Æskan - 01.12.1988, Síða 67
á möndul og snýst á hjólum. Þetta flýtir
mikið fyrir þegar skipta þarf um sviðs-
mynd.
Leikfélag Sauðárkróks hefur haft að
markmiði að önnur af tveimur sýningum
félagsins á vetri hverjum sé barnaleikrit.
í hittifyrra sýndi það Línu langsokk og
árið þar á undan Galdrakarlinn í Oz.
Þetta er vel gert af litlu leikfélagi - en
það hefur lengi verið þekkt fyrir dugnað
og vandaðar sýningar.
En fjörkálfurinn Emil - sem ekki er
óþekkur nema óvart og aðeins einu sinni
á dag! - fær líka að dúsa í smíðaskemmu
á Akureyri. Leikritið um hann og fleira
gott fólk í Smálöndum verður frumsýnt
þar á annan í jólum - 26. desember.
Ingvar Már Gíslason og Júlía Egilsdóttir
fá að spreyta sig á hlutverkum systkin-
anna en foreldra þeirra leika Þráinn
Karlsson og Nanna I. Jónsdóttir. Mar-
grét Pétursdóttir og Pétur Eggerz verða
Lína og Alfreð. Magnús Blöndal Jó-
hannsson flytur og stjórnar tónlist.
í fyrra sýndi Leikfélag Akureyrar leik-
rit um Einar Áskel, en allir krakkar
kannast við hann. Það var sýnt í skólum
og leikskólum víða um Norðurland.
Leikfélagið stefnir að því að setja sýning-
ar á svið í leikhúsinu á Akureyri annað
hvert ár en fara með leikverkin um land-
ið hitt árið.
FRÓÐI
og allir hinir
grislingarnir
eftir Ole Lund Kirkegaard er nú sýnt í
Kópavogi af leikfélaginu þar í bæ. Að-
alsteinn Ásberg Sigurðsson þýddi en
Valgeir Skagfjörð samdi tónlist og söng-
texta, stjórnar verkinu og annast undir-
leik ásamt Pétri Hjaltested.
Það er mikið fjör á ferðum á sviðinu í
Kópavogi og sýningin er vel sótt. Ungt
fólk fer með hlutverkin og skemmtir sér
og áhorfendum konunglega með leik,
söng og dansi.
Hljómplata með söngvunum verður
komin út þegar blaðið berst ykkur svo að
heyrn verður eflaust sögu ríkari!
Kannski syngið þið með, t.d. Söng
kvennanna á efri hæðinni. . .:
Það hírist hér í húskofanum hlægilegur karl
sem ekkcrt kann að elda nema alls kyns drullu-
mall.
Hoppar um og hamast, það er herfilegt að sjá,
og öskrar bara og æpir ef að einhver gengur hjá.
Stormur, elsku Stormur,
sómamaður hátt og lágt ert þú.
Stormur, elsku Stormur,
sæl og glöð ég yrði sem þín frú.
Geðvonskunni, garpurinn minn, get ég alveg eytt
og séð svo um að sveran belginn skorti aldrci neitt.
Það virðist citthvað viðfelldið og vinalegt við þig
því óhljóðin og æðisköstin eiga vel við mig.
Stormur, elsku Stormur. . .
f dásamlegum draumum þegar dönsum þú og ég,
við svífum um með sælubros og sýnumst æðisleg.
En bölvað er um bjartan dag að brölta upp um síð
og uppgötva það enn á ný að allt var blekking fríð.
Stormur, elsku Stormur. . .
„Þetta er allt
vitlaust, Snjólfur!"
er spunaverk sem Guðjón Sigvaldason
leikstjóri vann með leikhópi á vegum
Leikfélags Hafnarfjarðar - í unglinga-
leikhúsinu.
Þegar leikfélagið auglýsti eftir leikend-
Ungt fólk fer með hlutverk í sýningu Leikfélags Kópavogs: Fróði og allir hinir grislingarnir.
um í hlutverk Emils og ídu í fyrra komu
svo margir að sú hugmynd skaut upp
kollinum að stofna unglingadeild félags-
ins. Úr því varð í haust og þá var haldið
leiknámskeið og síðan tekið til við
spunaverkið. (Leikstjórinn ákvað ramma
verksins og varpaði fram hugmyndum
sem hópurinn vann úr)
Unglingarnir - á aldrinum 13-16 ára
- sjá um allt sem þarf til að setja leikinn
á svið - með aðstoð leikstjórans. Þrjátíu
leikarar koma fram í leikritinu en það
Gaman Leikhúsið sýndi í Hollandi og
Austurríki.
fjallar um líf unglinga á gamansaman og
ýktan hátt; um vonir þeirra, vonbrigði
og drauma.
Qaman Leihhúsið
leggur land undir fót
Við getum ekki látið þessu spjalli lokið
án þess að nefna að Gaman Leikhúsið
starfar enn - að sjálfsögðu. Þið munið að
félagar þess, börn og unglingar, annast
sjálf allt er sýningar varðar, - sjá um
leik, leikstjórn, lýsingu, förðun, bún-
inga, hönnun, leikskrá, leikmynd, aug-
lýsingar, fjáröflún, samninga o.fl.!
í sumar fór þetta einstæða leikfélag á
leiklistarhátíð í Hollandi en hún stóð í
tíu daga. Þaðan var haldið til Vínar í
Austurríki og dvalist þar í 16 daga á sams
konar hátíð. Gaman Leikhúsið sýndi
leikritið Kötturinn sem fór sínar eigin
leiðir. Það er byggt á sögu Rudyards
Kiplings en höfundur er Ólafur Haukur
Símonarson og samdi hann einnig lög og
söngtexta. Gunnar Þórðarson útsetti.
Magnús Geir Þórðarson var að venju
leikstjóri en hann er aðaldriffjöður hóps-
ins.
Til Vínar fóru einnig þrír ungir leik-
arar frá Hólmavík. Fararstjórar voru
Soffía Vagnsdóttir og Vilborg Val-
garðsdóttir, starfsmenn Bandalags ís-
lenskra leikfélaga.
ÆSKAN
67