Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1983, Page 51

Æskan - 01.09.1983, Page 51
Flugdrekinn sem snýst Flugdrekinn, sem ég ætla að segja ykkur frá núna, er settur til flugs alveg e|ns og aðrir flugdrekar, en þegar hann er kominn upp snýst hann á fleygiferð alveg eins og vindmylla. Því meira sem r°kið er því hraðar snýst hann. Og ykk- Ur er óhætt að trúa, að það er gaman aö sjá það. það er auðvelt að smíða þennan flugdreka og það gildir einu hvort hann er stór eða lítill - þess vegna ætla ég ekki að tiltaka nein mál á teikningunni. Qrindin er gerð úr þremur, jafnlöngum treiistum. í hvern lista miðjan er borað 9at- Listarnir eru lagðir saman eins og ^yndin sýnir og í gegnum götin á þeim ar settur dálítill hólkur, með mörgum h°kum í hvorn enda, sem þið getið séð a mynd III. Hólkurinn á að vera svo an9ur, að endarnir standi aðeins út úr ls*unum, þegar þeim hefur verið þjapp- a^ saman eins og hægt er. Hökin á nólksendunum eru síðan beygð út á við hamri báðumegin og síðan eru 'starnir settir í réttar stellingar, svo að Sania fjarlægð verði milli allra 'staendanna. Síðan er hert á hökun- UrTL þannig að listarnir færist ekki úr skorðum. Nú eru sex smánaglar negld- lr 1 listaendana og þeir tengdir saman seglgarni, sem bundið er um nv®m nagla og á að vera strítt á Se9lgarninu. Og þá er grindin búin. Þá er næst að fóðra hana með lér- eftsPjötlu, sem helst á að vera hvít og Punn. þú leggur pjötluna á borð og 9r|ndina ofan á og sníður hana svo. If,u á mynd I. Á þær hliðar grindarinn- ar, sem merktar eru með x er efnið sniðið beint og á að ná svo sem 2 sm. út fyrir grindina; Þessir jaðrar eru svo faldaðir utan um seglgarnið . Á hinum þremur hliðunum er pjatlan sniðin eins og sýnt er á myndinni, þar sem merkt er með A og sýnt með punktalínunum. Jaðarinn er svo faldaður inn á pjötluna eins og myndin sýnir, svo að einskonar pokar myndast. Og til þess að gera þá víðari í opið er pjatlan klipt inn með spýtunum, auðvitað án þess að klippa seglgarnið sundur, því að það heldur pokanum opnum. Það er ekkert á móti því að lita pokana, t.d. rauða, því að þá verður flugdrekinn fallegri. Nú er eftir að koma stillipinna drek- ans fyrir. Það er spýta, álíka löng og spýturnar í grindinni. Þú setur á hana merki eins og þú ætlaðir að skifta henni í þrjá hluta og borar gat á hana við annað merkið, ofurlítið minna en gatið á hólkinum, sem þú festir grindinni saman með. Gegnum þetta hvorttveggja setur þú ás, sem á að geta snúist í hólknum. Mynd II sýnir þverskurð af þessu. Svarta strikið er drekagrindin en það hvíta er stillipinninn, og þarf helst að vera laus ró á milli til þess að ekki leggist hvað að öðru. Svo er stillisnúran fest eins og sýnt er með þríhyrningnum á myndinni og venjulegur drekahali úr pappír og seglgarni festur á stillipinn- ann og þá er flugdrekinn fullgerður. Það er nauðsynlegt að drekinn snúist eins liðugt og hægt er á ásnum og þessvegna er gott að bera á hann vaselín. - Hvenær fer næsta lest, herra stöðvarstjóri? - Eigið þér við vöruflutningalest- ina? - Náunginn hélt að hann gæti sloppið út þegar hann viidi... - Eg sest ætíð við gluggann. Þar fær maður stærstu skammtana! 51

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.