Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 29
- Framhaldsþættir eftir Kristínu Steinsdóttur
Þau ákváðu að nota
mjólk í stað rjóma og
hunang í stað sýróps.
- Mamma mín notar
alltaf hunang,
sagði Elli sannfærandi.
Svo byrjuðu þau.
ALLIR vildu hnoða
og allir fengu að hnoða.
í bókinni stóð að best væri
ef deigið væri hnoðað einum degi
áður en það væri bakað.
- Mamma mín bakar alltaf strax,
sagði Elli og hnoðaði
eins og óður maður.
Krakkarnir ákváðu þess vegna
að drífa í öllu strax í dag.
Þegar átti að fara að fletja út
vandaðist málið því að ekki
fannst nema eitt kökukefli.
Þau notuðu það til
skiptis en hinir
notuðu stórar flöskur.
Það var erfitt að fletja út.
Þau voru orðin kófsveitt.
- Mér finnst þunnar piparkökur
vondar, sagði Jonni.
- Mér líka. . . mér líka,
stundu allir.
- Þá skulum við
hafa þær þykkar,
sagði Vigga.
Hún sótti mótin og þau byrjuðu
að stinga kökurnar út.
Þessu fylgdu mikil
húrrahróp og fögnuður.
Vigga stillti ofninn
og plöturnar runnu inn
hver á fætur annarri.
En þegar ofninn var orðinn
fullur hringdi síminn
allt í einu.
Það var pabbi Ella.
Hann var að fara
að sækja jólatréð.
- Þau eru komin í bæinn,
sagði hann, - og ef við
förum ekki strax
fáum við ekki neitt.
Krakkarnir stukku öll af stað,
hentust í úlpurnar og út í bíl.
Þau STEINGLEYMDU pipar-
kökunum.
Elli valdi fallegt jólatré
með beinum toppi.
Þau tróðu því inn í
gamla sabinn
og brunuðu svo heim.
JÓLASTJÖRNUR, KIRKJUR,
JÓLASVEINAR, TUNGL
OG JÓLATRÉ.
Þegar Vigga kom heim
skömmu seinna
stóð reið mamma í eldhúsinu.
Það var fullt af reyk.
Á borðinu fyrir framan hana
voru fjórar bökunarplötur með
bftinnum og sótsvörtum klessum.
Það voru piparkökur Láka gamla!