Æskan - 01.11.1986, Page 10
Prinsessudrauimirinn
- Ertu ánægð með skrif fjölmiðla
um þig?
„Já, ég er það. Það var aldrei skrif-
að neitt neikvætt um mig. Ég held að
enska pressan hafi verið miður sín yfir
því að finna ekkert til að gagnrýna mig
fyrir. Ég er ánægð með hvað ég slapp
vel frá öllu slúðri — enda var ekkert
hægt að slúðra um mig.“
- Var aldrei erfitt að þurfa að
brosa og tala við marga á erlissömum
dögum?
„Nei, ekki fann ég fyrir því. Maður
hefur lært svo vel að umgangast fólk.“
Allíaf í prinsessuleik
Hólmfríður hefur átt heima í Garða-
bænum frá 3 ára aldri. Afmælisdagur
hennar er 3. júní. Talið berst næst að
æskuárunum.
„Þegar ég var yngri ætlaði ég alltaf
að verða annað hvort hárgreiðslu-
meistari eða flugfreyja,“ segir hún og
bætir við að þetta hafi verið óska-
draumur flestra stelpna og sé kannski
enn.
„Þegar ég var stelpa var ég oft í
prinsessuleik,“ heldur Hófí áfram.
„Ég klæddi mig í prinsessuföt og varð
að notast við pappakórónur. Það má
segja að prinsessudraumurinn hafi svo
ræst í London í fyrra og þá fékk ég
meira að segja alvöru kórónu.“
Þegar Hófí var 15 ára fór hún til
Englands í enskuskóla. En tekur fram
að hún hafi lítið sem ekkert lært þar.
Síðar fór hún í málaskóla í Þýskalandi
og þar endurtók víst sama sagan sig;
hún lærði lítið. Eftir grunnskólanám
fór Hófí í Verslunarskólann og tók þar
verslunarpróf tveim árum seinna. Þar
næst fór hún í Fósturskólann og eftir
að hún lauk námi hefur hún starfað á
barnaheimilinu á Vífilsstöðum.
„í upphafi fósturnámsins var ég ekki
viss um að ég væri á réttri leið en svo
þegar á leið jókst áhugi minn og þetta
er eitt skemmtilegasta starf sem ég get
hugsað mér,“ segir hún. „Það er svo
gaman að vinna með börnum því að
þau gefa manni svo mikið. Enginn
dagur á barnaheimilinu er eins. Það
gerist alltaf eitthvað nýtt á hverjum
degi.“
En hvað um launin? Bregður henni
ekki við að hverfa frá vel borguðu
starfi og fara aftur að lifa af fóstru-
launum?
Hólmfríður svarar þessari spurningu
að bragði. Hún segir að peningarnir
séu ekki allt, hún haldi líka áfram að
starfa með Módeli ‘79 en þar hefur
hún verið félagi í þrjú ár. Hún mun
líka njóta góðs af því að hafa verið
Ungfrú heimur og mun áreiðanlega fá
mörg verkefni þess vegna.
Að síðustu spurði ég Hófí hvort hún
væri farin að hlakka til jólanna.
„Já, það er ég,“ sagði hún. „Des-
embermánuður er einmitt skemmti-
legasti tíminn á barnaheimilinu þegar
allt snýst um jólin. Ég hlakka mikið til
að taka þátt í jólaundirbúningnum
með „börnunum mínum“.“
Og blaðamaður er ekki heldur í
neinum vafa um að börnin hlakka ekki
síður til að fá hana aftur til starfa eftir
árs fjarveru. Nú hafa þau ekki bara
endurheimt hana Hófí sína heldur að
auki fengið alvöruprinsessu á dag-
heimilið. Þau eiga áreiðanlega eftir að
spyrja hana mikið um kórónuna sem
þau hafa séð hana með í sjónvarpinu
og á myndum í blöðum...
Viðtal: Eðvarð Ingólfsson
Myndir: Heimir Óskarsson
Hólmfríður Karlsdóttir í opnuviölali
10