Æskan - 01.01.1991, Blaðsíða 41
STUNDIMYNTSAFNINU
íslensk mynt og seðlar, íslenskir vöruseðlar
og brauðpeningar, minnispeningar,
heiðursmerki, orður
- erlend mynt sem tengist íslenskri sögu.
Myntir hafa verið slegnar siðan á 8. öld f.Kr. og
eru meðal frumheimilda um menningar- og verslunar-
sögu fyrri alda. í Myntsafni Seðlabanka og Þjóðminja-
safns eru nú um sextán þúsund myntir.
Stofninn í myntsafninu er íslensk mynt og seðlar
og erlendir peningar frá fyrri öldum. Meðal sýningar-
efnis eru peningaseðlar frá 1 8. öld, sem heimilt var að
nota hér á landi, og síðan allar gerðir innlendra seðla
frá upphafi íslenskrar seðlaútgáfu árið 1886.
Safn af skemmtilegum fróðleik.
Opið á sunnudögum kl. 14-16 og á öðrum
tímum fyrir hópa eftir samkomulagi.
Sérfræðingur er til leiðsagnar. Aðgangur ókeypis.
MYNTSAFN
Seðlabanka og Þjóðminjasafns
Einholti 4 Reykjavík Sími 69 99 64.
HA A HA HE EEH HA
___ 'Ai __ E
n
h
HA HIA HA HAHAH'v A HA HE EEH HA HA HIA HA
SB t __ I I ^ n ^ AHJ m Mt
,A K D ^ I HÍ, \Ab ■ H ff
H l EE B H> * .JA HA “
K
Hl
H>
AH>
\Ab
LIA
HE
H|
■\A
'\
;H
HE
\
\
\
Ha HIA HA HAHAHIA mm HAHAHA A hA HE EEH HA HA HlA r.A HAHAHA
Afi (heldur Sveini litla á
lofti fyrir framan stóran
spegil): Sérðu apann þarnat
Sveinn litli: Já, hann er
með gleraugu og heldur á
litlum dreng!
A: Heyrið þér, góði mað-
ur! Get ég ekki bróðum
komist að símanum? Þér haf-
ið nú staðið steinþegjandi
við hann í klukkustund!
D: Truflið mig ekki! Konan
mín er að tala við mig!
Frænka: Viltu ekki borða eina köku í
viðbót, Axel minn?
Axel: Nei, þakka þér fyrir, frænka.
Frænka: Þjáist þú af lystarleysi, Axel
minn?
Axel: Nei, ekki af lystarleysi heldur af
kurteisi!
Arni: Hér er reikningurinn frá
augnlækninum. Eg átti að taka
við greiðslu.
Bjarni: Ojá! Viltu ekki segja
honum að mér hafi heldur versn-
að eftir að ég fór til hans svo að ég
hafi ekki getað lesið reikninginn!
Dómarinn: Kannist þér við
að hafa brotið stólinn þegar
þér lömduð manninn yðar?
Kona: Já, en það var ekki til-
gangurinn.
Dómarinn: Þér hafið ekki
ætlað að berja hann?
Konan: Jú, en ég ætlaði ekki
að brjóta stólinn!
Æskan 45