Æskan - 01.09.1983, Qupperneq 17
SKÓLASTARF
í 100 ÁR
A þessu ári er liðin öld frá upphafi
reglulegs skólastarfs á Siglufirði. Af-
niaelisins var minnst með svonefnd-
Urn starfsdögum, það er stundatöflu
nemenda er vikið til hliðar fyrir
^ópvinnu er tekið var á viðfangsefn-
inu „Skólastarf í 100 ár.“
Nú er hafinn undirbúningur að
söguritun sem tekur til ýmissa þátta
skólastarfsins í 100 ár, þar sem
margir munu leggja hönd að verki.
1 fyrstu var barnaskólinn í litlu
timburhúsi á svonefndum „Búðarhól"
vestan Lindargötu. Var þetta hús notað
til ársins 1899 að nýtt skólahús úr
timbri var byggt á Eyrinni, við Aðalgötu
Þar sem nú er pósthús. Upp úr alda-
mótum fjölgaði bæjarbúum ört, svo
fljótlega varð hið nýlega skólahús alls-
endis ónógt. Nýtt skólahús úr
steinsteypu var vígt í desember 1913
og er það enn í notkun sem hluti af
neðri hluta Grunnskólans. Nokkrum
árum síðar var byggður allstór leikfimi-
salur austan við skólahúsið, sem einnig
var um skeið samkomusalur hrepps-
búa. Árið 1931 voru 4 skólastofur
byggðar við vesturenda hússins. Síð-
ustu framkvæmdum við núverandi
skólahús á Eyrinni var að mestu lokið
1963, en þá fóru einnig fram töluverðar
endurbætur á eldra húsnæði skólans
auk nýbyggingar.
Fyrsti kennari skólans var Helgi Guð-
mundsson læknir og síðan prestarnir
sr. Tómas Bjarnason og sr. Bjarni Þor-
steinsson. En hann er sagður hafa átt
stóran hlut að flestum framfaramálum
bæjarins í sinni tíð. Guðrún Björnsdóttir
frá Kornsá tók við skólastjórn af sr.
Bjarna árið 1909 og gegndi henni til
1918. í hennar tíð var hafin unglinga-
fræðsla. Skólastjórar barnaskólans síð-
an eru: Guðmundur Skarphéðinsson
1918-1932, Friðrik Hjartar 1932-
1973 og Jóhann Þorvaldsson 1973-
1979.
200 ÁR FRÁ SKAFTÁRELDUM
Á miðvikudaginn 8. júní voru nákvæmlega 200 ár liðin frá
t37' að Skaftáreldar hófust, og safnaðist fólk saman á
Klaustri til að minnast þess. Dagskráin hófst í Minning-
arkapellu sr. Jóns Steingrímssonar, en hann er sá maður
Sem tengdari er þessum atburðum en nokkur annar.
Sr. Sigurjón Einarsson staðarprestur hóf samkomuna á
avarpi þar sem þessa merka manns var minnst, en r.ð því
loknu opnaði forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
sýningu þá sem standa mun í kapellunni í sumar og lýsir
þróun og sögu gossins. Rut Ingólfsdóttir og Hörður
Áskelsson léku á fiðlu og orgel. Því næst voru flutt ávörp.
Dr. Þorleifur Einarsson jarðfræðingur rakti sögu eldgoss-
ins, sem er mesta hraungos sem menn hafa orðið sjónar-
vottar að og mesta hraun sem runnið hefur frá því sögur
hófust. Sr. Sveinbjörn Rafnsson sagnfræðingur rakti sögu
fólksins sem ógnirnar lifði en á því dundu ólýsanlegar
hörmungar.
Sálmur Hallgríms Péturssonar „Son Guðs ertu með sanni“
var sunginn í lokin. Mikill hátíðleiki ríkti í kapellunni þetta
síðdegi. Þarna var samankomið margt manna á öllum aldri,
bæði úr Eldþlássinu eins og V.-Skaftafellssýsla hefur verið
nefnd og víðar að. Meðal gesta voru biskupar íslands,
Pétur Sigurgeirsson og Sigurbjörn Einarsson, ásamt kon-
um sínum.
010 á ótal vegu og henta hvar sem er í
'búðinni. Fyrir börn og unglinga má
raöa einingunum saman í bókahillur,
skápa, skrifborð, svefnbekki og kojur.
NV gerð Salix barnahúsgagnanna vakti
m'kla athygli á alþjóðlegri sýningu í
Naupmannahöfn í maí. Hún er sérstak-
'e9a ætluð fyrir útflutning til Banda-
ókjanna.
Guðmundur er nú orðinn 73 ára.
Nann fylgist enn vel með öllu í fyrir-
*®kinu en synir hans hafa tekið við á
ýmsum sviðum.
Minningarkapella sr. Jóns
Steingrímssonar.
17