Æskan - 01.02.1980, Blaðsíða 41
PRÚÐULEIKARARNIR
Tæpur aldarfjórðungur er nú liðinn síðan fyrsti
Prúðuleikarinn leit dagsins Ijós. Það var hinn frægi
,roskur Kermit og í kjölfar hans hafa yfir 300 brúður verið
1 sviðsljósi vinsælasta sjónvarpsmyndaþáttar heims.
Prúðuleikararnir eru nú sýndir í 107 löndum, og í viku
hverri horfa um 235 milljónir manna á þá. Vinsældirnar
Prúðuleikaranna taka fram vinsældum dáðustu kvik-
^yndastjarna. í hinum tilbúna heimi Prúðuleikaranna er
brugðið á leik, þar eru skapaðir hlutir, sem ekki er hægt í
hinu daglega lífi. Persónur aftan úr grárri forneskju jafnt
°9 fólk framtíöarinnar. Persónulegt yfirbragð Prúðuleik-
aranna hefur allsstaðar skapar þeim vinsæidir þar sem
l3eir hafa birtst á skjánum.
Að baki Prúðuleikurunum vinnur mikið lið, sem hefur
,ekið nýjustu tækni í sína þjónustu. Stjórnendur þeirra
Þurfa að leggja hart aó sér. Aðeins nokkrar sekúndur eru
,estar á filmur í einu svo stjórnendur brúðanna geti
kastað mæðinni. Á skjánum sjást ekki hin ýmsu handtök
stjórnenda þeirra, sem jafnfrarnt leggja þeim til raddir og
gæða Prúðuleikarana lífi. Og þegar því sleþþir, sem
stjórnendur geta sjálfir gert, tekur tæknin við. Svo sem
fjarstýrð augu og eyru. í hinum stærri eru innbyggðir
sjónvarþsskermar svo sá sem stjórnar getur séð
umhverfið í kringum sig. Einfaldar brellur og háþróuð
tækni liggur að baki velgengni Prúðuleikaranna.
Nú er tæpur aldarfjórðungur síðan Jim Henson, faðir
Prúðuleikaranna, skapaði Kermit. Hann var þá í skóla og
tómstundagaman hans var að búa til brúður. Þessar
brúður hafa nú gert hann auðugan.
Prúðuleikararnir hafa aldrei verið vinsælli en nú, Þeir
eiga fyrir sér glæsta framtíð, sem ólíkt öðrum ,,stjörnum“
fölnar ekki með árunum. Þeir eru síungir, ferskir og um
allan heim nýtur fólk hugarheims Jim Hensons og félaga,
sýningar Prúðuleikaranna.
35