Æskan - 01.09.1983, Page 41
heimilisfang agnethu
Ágæti Æskupóstur!
Geturðu sagt mér hvaöa heimilisfang
Agnetha Fáltskog hefur?
Kær kveðja,
Imma.
Imma
Poppstjörnur vilja gjarnan losna
við að fá aðdáendabréfin send heim
ef það er það sem þú ert að hugsa
um að gera, en hins vegar geturðu
reynt í þessu tilviki að skrifa til
hljómsveitarinnar Abba. Utaná-
skriftin er: Abba, 2 Sheep Street,
HighWorth, Swindon Wiltz, England.
MEIRA UM TOMMA OG JENNA
Kæra Æska!
Ég er áskrifandi að Æskunni. Ég les
hana alltaf og einnig Æskupóstinn. Ég
ias í Æskupóstinum um daginn að ein
stelpa sagðist ekki vera hrifin af
Tomma og Jenna. Ég er alveg sam-
máia henni því ég á litla systur sem er
að verða tveggja ára. Hún grætur alltaf
Þegar hún horfir á þá.
Ég vil láta banna Tomma og Jenna
Því það er svo mikið ofbeldi í myndinni.
Vonandi eru fleiri sammála okkur.
Ekki birta nafnið mitt.
Ein sem er áskrifandi.
Pökkum bréfið. Fleiri mættu skrifa
°9 segja okkur álit sitt.
UM ÆSKUNA
OG BARNAPÖSSUN
Ágæti Æskupóstur!
Mig langar að spyrja nokkurra
spurninga varðandi Æskuna og fleira.
Hér kemur runan:
1 ■ Er félagsgjald í bókaklúbbi Æskunn-
ar? Ef svo er hvað er það mikið?
Hvernig verð ég félagi?
2- Kemur Æskan út mánaðarlega eða
á 2ja mánaða fresti?
3- Eru teinamöppur merktar Æskunni
táanlegar? Ef svo er, hvar fást þær?
4- Hvað finnst Æskupóstinum sann-
9jamt að 11 ára stelpa fái í tímakaup
fyrir að passa 1 árs krakka?
5- Ég er 11 ára og 151 cm á hæð.
Hvað finnst þér hæfileg þyngd fyrir
mig?
Nú er ég búin að tæma spurninga-
listann og vona að fá svar bráðlega.
Með bestu kveðju,
Á. G.
P. s. Hvernig er skriftin?
Á. G.
1. Um þetta er fjallað á öðrum stað í
blaðinu.
2. Æskan kemur út níu sinnum á ári.
Hún kemur út mánaðarlega nema
um sumarmánuði, þá er maí-júní
blað saman og júlí-ágúst og fyrir jól
kemur nóv-des. blað.
3. Teinamöppur merktar Æskunni
fást í Bókabúð Æskunnar við Lauga-
veg 56, síma 1 73 36. Þær eru sendar
út á land gegn póstkröfu.
4. Við þorum ekkert að segja um
það, nema að kaupið á að vera það
hátt að barnapían verði ánægð. Þá
verður hún væntanlega ánægðari í
starfi sínu.
5. Hvað finnst þér? Aðalatriðið er
að þú lítir hressilega út og sért vel
hraust.
— Skriftin er ágæt og bréf þitt
snyrtilegt.
ÖNNUR ROKKMYND?
Kæra Æska!
Ég ætla að byrja á því að þakka fyrir
gott blað. Mér finnst Æskan alltaf verða
betri og betri. Svo eru hér nokkrar
spurningar:
1. Hvað er Siggi pönk gamall?
2. Verður gerð önnur Rokk í Reykjavík
kvikmynd?
3. Hvar er ódýrast að taka upp plötu
(stóra)?
Ég vona að þið getið svarað þessu.
Kveðja.
pönkari
Við þökkum hlýleg orð um Æskuna.
Siggi pönkari mun vera tvítugur.
Það eru engin áform uppi um fleiri
Rokk í Reykjavík kvikmyndir. Hins-
vegar verða kunnir popparar notaðir
í flestum væntanlegum íslenskum
kvikmyndum. Stuðmenn verða t. d. í
einni mynd. Bubbi í annarri. Einhver
hluti Þeys verður í þeirri þriðju.
Hljómsveitin Tíbrá frá Akranesi
verður í þeirri fjórðu o. s. frv. Verð á
hljóðritunartímum eru svo síbreyti-
legt að það er eiginlega ekki hægt að
gefa það upp í blaði sem er unnið
svona fram í tímann. Hinsvegar er
að koma á markaðinn Poppbók. í
henni verður listi yfir öll hljóðritun-
arver á ísiandi ásamt símanúmerum
þeirra. Þá er ósköp einfalt að hringja
í þau og fá taxtann uppgefinn.
TIL LESENDA ÆSKUPÓSTSINS
Það er gaman hvað undirtektirnar
við Æskupóstinn hafa verið góðar.
Enn eigum við nokkur bréf sem ekki
hafa komist að. Vonandi verða bréf-
ritarar þolinmóðir. Það er rétt að
taka fram að Æskan er unnin 6-8
vikur fram í tímann og þess vegna
er nokkurn veginn víst að bréf ykkar,
skrifuð með nýjasta blaðið i höndun-
um, getur ekki birst í næsta blaði á
eftir. Þegar þið lesið t. d. þessar lín-
ur þá er búið að ganga frá öllu efni í
októberblaðið.
Þegar við veljum bréf til birtingar
höfum við tvennt til hliðsjónar: Fullt
nafn ykkar og heimilisfang verður
að fylgja með, þótt þið óskið dul-
nefnis. Það er kurteisissiður. Hitt
sem ræður vali bréfs er innihaldið.
Þau mega ekki öll fjalla um svipað
efni hverju sinni. Þá verður enginn
fjölbreytni í Æskupóstinum. Stund-
um koma spurningar í bréfum sem
búið er að svara og þá erum við ekki
að svara því sama aftur.
Við lesum öll bréf sem blaðinu
berast. Þið skulið endilega halda
áfram að skrifa okkur.
Hér er svo utanáskriftin. Með
bestu kveðju.
Æskan
b/t Æskupósturinn
Pósthólf 14
101 Reykjavík.
41