Æskan - 01.12.1988, Síða 71
heyrist kvak hennar oft langar leiðir
utan af sjó.
Dagur frímerkisins 1988.
Eins og undanfarin ár gaf Póst- og
símamálastofnunin út smáörk eða
„blokk“ með einu frímerki á Degi frí-
merkisins, 9. október.
Myndefni smáarkarinnar er eftir
Auguste Mayer úr ferðabók Pauls Ga-
imards og sýnir bæinn Núpsstað í
Fljótshverfi árið 1836 með hinum
hrikalegu klettum fyrir ofan.
Litla húsið til hægri á myndinni á
að vera bænhúsið sem að stofni til
mun vera frá miðri 17. öld og stendur
enn en var lagfært á vegum Þjóð-
minjasafnsins á árunum 1958-62.
Þetta er minnsta guðshús á Islandi,
aðeins 5,2 m á lengd og 2,2-2,5 m á
breidd að innanmáli.
Söluverð smáarkarinnar er 60 krón-
ur og frímerkið er að verðgildi 40
krónur. Andvirði yflrverðsins, 20
krónur, rennur í Frímerkja- og póst-
sögusjóð.
I ÍSLAND
>
> HEILBKiGi)!
> ALLRA
s ÁRII)
2000
: .f- 1900 i
LJkJLJÉJÉiAJÉJÉaAdÉBJkJÉJÉJÉHAal
Heilbrigði allra árið 2000.
Þess er nú minnst að 40 ár eru liðin
frá stofnun Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar.
Með stofnun hennar var ýtt úr vör
alhcimsátaki og samstarfi til að
vernda og efla heilbrigði manna.
Samkvæmt stofnskrá hennar er heil-
brigði það að vera laus við sjúkdóma
og heilsubrest. Líkamleg, andleg og
félagsleg vellíðan allra er markmið
hennar.
í tilefni af afmælinu var gefin út
frímerkjasamstæða.
Jólafrímerkin 1988.
Að þessu sinni sýna jólafrímerkin
fiskimenn að störfum á hafi úti. Læri-
sveinar Krists voru fiskimenn og ís-
lenskir fiskimenn hafa um mörg jól
þurft að vera við störf á hafi úti, fiarri
ástvinum sínum.
Kjartan Guðjónsson, málari og
grafiker, teiknaði jólafrímerkin í ár.
Hann er fæddur 21. apríl 1921 og
stundaði nám í Chicago. Við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands kenndi
hann í 25 ár.
ræða endurskoðaða útgáfu, bæði
að verði og auk þess hefir ýmsum
afbrigðum og öllum nýjungum
verið bætt inn í. Þá er aftast í list-
anum nákvæm skráning íslenskra
frímerkjahefta sem Þór Þorsteins
hefir unnið og er þar um mikil-
væga nýjung að ræða í íslenskri
frímerkjafræði þar sem slík
skráning hefir aldrei áður verið
framkvæmd af kunnáttumanni og
eru aðeins til í erlendum listum
mjög ófullkomnar skráningar
heftanna.
Það hefir alltaf verið stefna list-
ans að skrá íslensk frímerki sem
næst markaðsverði. Því er enn
haldið en þó eru hækkanir nú
meiri en lengi hefir verið. Ástæða
þess er að íslensk frímerki hafa
verið mikið í sviðsljósinu á und-
anförnum tveim árum þar sem
stór söfn hafa gengið kaupum og
sölum og verið sýnd á alþjóðleg-
um sýningum. Hefir þetta hleypt
líft í sölu íslenskra frímerkja á al-
mennum markaði.
Þetta er þriðja árið sem listinn,
íslensk frímerki, er með mynd-
um allra frímerkja í lit. Hefir sú
nýbreytni verið afar vinsæl meðal
safnara.
Smáörk sem gefin var út á degi frímerkisins, 9. október 1988. Mynd Auguste Mayers af Núpsstað í
Fljótshverfi 1836. (Úr feróabók Pauls Gaimards)
„íslensk
frímerki 1989"
Þrítugasta og þriðja útgáfa ís-
lenska frímerkjaverðlistans, ís-
lensk frímerki, sem ísafold gefur
út, er að koma í bókabúðir um
þessar mundir. Er þarna um að
Höfundur og ritstjóri listans
frá upphafl hefir verið Sigurður
H. Þorsteinsson, uppeldisfræð-
ingur og skólastjóri, að Laugar-
hóli í Strandasýslu.
ÆSKAN
71