Æskan - 01.07.1986, Qupperneq 47
Tekur Helga Iagið?
Litla stundin verður með dálítið
. reyttu sniði. Eingöngu verður sýnt
'nnlent efni og það endursýnt á föstu-
a°gum. Umsjónarmenn Litlu stundar-
jnnar verða Agnes Johansen, sem er
°rnum að góðu kunn, og söngkonan
Pjóðþekkta, Helga Möller. Stóra
stundin, sem aðallega er ætluð stálp-
°um börnum, verður á dagskrá
þriðja hvern laugardag. Umsjónar-
menn: Adolf E. Petersen, Elísabet
Brekkan og Erla Rafnsdóttir.
Áður en langt um líður verður kvik-
myndin Elías og örninn frumsýnd í
sjónvarpinu. Guðrún Sederhólm
samdi söguna en Viðar Víkingsson
skrifaði kvikmyndahandrit. Þessi
mynd er framlag íslands í samnorrænu
verkefni og verður einnig sýnd annars
staðar á Norðurlöndum. Einnig má
geta þess að kvikmyndin um þá vin-
sælu félaga, Jón Odd og Jón Bjarna,
verður endursýnd á jóladag. Eftir ára-
mót er fyrirhugað að sýna Kardi-
mommubæinn, norskan teiknimynda-
flokk, eftir Thorbjörn Egner. Hann
teiknaði myndirnar og er jafnframt
höfundur þessa heimskunna leikrits.
Jólastund verður bæði fyrir ung og
stálpuð börn. Litla jólastundin lengist
um klukkustund frá því sem áður var
og verður tvær stundir í stað einnar.
Einnig verður bryddað upp á ein-
hverju skemmtilegu í Stóru jólastund-
inni sem verður 27. desember.
Unglingar fá líka sinn skammt í
vetrardagskránni. Áður höfum við
nefnt Stóru stundina. Fastir þættir
halda áfram: Unglingarnir í frumskóg-
inum, Poppkorn og Rokkararnir geta
ekki þagnað.
Það verður sem sé af nógu að taka
af efni fyrir börn og unglinga í sjón-
varpi Ríkisútvarpsins í vetur.
Síðar segjum við svo frá því dag-
skrárefni Islenska sjónvarpsfélagsins
sem ætlað er börnum og unglingum.
47