Æskan - 01.09.1983, Side 23
„Með því að skrifa þessa bók
vænti ég þess að hafa leyst úr
ákveðinni þörf fyrir fræðslu og upp-
tysingar um íslenska popptónlist,"
Sa9ði Jens Kr. Guðmundsson höf-
undur „Poppbókarinnar", sem
Æskan gefur út í næsta mánuði.
Jens hefur um áraraðir ritað um
Popptónlist í ýmis blöð og tímarit.
a. skrifar hann um þetta efni fyrir
Tískublaðið Líf og Æskuna.
~ Um hvað fjallar svo þessi
bók?
„I grófum dráttum skiptist hún í
|imm kafla: 1. Saga poppmúsíkur á
•slandi rakin stuttlega frá Hljóma-
tímabilinu og til dagsins í dag. 2.
Plötulisti. Listi birtur yfir allar helstu
P°ppplöturnar á þessu tímabili. 3.
Gasðalisti. 25 poppsérfræðingar
velja 10 bestu íslenskar hljómplötur
allra tíma. 4. í bókinni verða hressi-
le9 viðtöl við þekkta popptónlistar-
'Penn, s. s. Bubba Morthens,
^agnhildi Gísladóttur, Egil Ólafs-
s°n og fleiri. Þar munu koma fram
ýnisar upplýsingar um efni sem
^enn hafa ekki kunnað skil á áður.
5- Talin verða upp öll hljóðritunar-
Ver í landinu og hljómplötuútgáfur.
Jens Kr. Guðmundsson.
Einnig verða einkenni ýmissa mús-
íktegunda útskýrð. Því má bæta við
að kafli verður um söngtextagerð
og rakin þróun hennar. Sitthvað
fleira spennandi verður í bókinni og
vonandi er þar eitthvað fyrir alla.“
— Varstu lengi að skrifa þessa
bók?
„Ég hef safnað ýmsu að mér í
áranna rás en eiginleg ritun bókar-
innar hófst ekki fyrr en í apríl í vor
og lauk í byrjun ágúst. Þetta var
miklu viðameira og erfiðara verk en
ég hélt. Fyrir utan sjálfar skriftirnar
þá voru mikil hlaup eftir ýmsum
upplýsingum og enn er ég að leita
staðfestinga á réttum nöfnum og
ártölum. En þetta er búið að vera
gaman.
- Megum við eiga von á fleiri
bókum frá þér?
„Nei, ekki í þessu sama formi.
Þarna er ég búinn að gera ákveðn-
um grunnupplýsingum skil.“
- Eitthvað að lokum?
„Já, ég vil bara minna á að Popp-
bókin ætti að geta orðið gott upp-
sláttarrit fyrir allt áhugafólk um
popptónlist. Ég efa það ekki að
þessi bók á eftir að valda einhverju
fjaðrafoki. En það verður að hafa
það. Auðvitað hafa menn misjafnar
skoðanir á tónlist og tónlistar-
mönnum. Sá sem ritar svona bók
getur aldrei verið hlutlaus. Þá fyrst
er hann orðinn hlutdrægur,'1 sagði
Jens - og við hin bíðum spennt
eftir að sjá bókina.
E. I.
Gáfnapróf
Hugsið ykkur, að tveir jafnþungir
drengir sitji í tveimur rólum sem
settar eru upp eins og þið sjáið á
teikningunni. Trissurnar að ofan eru
miög liðugar, og allt verður að vera í
nánu jafnvægi. Hvað verður nú um
drenginn í rólu 2, ef drengurinn í
rólu eitt fer að róla sér?
Reynið þið, hve fljótir þið eruð að
svara þessari spurningu.
‘jngju jujaq i|3A i eipj jeóacj }saui
ja Qi>|e}y ‘ddn oaj n|pj jbBoi unq pe
oas uie nipj e sjpunjsujes pnieeupi*
-Qjiu je^jaA eunujOAS qia :jbas