Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1983, Page 12

Æskan - 01.09.1983, Page 12
Þið hafið eflaust tekið mikið af skemmtilegum myndum. Vió vildum gjarnan birta bestu myndirnar, og í stað þess að efna til beinnar samkeppni bjóð- um við ykkur að senda okkur bestu og skemmtilegustu mynd- irnar til birtingar. Við veljum svo „MYND MÁNAÐARINS" hverju sinni. Við veitum bókaverðlaun fyrir allar myndir, sem við birt- um, en aðeins peningaverðlaun fyrir „MYND MÁNAÐARINS“, 600 krónur. Allir lesendur ÆSKUNN- AR mega senda inn myndir. Ef þið viljið fá myndirnar aftur, þá takið það skýrt fram. Verið nú dugleg að senda myndir til blaðsins og gleymið ekki nafni og heimilisfangi- Merkið umslagið: Æskan, Box 14, Reykjavík, og neðst í horn umslagsins „MYND MÁNAÐAR' INS.“ HVER TEKUR BESTU LJÓS- MYNDINA? Ásgeir sagðist kunna vel við sig í Þýskalandi. Þjóðverjar væru að mörgu leyti gott fólk. „Þeir þurfa bara svo oft að gjalda fyrir það hvernig þeir eru í sumarleyfum," sagði hann. „Ef þeir borga fyrir eitthvað vilja þeir örugglega fá sitt fyrir peninginn. Annars held ég að flestir útlendingar hafi allt gott af Þjóðverjum að segja.“ - í hvað verðu tómstundum þínum? „Þegar ég var í Belgíu lék ég mikið golf og fór á skytteri. Það er minna um það hjá mér í Þýskalandi. Núna fer ég helst í bíó, horfi á sjónvarp og hlusta mikið á tónlist." ÍSLENSKA FÓTBOLTANUM FARIÐ AFTUR Aðspurður sagðist Ásgeir fylgjast vel með fréttum að heiman. Hann fær DV og Morgunblaðið sent reglulega. Útvarpsfréttirnar heyrir hann því þær eru sendar út á stuttbylgju. - En hvað finnst honum um íslenska fótboltann um þessar mundir? „Ég á erfitt með að dæma hann af því að ég sé hann sjaldan með eigin augum. Ég hef þó grun um að honum hafi farið aftur eftir þeim fáu leikjum sem ég sá í fyrra og eins í sumar. íslensk knattspyrna þarf líka að gjalda þess að um leið og efnilegir leikmenn koma fram í sjónarsviðið eru þeir keyptir til útlanda. Fótboltavellir hér á landi eru í verulega slæmu ásigkomu- lagi og það gerir knattspyrnuna leiðinlegri. Það er varla forsvaranlegt að bjóða erlendum landsliðum eða félagslið- um upp á það að leika á Laugardalsvellinum, hann er það slæmur. Þessi mál þyrfti öll að taka fastari tökum ef knatt- spyrnan á að halda velli sem vinsælasta íþróttagrein okkar íslendinga". FORMGALLAR í SAMNINGI Ásgeir hefur ekki getað leikið með íslenska landsliðinU síðastliðin tvö ár. Hver er ástæðan fyrir því? „Knattspyrnusambandið á að fylgjast með því við 9er samninga að í þá verði sett ákvæði um að það geti kaHa leikmenn sína heim þegar á þarf að halda. Önnur lönd eru með ákvæði um þetta. Fáist leikmaður ekki laus ÞurT félögin að greiða himinháa sekt. Ég viðurkenni að þarna eru formgallar í mínum samningi. , Við þetta vil ég bæta að íslendingar gera sér ekki ai grein fyrir því hvað mikið álag fyrir okkur atvinnufótbol13 mennina löngum ferðalögum fylgir. Maður er stundu,TI marga daga á eftir að jafna sig. Það er líka annað í ÞesS^ Knattspyrnan er atvinna mín. Meðan ég er fjarverandi tila ^ leika landsleik verð ég af ákveðnum greiðslum. Svo ^ baráttan hörð um sæti í aðalliðinu. Viss áhættafylgir Þvl. gefa sætið oft eftir til varamanns. - Ég vona að eng1^ misskilji það sem ég er að reyna að segja. Ég hef sag1 v Knattspyrnusambandið hérna að ég muni reyna að le með landsliðinu okkar svo framarlega sem ekki ver árekstrar. En til þessa hefur svo verið . . . því miður. vægir leikir hafa verið á sama tíma hjá félagsliði mínLJ- - Að lokum, hvað hyggstu taka þér fyrir hendur ílrarn tíðinni? ^ „Það er ómögulegt að segja nokkuð um það ennþa- veit bara að ég kvíði ekki framtíðinni. Ég er búinn að ko ^ mér vel fyrir á þessum árum í fótboltanum. En heim kem að öllum líkindum aftur," sagði Ásgeir Sigurvinsson. Þegar þetta viðtal birtist er Ásgeir á fullri ferð í ÞVS fótboltanum. Við óskum honum góðs gengis á ÞeS keppnistímabili. Viðtal: Eðvarð Ingólfsso11 Myndir: Heimir Óskarsson- „MAÐUR VERÐUR AÐ LEGGJA SIG ALLAN FRAM.. ■“

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.