Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1980, Blaðsíða 23

Æskan - 01.02.1980, Blaðsíða 23
með járnbraut (Inter-city) sem bráð- le9a mun taka í notkun vagna sem ganga 200 km á klukkustund. Auk Þess er í Bournemouth flugvöllur, Hurn og annar í Southampton í 50 km fjarlaegð, en þaðan er flogið víðs veg- ar um Bretland og til meginlandsins. þá er Bournemouth tengt hinu langa vegakerfi Bretlands sem þýðir að til- fölulega auðvelt er að hugsa sér stuttar og lengri ferðir um Bretlands- eyjar, jafnvel allt upp til Skotlands og Wales, meðan dvalist er í Bourne- mouth. Bournemouth er þess vegna kjör- inn staður til aö dveljast á og það var einmitt með tilliti til þessa að Bourne- mouth varð fyrir valinu, þegar Anglo Continental Educational Groups (ACEG) skólarnir voru stofnaðir. Hann er án efa einn besti skólinn af mörgum sem þar hafa verið stofnaðir. Skólinn var stofnaður 1950. Innan hans eru 12 mismunandi skólar, 2 Þeirra í London. Skólarnir kenna allt <rá venjulegri ensku sem notuð er í daglegu talmáli og allt til sérhaefðari ensku sem notuð er í viðskiptum. Skipulagðar eru orlofsdvalir ásamt enskunáminu og sérnámskeið haldin fyrir þá sem stunda iðnað, verslun o.s.frv. Frá byrjun hafa um 175000 nemendur sótt skólann frá um 100 Þjóðum. Reynsla sú sem hefur fengist 1 Þessu starfi býður upp á gæði þau sem við bjóðum á námskeiðum okkar. Kjörorð ACEG skólanna er að kenna það besta í ensku máli við bestar aðstæður. GILDI ÞESS AÐ LÆRA ENSKUí ENGLANDI Tungumál er afrakstur og sköpun menningar og umhverfis. Kennarar hagnýta sér þetta en nemendur síður. Þeim er því tamið það að árangur í tungumálanáminu sé undir því kom- inn hversu vel tekst til að lifa sig inn í umhverfi það sem málið þróast í, hvort þeir læra tungumálið í eigin landi eða ekki. Það er ekki gott að standa í fjarlægð og vera áhorfandi. Það er ekki hægt eingöngu að læra tungumál utanbókar og troða því í nemendur. Málanám er öflun þekkingar, hæfileiki til athafna og síðan þrotlaus þjálfun. Ekki minnis- eða utanbókarnám. Með slíku námi eingöngu verða nemendur stundum vonsviknir með árangur. Kennarar verða þess vegna að kappkosta að nemendurnir nálgist viðfangsefnið eftir réttum leiðum. Það þarf að sýna nemendum fram á að nálgast þarf námið með fyrirhyggju, sem stundum reynist ekki eins auðvelt og margur hyggur, en umbun þessarar fyrir- hyggju veitir nemandanum vald á tungumálinu sem síðar opnar nýjan heim og eykur á víðsýni hvers og eins. Það var með þetta í huga sem Anglo Continental Educational Group var stofnað 1950. Meira en 175 þús. nemendurfrá rúmlega 100 þjóð- um hafa notið kennslu í þessum fremsta skóla sinnar tegundar í Bret- landi. Á þessum 30 árum hefur ACEG öðlast óviðjafnanlega þekkingu og reynslu í því hvernig kenna skuli út- lendingum ensku í Englandi. Aðferðum og kennslutækni hefur fleygt óðfluga fram og kennararnir geta hrósað sér af því að búa nú við bestu gæði í starfi. Þannig hafa þeir samið kennslubækur sem taldar eru þær bestu sem völ er á í kennslu. Það þarf ekki að taka það fram að allir nemendur ACEG njóta þessarar framúrskarandi kennslu frá byrjun til enda á hvaða stigi sem þeir eru í náminu. Þegar velja þarf milli skóla á þessu sviði, þar sem kennir margra grasa, er nauðsynlegt að hyggja að þeim viðurkenningum sem hver og einn skóli kann að hafa fengið í kennslunni. Allir skólar ACEG eru metnir að gæðum og viðurkenndir af „Department of Education and Sci- ence" sem tilheyrir menntamála- ráðuneytinu breska. Að sjálfsögðu getur ACEG sem sjálfstæð stofnun sett sér sjálfri eigin ramma í kennsl- unni. Kannski ekki síst vegna þess hafa ACEG-skólarnir hlotið viður- kenningu og eru meðlimir ,,Asso-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.