Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1988, Side 27

Æskan - 01.12.1988, Side 27
Fötluð börn Jól Veðraskipti Lífið Við skulum tendrajólaljós og biðja guð um Jrið handa okkur öllum sem lijum hér ájörð. (16.12 1987) Þegar rignir kemur leiði í sál mína ég þrái sól. EJtir rigningu koma bjartir dagar með sól og grasi sem rigningin hejur gejið grænan lit. Þá ueit ég að hún er líka undur líjsins og ég uerð glöð. Ég hugsa um líjið. Líjið er eilíjt. Mennjæðast, ajtur og ajtur. Líjið er hringrás. (30.5 1988) (14.8 1988) í fyrravetur vorum við með sérstakan þátt í Æskunni um fötluð börn. Við töluðum við þau og kynntum að- stæður þeirra. í þessu blaði tökum við upp þráðinn að nýju, segjum lítillega frá fötlun 16 ára stúlku, Ásdísar Jennu Ástráðsdóttur, og birtum ljóð eftir hana en hún valdi þau sérstaklega fyrir Æskuna. Þó að hún sé ung að árum hafa áður birst ljóð eftir hana í blöðum og tímaritum. Hún á eitt ljóð í Ljóðaárbók 1988 sem kom út hjá Almenna bókafélaginu í vor og það er mikil við- urkenning fyrir hana sem ljóðskáld. Einnig hafa ljóð hennar verið lesin í útvarpi og sjónvarpi. Ásdís Jenna er fædd 10. janúar 1970 á Akureyri. Hún fæddist 7 vikum fyrir tímann og fékk fyrirbura- gulu sem olli sköddun í miðtaugakerfí. Hún er spastísk lömuð og getur ekki stjórnað líkama sínum en hefur þess í stað mikið af ósjálfráðum hreyfingum. Einnig er hún heyrnarskert og verulega málhömluð. Eins árs að aldri fluttist hún með fjölskyldu sinni til Danmerkur og fram að skólaaldri var hún í leikskóla þar sem voru bæði fötluð og ófötluð börn og hlaut hún þar sérhæfða þjálfun. Þegar skólaskylda tók við var hún í almennum skóla, í sérdeild fyrir fatlaða, en sótti tíma í almennar bekkjadeildir. Hún notaði svokallaðan Carba tjáskiptabúnað sem hún gat stjórnað með því að gefa hljóðmerki en búnaðurinn fól í sér stafaskjá og rit- vél. Fjölskyldan fluttist aftur heim til íslands 1980 og hóf Ásdís Jenna þá nám í sérdeild fyrir fatlaða í Hlíðaskóla þar sem hún sótti jafnframt tíma í almenna bekki. í haust hóf hún svo nám í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Eins og sjá má á ljóðum Ásdísar Jennu hefur hún mikla hæfíleika til að yrkja og framtíðin er björt á því sviði. Við þökkum henni fyrir að leyfa okkur að birta þessi ljóð og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.