Æskan - 01.09.1983, Qupperneq 10
„MAÐUR VERÐUR AÐ LEGGIA
SIG ALLAN FRAM...“
OOOOO0OOOOOOOo©o
Ásgeir Sigurvinsson í opnuviðtali
Ásgeir Sigurvinsson hefur stundum verið nefndur
sendiherra íslenskrar knattspyrnu í útlöndum. Hann var
þriðji íslendingurinn sem lagði út í hinn stóra og harða
knattspyrnuheim, næstur á eftir Albert Guðmundssyni, nú-
verandi fjármálaráðherra, og Þórólfi Beck. Það er óhætt að
segja að Ásgeir hafi haldið merkinu á lofti. Velgengni hans
hefur verið slík, það vita þeir sem fylgst hafa með.
Ásgeir er 28 ára, fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum.
Hann gekk til liðs við Týrarana þegar hann hóf að leika
knattspyrnu með yngri flokknum. Hann var aðeins 16 ára
þegar hann lék fyrst með meistaraflokki. Það var 12. febrú-
ar 1972 gegn Breiðabliki. Vestmannaeyingar sigruðu 3:1
Ásgeir skoraði eitt mark og var maðurinn á bak við sigur-
inn. Menn sáu strax að hér var efnilegur piltur á ferð. Skosk
lið gerðu honum fljótlega tilboð um að æfa með sér í
mánaðartíma til reynslu. Ásgeir þáði eitt boðanna, frá
Glasgow Rangers, en þar líkaði honum dvölin illa. Hann
mætti á æfingar einu sinni á dag en var svo látinn afskipta-
laus og ráfaði um göturnar í reiðileysi. Hann vill gleyma
þeim tíma sem fyrst.
23. júlí 1973 markaði tímamót fyrir knattspyrnuferil Ás-
geirs. Þá skrifaði hann undir atvinnusamning við belgíska
liðið Standard Liege. Þar var hann í átta ár. Þá fór hann til
Bayern Múnchen í Vestur-Þýskalandi og var þar eitt keppn-
istímabil. Síðan gekk hann til liðs við Stuttgart og er þar nú.
Ásgeir er kvæntur Ástu Guðmundsdóttur og eiga þau
litla telpu, Tönju Rut. Þegar hann var á ferð hér á landi í
sumar tókum við hann tali.
DRAUMURINN RÆTTIST
- Ef við byrjum á atvinnuferli þínum í fótboltanum,
Ásgeir, manstu enn hvernig þér var innanbrjósts þegar þú
undirritaðir samninginn við Standard Liege?
„Já, ég man að það var talsverð spenna í kringum þetta allt
saman,“ sagði Ásgeir þegar við höfðum komið okkur fyrir á
heimili tengdaforeldra hans. „Atvinnufótboltinn hafði át
hug minn frá því að ég var lítill strákur. Það var
langþráður draumur sem rættist. Ekki var þó laust við 3
svolítill kvíði væri í mér því dvöl mín hjá Glasgow RangerS
hafði valdið mér vonbrigðum, hún var hreint út sagt leið|n
leg. Um þetta leyti sýndi Celtic áhuga á því að fá mig en e9
hafði meiri áhuga á því að leika knattspyrnu á megin
landinu. Þar er hún skemmtilegri."
- Hvernig gekk svo í upphafi?
„Fyrstu tveir mánuðirnir voru erfiðir. Ég var nefnileð3
meiddur á hné. En þegar mér batnaði fékk ég fljótleS3
tækifæri hjá liðinu. í upphafi keppnistímabilsins gefa þJal
arar sem flestum tækifæri. Síðan myndast kjarni. Ég na
fljótlega sæti í aðalliðinu og var látinn leika stöðu tengiliðar'
Heima hafði ég verið vinstri útherji".
MIKLAR KRÖFUR GERÐAR
- Kom þér eitthvað á óvart í atvinnufótboltanum?
„Já, kröfurnar voru meiri en ég hafði átt von á. Ég Þek
líka atvinnufótboltann lítið sem ekkert fyrir. Maður verð
eiginlega að leggja sig allan fram - framfylgja því serr|
yfirmennirnir segja. Leikmenn verða að vera reglusam|r
líferni því mikil barátta er um sæti í liðunum. Það eru nog
um að taka við.“
- Getur þú gert upp á milli þeirra þriggja félaga sem Þu
hefur leikið með?
„Það er erfitt að gera upp á milli Standard Liege
Stuttgart. Dvölin í Belgíu var mér ákaflega minnisstæð P
að þar var ég í 8 ár. Eftir að allt hafði gengið í haginn fór e
til Bayern Múnchen og átti þar leiðinlegt keppnistímabil-
fékk mig lausan eftir það og fór til Stuttgart. Þar kann e
mjög vel við mig. Ég var núna í sumar að framlen9l
samningnum um 4 ár. Þegar hann rennur út verð ég °rö'
32 ára og erfitt að segja nokkuð um hvað þá tekur vi
Kannski hætti ég. Það er sagt að menn séu upp á sitt be
25-30 ára.“
10