ávaxtatrjám í þorpinu mínu,
ávextir eru svo hollir fyrir börn.
Hvíti hjúkrunarmaðurinn segir að
við eigum að koma til hans strax ef við
verðum veikir, við megum aldrei
reyna meðul blökkumannanna fyrst.
Ég veit að þetta er alveg rétt, vegna
þess að ég var mjög mikið veikur af
sjúkdómi, sem er kallaður heila-
himnubólga en hann læknaði mig
bæði fljótt og vel.
Þið sjáið nú, að það er ekkert lítið,
sem ég get lært í skólanum, og ég
mun geta hjálpað fólkinu í héraðinu
S <b * .
01 -H ro
E o> 2 -
3 3 ra a>
s « -<U c
S !5 ” I
c g 5 6
° .2 2 =
E £ «o x.
i>< ro o
— c
3
c ro « Z
:0 O í »
r. '5
„ -3 </>
c E -Q- ■-
5 ra >- '<i»
E ^ a> I
.E <3 o 3
ro i_' >
<o := r.
ji T3 _
P O) C *o
s 0) >, (U
r E E
mínu þegar ég kem heim. Mig langar
ekkert til að fara að dútla eitthvað á
skrifstofu. Nei, ég vil verða gullsmiður
í þorþinu mínu og verða eins dug-
legur og pabbi.
13