Æskan

Årgang

Æskan - 01.12.1988, Side 46

Æskan - 01.12.1988, Side 46
A fórnum vegi „Það var dálítið bagalegt.. Á förnum vegi á Akureyrí hitti Heimir Birnu SoJJíu, Magnús, Sævar Örn, Birki Björn og Steinar Örn! Sá síð- ast taldi er Reykvíkingur, hin „innfædd“. . . Og þau höjðu þetta að segja: Kötturinn skreið undir borð! Birna Soffía Baldursdóttir er átta ára - en verður níu 17. desember. Þetta blað berst henni fáum dögum fyrr (von- andi. . .). Hún á heima að Byggðavegi 109 á Akureyri og er í Barnaskóla Akureyrar - „rétt neðan við Sundlaug- ina,“ segir hún til skýringar, þykist viss um að Reykvíking- Birna Soffía og bróðir hennar gefa öndunum. Birna Soffía ur (sem við hana talar) átti sig þá á afstöðunni. Það vill svo til að hann var þar fjóra vetur og veit hvar skólinn er - en margir lesendur verða af þessu nokkurs vísari því að flestir, sem koma til Akureyr- ar, bregða sér í sund. Birna á tvö systkini, Jóhann Níels 6 ára og Kristínu Ingu (hálfsystur) 15 ára. Hún segist 46 eiga margar vinkonur og vill ekki gera upp á milli þeirra. Hún er í Sundfélaginu Óðni og æfir sund tvisvar í viku. Nokkrir bekkjarfélagar henn- ar æfa þar líka. Hún gekk í fé- lagið í haust og flnnst gaman í sundinu. Birna Soffía var í sveitinni hjá afa sínum og ömmu dálít- inn tíma í sumar. Þau eiga heima í Hlíð í Skíðadal og hafa búið með kindur og kýr en í haust var bústofninn felldur. Ég spyr Birnu hvort þar hafi ekki verið fleiri dýr. „Jú, hundur og köttur og þeir voru rosalegir óvinir. Það er villiköttur sem hefur haldið þarna til nokkur ár, sofið í fjárhúsunum. Við gefum hon- um þar. Hann var oft með mér. En hann var svo hrædd- ur við hundinn að hann skreið bara undir borð einu sinni þegar hann átti að leita að músum. Það varð ekkert úr músaveiðunum!“ Steinar Örn Að veiðum í Qrunnavík Steinar Örn Friðþórsson á heima að Stapaseli 8 í Reykja- vík en dvaldist hjá móðursyst- ur sinni á Akureyri tíu daga í sumar. Hann fór norður með frænku sinni - en fyrr um sumarið hafði hann komið þangað með foreldrum sínum og fjögurra ára systur, Helenu Rós. Steinar Örn fór víðar í sum- ar. Hann skrapp nokkrum sinnum með foreldrum sínum vestur í Dalasýslu, að Sæl- ingsdal, en þar á amma hans sumarbústað. Langafi hans átti jörðina. Hann segist oft fara í sund að Laugum, skóla- setri í landi Sælingsdals. „Ég fór líka með frænda mínum og konu hans til Grunnavíkur á Vestfjörðum. Föðuramma mín á sumarbú- stað þar. Við ókum til ísa- fjarðar en fórum þaðan með báti. Ég veiddi þar af bryggj- unni.“ Steinar Örn er á 11. ári. Hann er í Ölduselsskóla og finnst skemmtilegast að læra stærðfræði og kristinfræði. í tómstundum leikur hann sér í knattspyrnu með félögum sín- um á litlum malarvelli skammt frá heimili sínu.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.