Æskan - 01.12.1988, Qupperneq 55
Skátafélagið Eina
Nýtt skátafélag var stofnað sunnudaginn
30. október og hlaut það nafnið Skátafé-
lagið Eina. Starfssvæði þess er í Breið-
holti I og hefur það aðsetur í Breiðholts-
skóla. Með stofnun skátafélagsins er
stefnt að eflingu félagslífs barna og ungl-
inga í hverfinu en einnig að því að vera
með sérstakt starf fyrir unglinga og for-
eldra í opnu skátastarfi sem er nýjung
hér á landi. Þetta félag byggir á gömlum
grunni því að það er stofnað upp úr Skf.
Urðarköttum sem starfaði á sama svæði.
Félagsforinginn er enginn nýgræðing-
ur því að það er enginn annar en eldhug-
inn góði, Guðmundur Jónsson fyrrum
félagsforingi Garðbúa, sem tekið hefur
stjórnina í sínar hendur. Guðmundur
nýtur fulltingis ýmissa góðra manna og
má þar nefna Ara Hallgrímsson, stór-
skáta frá Akureyri, Svavar Sigurðsson,
gamalreyndan Garðbúa, og Þórunni Þór-
arinsdóttur.
Öflugt starf
Það sem af er starfsferli Skátafélagsins
Eina hefur verið nóg að gera. Foringjar
fóru í útilegu austur á Úlfljótsvatn í lok
október og tóku fjórtán þátt í henni.
Skátadagur var haldinn laugardaginn 5.
nóvember og var þá tekið á móti gestum
í húsnæði félagsins í Breiðholtsskóla. Þar
var gestum boðið að kynnast skátum í
starfi og leik. Boðið var upp á kakó og
kaffi og skátar sýndu hvernig flokksfundir
og skátanámskeið fara fram. Fyrir utan
skátaheimilið kom skátaflokkur sér upp
tjaldbúð og trönubyggingu þar sem
yngstu kynslóðinni var gefinn kostur á
að leika sér. Þetta opna hús mæltist vel
fyrir og skráðu sig 30 nýir félagar þann
daginn. Skátadagurinn endaði með því
að félagar fjölmenntu á hátíðarkvöld-
vöku í Ölduselsskóla og var haldin á veg-
um nágrannanna í Skf. Segli. Þar var
frumfluttur spánýr félagssöngur.
Þjónustuátak
í tilefni af stofnun Skátafélagsins Eina
efndi það til þjónustuátaks í hverfinu
dagana 4. og 5. nóvember. Þá önnuðust
skátar úr félaginu gangbrautagæslu á
helstu umferðargötum í hverfinu.
Allir nýir skátar eru að sjálfsögðu vel-
komnir til starfa en jafnframt vill félagið
leggja áherslu á að fá til starfa á ný eldri
skáta sem af einhverjum orsökum hafa
hætt. Þeir sem eru tilbúnir til að gefa
kost á sér til starfa eru hvattir til að hafa
samband við einhvern eftirtalinna:
Guðmundur Jónsson félagsforingi, s.
72126;
Þórunn Þórarinsdóttir aðstoðarfélagsfor-
ingi, s. 77920;
Ari Hallgrímsson deildarforingi, s.
11462.
Segull
Laugardaginn 5. nóvember var vígt
nýtt skátaheimili sem Skf. Segull hefur
fengið til afnota en félagið hafði áður að-
stöðu í Ölduselsskóla. Margt góðra gesta
var þarna saman komið og fluttu nokkrir
gestanna stutt ávörp.
Athöfnin hófst með því að Valdimar
Pétursson skýrði frá forsögu þess að Seg-
ull fékk þetta húsnæði til afnota og að
því loknu var skátaheimilið vígt. Gunnar
Eyjólfsson skátahöfðingi skipaði Ragnar
Guðlaugsson félagsforingja og vígði sex
nýliða. Að vígsluathöfn lokinni þágu
gestir veitingar í boði skátafélagsins.
Um kvöldið var kvöldvaka í Öldusels-
skóla. Þar var fjölmenni saman komið úr
ýmsum félögum í Reykjavík og ríkti
mikil og skemmtileg skátastemmning.
í safnaðarheimili
Það voru gtadir og stoltir skátar úr Skátaféiaginu Segli sem mættu til vígslu á nýja skáta-
heimilinu. Eftir mikla vinnu við að smíða, mála og ganga svo frá öllu að vel færi var stóra
stundin runnin upp. Húsinu var gefið nafnið Vinarþel.
satnUpP^
Teiknimyndasamkeppni fyrir skáta á aldrinum 7-10 ára er nú hafin. Þema keppninn-
ar er Friður og skátun og er skilafrestur til 1. febrúar 1989.
Úrslit verða tilkynnt 22. febrúar 1989. Þá verða og myndir sýndar og verðlaun
veitt. Sá sem hlýtur 1. verðlaun fær að launum stórglæsilegt skátaúr. Skátaskildir
verða veittir fyrir myndir í 2. og 3. sæti og eigendur 20 fallegustu myndanna fá viður-
kenningarskjal.
Myndirnar eiga að vera af stærðinni A-4 (29,7 sm x 21 sm)
ÆSKAN
55