Æskan - 01.12.1988, Síða 28
„Píparkökur Láka
Krakkarnir í Krílagötu
Það voru að koma jól.
Vigga, Elli, Lára og Jonni
voru að föndra.
Mamma Viggu hafði keypt
marga liti af kreppappír,
lím og oddlaus skæri.
Þau voru búin að sitja
í marga daga
og búa til músastiga.
Fyrst höfðu þau skreytt
herbergið hjá Viggu;
svo fóru þau yfir til Ella
og skreyttu þar hátt og lágt.
Lára og Jonni voru
saman í herbergi og þar
skreyttu krakkarnir alla veggi.
Þau skreyttu líka efri
og neðri kojuna og vöfðu
hana fagurlega inn í
mislita músastiga.
Svo fóru þau til ömmu Ella
og þar skreyttu þau
þangað til afi sagðist
henda þeim út
ef þau hættu ekki.
Hann flækti sig í stofu-
skrautinu og sagðist næstum
því hafa verið búinn
að hengja sig í öllu saman.
Nú höfðu þau ekki hugmynd um
hvar þau gætu skreytt næst.
- Ég er orðinn þreyttur
á músastigum, sagði Elli.
- Ég líka, stundu hin.
- Það þarf nú að gera
ýmislegt fleira en skreyta
fyrir jólin, sagði Vigga.
- Til dæmis að sauma
jólaföt, sagði Nonni.
- Og baka, bætti Lára við.
B A K A ! Þetta var eins og
töfraorð. Þau toguðust fram í
eldhús og gægðust inn í skápana.
Svo horfðu þau hvert á annað.
- Vigga, heldurðu ekki
að mamma þín verði glöð
að koma heim ef við
erum búin að baka?
spurði Jonni varlega.
Vigga þagði.
- Sko, mamma mín
er búin að biðja mig
að baka fyrir jólin,
sagði Elli og
horfði upp í loftið.
Vigga horfði vantrúuð á hann.
- Er það satt, spurði hún.
- Tíu fingur upp til Guðs. . .
Vigga sótti matreiðslubókina.
Hún hafði fengið hana
í afmælisgjöf í fyrra.
- Matreiðslubókin
mín og Mikk a,“
stafaði Lára.
Þau ákváðu að byrja á
piparkökum Láka gamla.
Nú upphófst mikil leit.
Það þurfti að nota
skrýtna hluti eins og
engifer, kanil og negul.
Þegar Vigga var búin
að taka allt út úr skápnum
fann hún loks kryddið
innst inni í horni.
Þar hafði það legið
frá síðustu jólum.
ÆSKAN