Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 64

Æskan - 01.12.1988, Blaðsíða 64
eftir Jóhönnu Brynjólfsdóttur Wathne Nokkru utan við þorpið niður við sjávar- kambinn þar sem öldurnar hjöluðu við brimsorfna klettana stóð hús gamla leirkerasmiðsins. Hann bjó einn. Barnsraddirnar, sem áður hljómuðu um húsið, voru löngu þagnaðar og hús- gögnin gömlu, sem eftir stóðu, báru merki handa þeirra þar sem þau höfðu setið og leikið sér og lært lexíurnar sínar. Ilmur eldamennskunnar, sem áður smaug um glugga og gættir, barst ekki lengur fyrir vit manns; húsmóðirin um- hyggjusama var hætt störfum sínum, rödd hennar hljóðnuð - og heimilisfaðir- inn fyrir löngu orðinn einn. Hann sat nú við gamla vinnuborðið við iðju sína. Fyr- ir framan hann stóð fjöldi leirmuna sem hann hafði mótað, krukkur og kirnur, vasar og margir aðrir hlutir. Blotar haustveðranna höfðu máð út öll umsvif húsráðanda í garðinum við húsið en þar ræktaði hann garðávexti og mikið af berjum. Nú hafði himinninn lagt glitr- andi mjallarteppi yfír garðinn og gömlu grenitrén glitruðu skrýdd hvítum feldi. Glugginn, sem sneri að vegarslóðanum 64^ er iá niður í þorpið, var hlaðinn leirmun- um sem listamaðurinn hafði raðað til sýnis fyrir væntanlega jólasölu. Smáfugl- ar höfðu raðað sér á gluggasylluna úti fyrir og virtu fyrir sér varninginn. Leirkerasmiðurinn hafði unnið að iðn sinni frá unga aldri meðan börnin uxu úr grasi ásamt ýmsum smíðum sem til féllu í þorpinu. En nú hafði hann eingöngu snúið sér að leirkerasmíði. Hér hafði hann lifað lífí sínu. Á yngri árum hafði hann róið til fiskjar - en nú dottaði gamli báturinn hans bundinn við klett. Hann var hættur að róa. Á veturna gat oft verið mikið öldurót og brim við klettana svo að litla húsið titraði þegar öldurótið þeytti brimlöðri yfir þá. Þó að mikið gengi á stóð það enn óbifað undir snæhvítri ábreiðu og beið jólanna sem ekki voru langt undan. Annað veifíð stansaði fólk við glugga gamla mannsins og virti fyrir sér hlutina og kom stöku sinnum inn og keypti eitt- hvað. Þannig liðu dagarnir. Þá var það dag nokkurn þegar snjón- um hafði kyngt niður og enginn kom innan úr dalnum að gamli leirkerasmið- urinn hallaði sér í stólnum sínum fyrir opnu e'dstæðinu. Hugur hans var víðs- fjarri. Hann dvaldist í bernskuheimili hans. Honum leið undarlega vel. Fögn- uður greip hann og sál hans uppljómað- ist af fögnuði jólanna. Allar minningar voru skýrar. Hann sá í anda foreldra sína og systkini öll bíða komu jólanna sem voru að halda innreið sína í baðstofuna gömlu. Pabbi hans sat við borð og börn- in umhverfis hann og horfðu á hann skreyta jólatré sem hann hafði smíðað. ÆSKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.