Æskan - 01.11.1986, Side 30
Pabbalýsing
Kæra Æska.
Ég hef áður skrifað þér lýsingu á
mömmu minni. Núna langar mig til að
lýsa pabba mínum dálítið:
Pabbi minn er alveg frábær að mínu
mati. Hann segir alveg magnaðar
skrýtlur. En stundum er hann alveg
hræðilega utan við sig. Til dæmis ef
maður spyr hann að einhverju þegar
hann er að lesa dagblað þá svarar hann
spurningunni eftir svona 5 mínútur. Þá
er maður oftast búinn að gleyma um
hvað maður spurði. Hann er alltaf
miklu hressari en mamma.
Pabbi minn kann ekki mikið fyrir
sér í eldamennsku. Þegar mamma er
ekki heima hefur hann oftast skyr. Og
út í skyrið setur hann vanilludropa,
kakóduft og rúsínur. Okkur Svönu
systur finnst hann alveg rosalega klár
og gera alveg frábært skyr. Svo er
alveg stórkostlegt að horfa á hann
borða. Hann hefur t.d. tómatsósu út á
skyr, lýsi og aldinmauk út á fisk.
Það væri hægt að skrifa heila bók
um hann en ætli ég láti þetta ekki gott
heita.
Snceja.
Fleiri skrýtlur
Halló, Æskupóstur.
Hér sendi ég þér nokkra brandara:
„Pabbi, getum við ekki fengið hund
um jólin?“
„Nei, ætli við höfum ekki rjúpur
eins og venjulega.“
„Þjónn, hafið þér froskalappir?“
„Nei, ég geng alltaf svona.“
Eiginkonan: Alveg er hún mamma
furðuleg! Nú heimtar hún að vera
brennd þegar dagar hennar eru taldir.
Eiginmaðurinn: Hringdu og segðu
henni að undirbúa sig. Ég skal fara
með eldspýturnar til hennar.
Hjördís Guðrún Friðriksdóttir 12 ára.
Kæri Æskupóstur.
Ég á heima fyrir austan og langaði
til að senda ykkur tvær skrýtlur.
„Hvaða óskaplegur hávaði er þetta í
íbúðinni við hliðina á okkur?“
„Þetta er nú bara hann Hannes, ná-
granni okkar, að tala við sjálfan sig.“
„Hann þarf nú líklega ekki að öskra
svona ef hann er að tala við sjálfan sig-
„Jú, hann heyrir svo ofsalega illa."
„Hefurðu heyrt um að fangelsis-
stjórinn sé kominn á bak við lás og
slá?
„Hvað segirðu, maður? Hvernig
vildi það til?“
„Hann ætlaði að sýna tengda-
mömmu sinni hvernig rafmagnsstóll-
inn væri notaður.“
Lárus Páll Erlingsson
„Þekkirðu manninn með tréfótinn
sem heitir Kalli?“
„Já, en hvað heitir hinn fóturinn?"
Óli segir við mömmu sína:
„Ég veit af hverju rjómi er dýrari en
mjólk?“
„Nú!“
„Já, það er erfiðara fyrir kýrnar að
sitja á litlu fernunum.“
Hún hafði tennur eins og boðorðin
tíu - allar brotnar!
Sendandi: Gulla 13 ára,
Gnoðarvogi 30, Rvík.
Draumaprinsar
Minn draumaprins er mjög dökkur
á hörund, dökkhærður og með brun
augu. Hann er mjög skemmtilegur,
hefur áhuga á tölvum og knattspyrnu.
Hann er í áttunda bekk í Seljaskóla í
Breiðholti og fyrsti stafurinn í nafm
hans er S.
Ein úr Breiðholti
Kæra Æska. Ég vona að þú birtir
þessa lýsingu á prinsinum mínum-
Hann er dökkhærður með brún augu-
Hann er 11 ára og á heima rétt hja
sundlaug. Hann er mjög fyndinn og
heitir Ómar.
Fríða
ÆSKUPÓSTURINN
30