Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1986, Blaðsíða 42

Æskan - 01.07.1986, Blaðsíða 42
OG KRAKKARNIR I ORALANDI Hann lygndi með útfallinu. Björgunarsveitarmenn eyddu nótt- inni í leit undir Hamrinum. Þegar lýsa tók af degi fundu þeir Einar, sæmilega á sig kominn, í gúm- bátnum. Hann morraði upp í land- steinum að heita mátti. Um sama leyti var kallað á þá í talstöðinni og sagt að lík Jónasar og Pálma hefðu fundist suður á söndum. Upp af Háaskeri. Héðinn varð hvumsa. En Teini? spurði hann. Hann er á leið inn í sjúkrahús. Þú átt við að hann sé lifandi? Já, síðast þegar ég frétti. Hver fann hann? Manni og Ólöf. Þau fóru í birtingu og virðast hafa ekið beint á strandstað. Ja, nú stendur upp á mig, muldraði Héðinn. Ég ætla bara að vona að Marteinn Jónsson þrauki þetta af svo ég eigi kost á að gera yfirbót. Ha, ég heyri ekki til þín. Það var ekkert. Við erum að leggja af stað. Fjórum árum síðar kvaddi Manni móður sína. Hann var að fara til náms í Stýrimannaskólanum. Hann stóð í anddyrinu og beið eftir bílnum, hávaxinn unglingur með bros- milt yfirbragð. Hann kyssti mömmu sína, óvenju alvarlegur í bragði. Við pabbi vorum búnir að koma okkur saman um þetta, sagði hann. Þú veist það, mamma. Stýrimannaskólinn var alltaf takmarkið. Já, ég hef vitað það nógu lengi til að sætta mig við það. EFTIR JÓNDAN Ósköp er Héðinn seinn. Ætli jepp- inn sé nú bilaður? Nei, Teini var að þvo hann. Sann- aðu til, drengurinn verður ekki í rónni fyrr en hjólbarðarnir eru jafnhreinir og sætið þitt. Manni hló. Hvar er hin taskan þín? spurði Ólöf. Manni rankaði við sér. Já, hún er inni. Hann sótti töskuna og setti hana hjá þeirri sem fyrir var í anddyrinu. r Hvenær ætlarðu að venja þig a þessu kæruleysi, Manni? Þú lest 0 mikið af ævintýrasögum. Nú hætti ég því, ég verð að sinna námsbókunum. Vertu ekki svona áhyggjufull út af mér, mamma min- hugsaðu nú vel um sjálfa þig- ^8 Teina. Ég þarf víst ekki að hafa áhyggjur a, Teina. Héðinn hefur hann hjá sér 1 vetur eins og endranær. Og Vænu? Líka. Héðinn hefur sannarlega b®1 fyrir það sem hann telur sig misgert. Það var ekki von að hann tæki mar á mér. Ólöf leit á son sinn. Svo sagði hún hikandi: Þegar við sóttum hann Teina suðut á sanda um árið... Ég hef oft futða mig á því hvað þér þótti það allt sjál sugt. . Já, eftir heilahristinginn fannst m enginn munur á órum og veruleika- Ég skil það Manni. Þú varst ek ’'* nema á þrettánda árinu... Nei, heyrð væni minn, ætlarðu ekki að hafa trefn- Róleg mamma, hann er niðn tösku. Já, ég hef oftar en einu sinni velt þvl fyrir mér hvað þú varst öruggur- hélt þú hefðir gefist upp þegar hvor 1 ég né Héðinn trúðum þér. Nei. Mér kom ráð í hug. Að fleyta Teina. Ég var bálvondur út í Evu °§ Agna svo ég reif þau upp á rassgatmu- Einhvern veginn var mig farið 3 gruna að þau væru bara til í mínuirl eigin hugarheimi, þess vegna ætti eg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.