Æskan - 01.07.1986, Blaðsíða 9
áóðan dag, góöir hlustendur Wð eruö að h!us a a
Vinsældalista hlustenda Rasar i.
Teygt úr sér á milli kynninga a meöan tónlistin dunar
telpur
^Þhuviðtali
takk!
e§ Ijósamaður hjá Start. Ég ferðaðist
Þeim felögum víðs vegar um land-
1 rúm tvö ár. Það eru mjög eft-
jj.ttiinnilegir tímar. Þrátt fyrir stundum
i § og ströng ferðalög leiddist mér
, 0rei- Það var stemmningunni að
^kka. Eiríkur Hauksson og Pétur
_ östjánsson voru báðir í hljóm-
Syeiti
mni. Þeir voru miklir gárungar og
*u upp á ýmsu frumlegu. Það kom
undum fyrir að þeir kipptu niður um
§ buxunum úti á víðavangi og hlupu
eo þær ^ hælunum, skrækjandi, yfir
. 1 °g hæðir. Einu sinni hljóp Pétur
ett yfir götu á Akureyri með þær á
^ltinum. Þetta var í myrkri og
þ unski var hann j?ess vegna svona
gaður. En bflstjóri rútunnar sem við
rum með var fljótur að taka við sér
§ 'ýsti hann vel upp með háu ljósun-
^ °g flautaði mikið til að vekja at-
pVgli vegfarenda á ftonum. Já, þeir
Qetur og Eiríkur voru miklir grallarar
^ eru það kannski enn (Ég veit þeir
^r°sa þegar þeir lesa þetta). Við félag-
þv.lr erum enn að hlæja að mörgu af
’ Sem þeir tóku upp á.
Þegar lítið var að gera hjá Start um
^ a Vur ég ljósamaður hjá Mezzo-
þerte- Maður kynntist mörgu fólki í
I Ssum störfum og þau hafa áreiðan-
ga verið góður jarðvegur fyrir starf
nitt á Rás 2 síðar.“
DaU í lukkupottinn
A meðan Gunnlaugur var í húsa-
smíðanáminu vann hann við ýmsar
stórbyggingar, svo sem Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti og Borgarleikhús-
ið. Vorið 1983 lauk hann sveinsprófi.
Um haustið fór hann að starfa hjá
fyrirtæki föður síns. Ári seinna datt
hann í lukkupottinn hjá Þorgeiri Ást-
valdssyni og fékk að gera tvo rokk-
þætti sem teknir voru upp á band.
Annar þeirra var sendur út í nóvember
en hinn hefur ekki ennþá farið í loftið.
30. desember fékk hann svo að spreyta
sig í fyrsta sinni í beinni útsendingu á
Næturvakt Rásar 2.
„Ég var dálítið kvíðinn fyrir þessari
fyrstu beinu útsendingu,“ segir Gunn-
laugur. „Ég vissi að ég yrði ég að vera
fljótur að hugsa og bjarga mér út úr
því ef eitthvað færi úr böndunum. En
svo var ég farinn að slaka á undir lok
næturvaktarinnar. Margir halda að
bein útsending sé auðveld. Hún virðist
einföld út á við — en hún er samt
erfið. Ég segi stundum við vini mína
að tveggja tíma bein útsending sé oft
erfiðari en 12 tíma mótauppsláttur. Ég
hef reynslu af hvoru tveggja."
í júní í fyrra tók Gunnlaugur svo við
kynningu á vinsældalistanum á sunnu-
dögum og sér enn um hana. í sumar
bauðst honum að vinna jafnframt við
Morgunþáttinn tvo daga í viku og tók
því. Við spurðum hann hvort ekki væri
mikil vinna að undirbúa þættina?
„Jú, það er oft mikið álag á manni.
Útvarpsmenn eru nefnilega með hug-
ann við þáttagerðina allan sólarhring-
inn. Maður er alltaf að leita að nýju og
skemmtilegu efni. Ég held að verk-
þekkingin frá smíðastarfinu komi mér
að góðum notum í útvarpinu. Það
mæðir mikið á skipulagsgáfunni þegar
maður er að undirbúa einn þátt. Allt
þarf að tímasetja nákvæmlega, tónlist
og talað efni, svo að sem minnst fari
úrskeiðis í útsendingunni og allt efnið
komist að. En auðvitað fara hlutirnir
stundum öðruvísi en ætlað var. Þá er
bara að slá á létta strengi við hlustend-
ur og brosa að mistökunum.“
- Er aldrei erfitt að senda út?
„Jú, það er erfitt þegar maður er
ekki í essinu sínu. Svo er ekki heldur
gott að vera illa sofinn.“
- Ertu ekki alveg hættur að finna
fyrir taugatitringi í talstofu?
„Jú, ég losnaði fljótlega við hann.
Aftur á móti losnar maður aldrei við
dálitla spennu. Hún er líka nauðsynleg
til að halda manni við efnið. Ég hef oft.
Myndir: Heimir Óskarsson
9