Æskan - 01.11.1986, Page 61
TONLISTARKYNNING
Umsjón: Guðrún Jónasdóttir
Frcinkie Goes
To Holluuiood
Hljómsveitina Frankie Goes To Holly-
wood skipa þeir Holly Johnson og
Paul Rutherford söngvarar, Brian
Nash gítarleikari, Mark OToole
bassaleikari og Peter Gill trommu-
leikari. Hún er frá Liverpool eins og
svo margar aðrar og var stofnuð 1982.
Hpphaflega átti Frankie ekki að vera
hljómsveit heldur nokkurs konar
kabarett sem átti að hneyksla fólk svo
að um munaði.
Það var söngvarinn Holly Johnson
sem átti hugmyndina að þessu og bauð
félaga sínum Paul Rutherford að vera
neð. Páll og Halli voru þungamiðja
sýninganna með því að hafa í frammi
einhverja ósiðlega tilburði og á bak
við þá stóðu þeir Brjánn, Markús og
Pétur. í fyrstu komu þeir aðeins fram í
•okuðum samkvæmum eða hálflokuð-
um og þeim var veitt fremur lítil
athygli.
Þá gengu þeir á milli hljómplötuút-
gefenda með uppptökur af laginu Re-
lax og virtist sem enginn nennti að
hlusta á þá. Það var ekki fyrr en
þeir í Frankie buðust til þess að flytja
Relax í breska tónlistarþættinum The
Tube að skriður komst á málin. Þar
tók plötuútgefandinn Paul Morley þá
upp á sína arma en það var hann sem
uppgötvaði meðal annars Culture
Club og Joy Divison.
1983 kom svo út fyrsta smáskífa
Frankie og bar heitið Relax (Afslöpp-
un). Hún féll nú ekki alveg í kramið
hjá útvarpsþulum í Bretlandi en þeir
voru á einu máli um að jafnhörmulegt
lag hefði aldrei heyrst áður. En hlust-
endur voru ekki á sama máli og lagið
þaut beint í fyrsta sæti breska listans.
Síðan komu út tvær smáskífur sem
vöktu nánast enga athygli.
í árslok 1984 kom svo út fyrsta
breiðskífa þeirra, Welcome To The
Pleasesuredome. Eftir útkomu hennar
þurfa líklega fáir að spyrja um fram-
haldið. Á þessari plötu er til dæmis
lagið Two Tribes (Tveir kynþættir)
sem sat í tíu vikur í toppsæti breska
listans og The Power Of Love (Máttur
ástarinnar) sem naut þó nokkurra
vinsælda. Á plötunni Welcome To
The Pleasesuredome er líka umdeilda
lagið Relax og fleiri önnur góðkunn
' lög.
Myndbönd Frankies hafa yfirleitt
verið mjög umdeild og voru til dæmis
sýningar á laginu Two Tribes víða
bannaðar.
Að lokum langar mig til að fræða
ykkur ögn um það hvernig nafnið
Frankie Goes To Hollywood er til-
komið. Árið 1960 var leikara frá
Liverpool boðið að fara til Hollywood
að leika í kvikmynd á móti Marilyn
Monroe og þar sem þessi leikari hét
Frankie Vaughan fékk hann í bresku
blöðunum viðurnefnið Frankie Goes
To Hollywood.
61