Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.09.1983, Qupperneq 16

Æskan - 01.09.1983, Qupperneq 16
ATHAFNAMENN Þiö hafið sjálfsagt öll heyrt eða lesið um menn sem byrjað hafa með tvær hendur tómar en byggt upp stór fyrir- tæki af miklum dugnaði. Ég býst við að sögurnar hafi flestar verið um erlenda menn. En þær gerast að sjálfsögðu einnig hér á landi. Fyrir rúmum 50 árum fór Guðmundur Guðmundsson, þá á unglingsaldri, að smíða húsgögn og árið 1930 hóf hann framleiðslu þeirra í stærri sttl. Hann stofnaði Trésmiðjuna Víði árið 1945. Víðir hefur starfað síðan og er vel þekkt og virt fyrirtæki. Guð- mundur hefur verið lífið og sálin í fyrir- tækinu. Guðmundur er fæddur árð 1910. Hann er blindur og hefur verið það frá 6 ára aldri. Það var viljandi að ég iir,uuu nefndi það ekki fyrr. Margt af því fólki sem einhver fötlun háir vill ógjarna að mikið sé gert úr fötluninni. Dugnaður þess við að bjarga sér er oft með ólík' indum. Þó að sleppt hefði verið að minnast á þetta atriði hefðuð þið mátt muna Guðmund sem einstakan dugn- aðarmann. Nú veit ég að hann á a|la aðdáun ykkar. Þið kannist eflaust við framleiðslu Víðis hf. fyrir börn og ungiinga, skrif' borð, hillur, svefnbekki, kommóður og skatthol. Ein tegund skrifborðanna reyndist svo vel gerð að hún hefur veriö framleidd nánast óbreytt í 15 ár. SífeH* er verið að reyna að teikna og smíða (Það er líka kallað að hanna) það sem fólki þykir hentast og haganlegasf- Finnski arkitektinn Ahti Taskinen hann- aði fyrir nokkru nýja gerð húsgagna fyrir Víði. Efnt var til verðlauna^ samkeppni um heiti á þeim og var Salix fyrir valinu. Salix er latneska heitið á trjátegundinni víði. Þessi hus- gögn eru gerð úr einingum sem raða 16

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.