Æskan - 01.09.1983, Blaðsíða 33
Anders trommuleikari.
^lásararnir fyrir dvalargesti og fleiri
°9 var þar tekið upp í „Video“ svo
^asgt væri að sýna öllum bæjarbú-
Urri á fimmtudagskvöldi.
I Dalbæ á Dalvík var okkur sömu-
leiöis tekið með kostum og kynjum.
^affi drukkum við þar og svo
spiluðu Arosblásarnir úti fyrir vist-
^enn og aðra bæjarbúa.
Um kvöldið voru svo hljómleikar í
i-undarskóla á Akureyri. Þar voru
miö9 margir áheyrendur úr öllum
Pldurshópum og klöppuðu blásur-
unum óspart lof í lófa. Þá var diskó-
tek fyrir yngri kynslóðina og gestina
en á meðan skýrði Stina frá vinnu-
^öferðum sínum fyrir áhugasama
tilheyrendur. Margar spurningar
v°ru bornar fram og áhugi hjá for-
e|drafélagi barna með sérþarfir um
Stjórnandinn, Stina Jarvð.
að koma fólki út til Vásterás í nám í
„musikterapiu". Umræður stóður til
kl. 23.30 svo dagurinn var langur
hjá blásurunum, þeir fóru á fætur
kl. 5 um morguninn.
Næsta morgun fór fólkið í inn-
kaupaferð um Akureyri og fann þar
margt nytsamlegt úr ull til gjafa og
eigin nota. Stórkostlegan hádegis-
mat borðuðum við svo á Sólborg,
heimili og dagvistunarstað þroska-
heftra á Akureyri. Þar spiluðu blás-
ararnir fyrir vistmenn og gesti við
mikinn fögnuð áheyrenda. Að því
loknu var píanóinu snarað út í bíl og
flutt inn á göngugötu bæjarins. Þar
var síðan spilað þrátt fyrir nokkra
golu, nóturnar voru bara límdar
niður.
Þá var farið í skoðunarferð um
Akureyri, borðaður kvöldmatur í
Skíðahótelinu og svo haldið á flug-
völl eftir sérstaklega vel heppnaða
ferð sem var gestgjöfunum til
sóma.
Laugardagurinn var svo hvíldar-
dagur. Þá fóru blásararnir í sund í
Laugardalslauginni. Það fannst
mörgum hápunktur ferðarinnar.
Á sunnudag var farin ferð um
Suðurlandsundirlendið í boði
Styrktarfélags vangefinna. Farið
var að Gullfossi og Geysi og get ég
ekki lýst hrifningu gesta okkar af
þeim stöðum. [ Skálholtskirkju voru
svo haldnir tónleikar. Þar er hljóm-
burður afar góður og naut tónlistin
sín vel í þessu fagra guðshúsi.
Á Selfossi bauð bæjarstjórn í mat
á hóteli staðarins og þar var svo
33