Æskan - 01.12.1988, Qupperneq 43
hefði farið sér að voða, kannski hlaupið
fyrir bíl.
- Megum við sækja hann upp á loft?
spyrja piltarnir afa sinn og eru niðurlút-
ir.
- Alveg sjálfsagt, vinir mínir. En þið
megið ekki gramsa í neinu þar.
Rishæð afa og ömmu er eins og heill
heimur. Þar ægir saman alls konar dóti
sem þau hafa sankað að sér á langri ævi
og hafa ekki lengur not fyrir. Gömlu
hjónunum er ekki sérlega vel við að
strákarnir séu uppi á háalofti að eiga við
dótið þeirra en nú mega þeir fara þangað
til að sækja Spurðan. Það er rökkur á
loftinu og svolítið rakt.
Þegar strákarnir fikra sig upp brattan
stigann marrar draugalega í honum. Þeg-
ar þeir nálgast hurðina á háfloftinu heyra
þeir að Spurðan skýst í felur. Nú heldur
hann að þeir ætli í feluleik við sig.
Á háaloftinu er bæði kalt og rakt. Þar
geyma amma og afí ótrúlega mikið af alls
kyns drasli, fulla kassa af bókum og
blöðum, ónýt heimilistæki, verkfæri og
handavinnudót. Það má aldrei fleygja
neinu - ekki einu sinni þó að það sé ó-
nýtt. Svona er þetta gamla fólk!
Háaloftið er sannkallaður ævintýra-
heimur fyrir strákunum. Auk þess að
vera geymsla búa þar ósýnilegir álfar og
dvergar. Eða svo segja amma og afí.
Strákarnir eru þó ekki vitundar ögn
hræddir, að minnsta kosti ekki á meðan
þeir eru þar báðir.
Allt í einu geltir Spurðan. Hljóðið
kemur frá stórum kassa. Hann er þar á
bak við.
- Jæja, varstu orðinn óþolinmóður,
karlinn, segir Mundi - og strákarnir
hlæja.
Spurðan kemur úr felum og flaðrar
upp um þá. Hann er svo glaður að sjá þá
aftur. Þeir eru jafnánægðir með að vera
búnir að fínna hundinn sinn en geta þó
ekki setið á sér að skamma hann fyrir að
hlaupast að heiman. Hann má vel fá orð
í eyra. En Spurðan sperrir bara eyrun og
læst ekki skilja neitt.
- Hann bara tala hundamál, segir
Sammi og bræðurnir hlæja dátt.
Litlu seinna halda Mundi, Sammi og
Spurðan niður af loftinu. Kleinuilmur
berst um húsið. Það er best að athuga
hvort amma á ekki eitthvað gott handa
þeim í svanginn. Strákarnir slægju ekki
hendi á móti kleinum og mjólkursopa.
Það er ástæða til að fagna því að
Spurðan, besti vinur þeirra, er kominn
aftur í leitirnar.
HÁRLOS?
IBIettaskalli? Liflaust hár?l
VÖOVABÓLGA?
HRUKKUR? BAUGAR?
• Sársaukalaus hárrækt með ..akupunktum"
leyser og rafmagnsnuddi • Voflvabólgumeðferð
• Andlitslyftíng • Orkumælíng • Vitamin-
greining • Ofnæmisgreining
VILTU SOPA AF SJAMPÓI?
Hágæða snyrtivorur Irá Banana Boat og
GNC unnar úr kraftaverkaþykkblöðungnum
Aloe Vera og öðrum heilsubótarjurtum:
□ Sjampó □ Brón án sólar
□ Nærandi sérsjampö í'_} Minkolía
□ Hárnæring □ tkta kellagen gel
□ Græðandi □ Ekta Aloe Vera gel
svitalyktareyðir L ] Sárasmyrsl
□ Aprikósu hóóskrúbb U Græðandi varasalvi
Fæst hjá krofuhoróustu hór- og snyrtistofum og
i heilsubúðum.
M.1.: Akureyri: HEIISUHORNIÐ. SkipaíDtu 6: (VI. Ráitúslnti
1 • Halnarfirði: HEIISUBUÐIN, Reykjavikurvegi 62 •
Reykjavik: BRA, Lnugavegi 74; BORGARAPOIEK, Alftamýri 1-5;
GARÐS APOTEK. Sogavegi 108; HEILSUVAL. Laugavegi 92.
H EILS UVA
rOJ
VAL
Laugavegi 92
S i m i 1 12 7 5
GÚÐAR FRÉTTIR FYRIR
UNGT FERÐAFÚLK
Flugleiðir hafa tekið upp sérstaka nýjung í fargjöldum
fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 21 árs í innanlandsflugi. Þessi
unglingafargjöld gilda allt árið og þeim fylgja engar kvaðir um
lágmarksdvöl en hámarksdvöl er eitt ár.
Farmiðarnir eru „stand by“ þannig að ekki er hægt að
bóka sætið fyrirfram og farþegarnir eru háðir því að pláss sé
í vélinni hverju sinni. En það sem mestu máli skiptir: Þeir
sem kaupa unglingafargjöld fá 55% afslátt af ársfargjaldi.
FLUGLEIDIR
4^
Söluskrifstofur, feröaskrifstofur og umboösmenn um land allt.