Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1983, Síða 36

Æskan - 01.09.1983, Síða 36
Hér hleypum viö af stokkunum nýrri verðlaunaþraut, sem við von- um að eigi eftir að verða vinsæl. Nú eigið þið að þekkja lönd, sem við birtum útlínur af, og með hverri mynd verða nokkrar skýringar um viðkomandi land ykkur til hjálpar. Svarið skal senda til ÆSKUNN- AR fyrir 15. nóv. næstkomandi - í hvert sinn eru veitt fimm bókaverð- laun fyrir rétt svör, og ef mörg svör berast, verður dregið um verðlaun- in. Hvað heitir landið? Land þetta liggur um þjóðbraut þvera og skiptir miklu hafi nærri því í tvennt. Alls er stærð landsins um 301.031 km2 og íbúar eru 55,2 millj- ónir. Höfuðborgin er mjög fræg í sögunni, og fyrsti stafur í nafni hennar byrjar á R. Stjórnarfar var til síðari heimsstyrjaldar konungsríki með einræðisstjórn, en upp úr styrj- öldinni hefur þar ríkt lýðræðisstjórn. Landið er allhálent og þar er að finna nokkur eldfjöll sem enn gjósa. Landbúnaður er aðalatvinnugrein landsins. Fánalitir þjóðfánans eru: Grænt, hvítt og rautt. Þjóðhátíðar- dagur er 25. apríl. íslendingar hafa mikil viðskipti við landið og þangað koma margir ferðamenn frá íslandi árlega. Hvað heitir landið? Kæra Æska! Þakka fyrir allt skemmtiefni og sögurn- ar. Ég er búin að kaupa þig í 38 ár, og mér finnst þú mjög gott blað og krakkarnir mínir hlakka alltaf til að fá þig. Þeim þykir mjög gaman að framhaldssögum og ég vona að blaðið lifi vel og lengi. Ég sendi þér mynd af heimilisdýrunum okkar. Hundurinn heitir Tyra en kisan heitir Rósa. Þau eru bestu vinir, sofa saman og leika sér saman. Þegar Rósa átti kettlinga þá passaði Tyra þá þegar hún þurfti að fara út. Kveðja Sigurborg María Boersma Jónsdóttir Hollandi. Kæra Sigurborg! Blaðið þakkar þér fyrir bréf og mynd og óskir þínar til blaðsins. Gaman væri að fá fleiri myndir af börnum og dýrum og lífinu í Hollandi. Góðir vinir. Hundurinn Tyra og kisan Rósa eru bestu vinir- sofa saman og borða og leika sér saman. Þegar Tyra þan að fara út þá eltir kisa. Kveðja til Æskunnar. KVEÐJA FRÁ HOLLANDI 36

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.