Æskan - 01.04.1987, Qupperneq 24
Don Johnson
Bréf úr Steinsstaðaskóla
Hæ, kæra Æska.
Ég heiti Berglind og á heima í Lýt-
ingsstaðahreppi. Ég ætla að segja ykk-
ur lítillega frá skólanum sem ég er í og
félagslífinu þar. Hann heitir
Steinsstaðaskóli og það eru fimmtíu
nemendur í honum. Félagslífið er gott.
Diskótek eru haldin við og við og
þorrablót og árshátíð eru á hverjum
vetri.
Mig langar til að koma með hug-
mynd í Æskupóstinn. Hvernig væri að
þið færuð að vera með ljósmyndasam-
keppni? Svo langar mig til að biðja
ykkur um að birta veggmynd af Brúsa
Springsteen.
Að síðustu er hér einn brandari:
— Hver hefur eiginlega kennt þér
að blóta svona? spurði mamman dótt-
ur sína.
- Það var jólasveinninn, svaraði sú
stutta.
- Ha, jólasveinninn?! spurði
mamma undrandi.
- Já, þegar hann datt um jólatréð í
stofunni!
Með bestu kveðju,
Berglind
Hundavinafclag
Kæra Æska!
Mig langar til að biðja þig um að
birta þetta bréf því að ég er mikill
hundaaðdáandi. Af þeirri ástæðu hef
ég mikinn áhuga á því að stofna
hundavinafélag. Þeir sem hafa jafn-
mikinn áhuga á því og ég ættu að
skrifa mér. Heimilisfang mitt er:
Katrín Grétarsdóttir,
Tómasarhaga 17,
107 Reykjavík.
„Hundavinaklúbburinn Kollý“
Fjölmennum í klúbbinn! Þökk fyrir
birtinguna!
Katrín
Bréf frá Höfn
Kæri Æskupóstur!
Við ætlum að segja dálítið frá félags-
lífinu á Höfn. Að okkar mati er það
ekki mjög gott, að minnsta kosti ekki
fyrir 6. bekk. Diskótek eru u.þ.b.
tvisvar í mánuði. I 7. bekk og ofar er
mjög gott félagslíf. Jæja, nóg um það.
Að lokum ætlum við að lýsa
draumaprinsunum okkar. Annar
þeirra heitir Kalli. Hann er 150 sm
hár, ljóshærður og góður í íþróttum.
Hinn heitir Kiddi, skolhærður, 152 sm
á hæð og líka góður í fþróttum. Þeir
eru báðir í 6.-A og eru æðislega sætir
og skemmtilegir.
Þökk fyrir gott blað.
Tvœr á Höfn
Bréf frá Halla Valla
Kæra Æska!
Ég er kallaður Halli Valli og á
heima í Sandgerði. Ég er að læra að
lesa og vil helst leysa sjálfur allar
þrautirnar í blaðinu en mamma hjálp-
ar mér því að ég er svo fljótfær. Við
eigum öll Æskublöð síðan mamma var
9 ára svo að ég hef nóg að lesa þegar
ég verð læs. Mamma skrifaði þetta
bréf fyrir mig en ég sagði henni til.
Vonandi vinn ég í einhverri þrautinni
bráðlega. Stóra systir mín hefur stund-
um unnið bækur hjá ykkur.
Bless,
Halli Valli
ÆSKUPÓSTURINN
Kæra Æska! ^
Bestu þakkir fyrir kynningyna
Don Johnson í síðasta blaði. Eg
satt að segja orðin langeygð eftir
sjá hana. Það vildi svo til að sama
og ég fékk Æskuna í hendur var
búin að skrifa kynningu á Don sem »
ætlaði að senda ykkur. En aU^V!^u
birtið þið ekki tvisvar sinnum s° ^
kynninguna! Mér datt því í hug .
taka út úr greininni minni þau at
sem ekki voru nefnd hjá ykkur ?
senda Æskupóstinum.
Don Johnson heitir fullu nafni
ald Wayne Johnson. Hann fæddist
desember 1948 í bænum Flat Cree
Galena í Missouri í BandaríkjunU ,
Hann er 180 sm á hæð með skol11
hár og blá augu. Systkini Dons he'
Jamie Skylar, Greg, K.C. og DeanIt
sem er hálfsystir hans. n
Don lauk stúdentsprófi og fór S1
í leiklistarskóla. Fyrsta hlutver r>
sem hann fékk í leikriti, var í Hamin&|j
an og augu manna (Fortune ^
Men‘s Eyes). Það var 1968.
kvikmyndin sem hann lék í hét TO
garður Stebba sæta (The Magic ya.(
den of Stanley Sweatheart). Pa
fóru hjólin að snúast og M.G.M-
myndafyrirtækið bauð honum sa ^
ing. Þegar sá samningur rann ut
hann til Los Angeles (Englaborgaf) -
þar var hann næstum dáinn úr hung .
Síðan fór lukkuhjólið að snuaSt/ni
ur. Don fékk hlutverk í kvikmý0
og stuttum þáttaröðum. Árið
dun1
1979
kið-
honum fyrsta stóra hlutver
ir í myndinni, Héðan til eil*
bauðst
Það var
(From here to Eternity).
Auk þess að vera leikari er
tónlistarmaður. Hann hefur samíð
lög með Dickey Betts. 1986 lét
gamlan draum rætast og gaf út plótutj,
Hjartslátt (Heartbeat). 1984
hann aðalhlutverkið í Miami
glæpaþáttunum og varð vinsæll1
nokkru sinni fyrr. Hann er söngv*
lagasmiður og leikari og fær tnl
hjörtu ungra stelpna til að slá hra
Edda Laxdal
pon
fékk
Vice
efl
-vafi’