Æskan - 01.02.1980, Blaðsíða 29
CUMMl CMSAMGC
38. Nokkrir höfðu reynt þetta á undan
Gumma, en allir höfðu þeir týnst og enginn
komið aftur. Það, sem Gummi tók með sér var
stór nestismalur, öxi, furukubbur, eldspýtur
o.fl.
39. Þegar Gummi kom að sundinu var áin í
vexti og var með jakaburði. — Gummi lét það
ekki á sig fá, en óð knálega yfir og stjakaði frá
sér ísjökunum þótt þungir væru.
Texti: Johannes Farestveit. — Teikn.: Solveig M. Sanden.
36. ,,Ég er hér með sveröið hans afa þíns,"
sagði Gummi við kónginn, ,,og hvað á ég nú að
starfa?" — Kóngur varð að vísu glaður yfir að
fá sverðið aftur en hvaða starf gat hann látið
strákinn fá? Jú, nú datt honum það í hug að
biðja Gumma að fara út í eyju eina skammt frá
landi.
37. ,,Þú átt," sagði kóngur, ,,að byggja brú,
trausta og góða, frá eyjunni til lands. Ef þú
getur þetta mun ég launa þér vel." Sagðist
Gummi ætla að reyna þetta og hélt af stað.