Æskan - 01.01.1991, Blaðsíða 22
Nýiu
krakkarnir ...
Kæra Æska!
Ég sá í jólablaöi Æsk-
unnar að stelpa spurði um
hljómsveitina New Kids on
The Block. Mig langar til
að svara nokkrum spurn-
inganna.
S: Já, ný hljómplata er
væntanleg. Hún á að koma
út í maí nk. Á henni eiga
að vera öll bestu lög strák-
anna. Þau verða þó ekki
eins og á gömlu plötunum.
Þeim verður breytt lítils
háttar og gefin út í „dans-
útgáfu“.
3: Verslanirnar Þúsund
og ein nótt og Kiss selja
boli með mynd af hljóm-
sveitinni.
4: Mæður strákanna
reka aðdáendaklúbb og sjá
um að hver þeirra fái sín
bréf. Póstfang þess klúbbs
er:
New Kids on The Bloek
Fan Club,
Box 7001, Quincy. - MA
0SS69 - U.S.A.
Ég og vinkona min erum
ákafir aðdáendur Nýju
krakkanna. Okkur langar
því afar mikið á tónleika
með þeim. Okkur datt í
hug (eins og ömmu gömlu)
að safna undirskriftum þjá
krökkum sem áhuga hafa
á því sama. Til þess vant-
ar okkur hjálp annarra að-
dáenda hljómsveitarinnar.
Við biðjum þá að skrifa
nafn sitt á lista og fá vini
og kunningja til að skrifa
líka. (í sviga á eftir nafn-
inu má nefna hvern af
strákunum sá sem skrifar
dáir mest) Listana viljum
við gjarna fá til þess að
við getum sent þá alla til
aðdáendaklúbbsins með
heitri ósk um að strákarn-
ir haldi tónleika hér á ís-
landi! Við vitum að ótrú-
legt er að þetta beri árang-
ur - en það sakar ekki að
reyna!
Ásta - Vesturbraut 15,
Þárunn - Brunnstíg 5,
220 Hafnarfirði.
Kæra Æska! Okkur, þrjár
telpur, langar til að stofna
aðdáendaklúbb hljómsveit-
arinnar, Nýju krakkanna í
hverfinu. Við biðjum alla
sem vilja vera í klúbbnum
að skrifa bréf til
Margrétar Einarsdóttur,
Safamýri 34, 108 Reykjavík.
Kæra Æska!
Við vihkonurnar viljum
kvarta yfir dálitlu - en
fyrst viljum við þakka
mjög gott blað.
í 9. tbl. 1990 var viðtal
við hljómsveitarmenn í
Stjórninni. Þar kom fram
að einn þeirra þolir ekki
Nýju krakkana í hverfinu.
Hann sagði að sér fyndist
þeir ömurlegasta hljóm-
sveit í heimi. Við höldum
að það hljóti að draga úr
vinsældum Stjórnarinnar.
Okkur fannst Stjórnin mjög
góð hljómsveit en eftir
þessa yfirlýsingu þykir
okkur hún vera frekar öm-
urleg. (Við erum miklir að-
dáendur hljómsveitarinnar
New Kids on The block)
Fyrrverandi aðdáendur
Stjórnarinnar
- en enn þá meiri aðdáendur
Nýju krakkanna.
Umhverfisvernd
Hæ, hæ, allir sem lesa
þetta frábæra blað!
Nú þegar lífið leggst í
dvala og krakkarnir hrúg-
ast inn í skólana þá reyna
líffræðikennarar og margir
aðrir að troða einhverju
inn í hina þykku höfuðskel
okkar, m.a. um gróðureyð-
ingu og uppgræðslu lands-
ins. Þeim hefur tekist að
troða dálitlum skilningi í
mig og nokkra aðra. Ég
legg mitt af mörkum og
nota m.a. endurunninn
pappír. Mér finnst að allir
eigi fara þannig að, líka
Æskan og Æskulesendur.
Má ekki prenta Æskuna á
endurunninn pappír? Les-
endur geta a.m.k. skrifað
bréf til Æskunnar á slíkan
pappír.
Ég mæli líka með að
námsfólk, sem skrifar
ósköpin öll og hendir jafn-
óðum, skrifi á endurunn-
inn pappír.
Ég þakka fyrir greinina
um alþjóða umhverfismál.
Hún er mjög fróðleg og
vekur mann til umhugsun-
ar.
Sigga Hrefna.
Svar:
Endurunninn pappír mun ekki
unnl að gera eins hvítan og
frumunninn - ekki enn þá. Hann
hefur því ekki verið notaður þegar
um litprentun er að ræða. Hann er
ekki heldur til í eins stórum örkum
og frumunninn. (Ekki hjá viðskipta-
aðilja okkar) Þess vegna yrði mun
dýrara að prenta á hann.
Einnig er til umhverfisvænn
pappír. I honum er ekki klór og
hann mengar því ekki. I athugun er
hvort við getum notað endurunn-
inn eða umhverfisvænan pappír við
prentun blaðsins. Vió skýrum fljót-
lega frá niðurstöðu.
Við erum hjartanlega sammála
þér, Sigga Hrefna, um nauósyn
þess að allir leggi náttúruvernd lió
eftir mætti.
Pennavinir
Kæra Æska!
Mig langar tll aö vita
hvernig maður skrifast á
við pennavini.
Anna Kristín.
Svar:
Þú skalt byrja á því aó leita í
pennavinadálki Æskunnar og at-
huga hvort þú finnur ekki nafn ein-
hvers sem er á svipuðum aldri og
þú og hefur lík áhugamál. I hverri
Æsku birtast nöfn margra krakka
sem langar til að skrifast á við ein-
hvern - eignast hann að pennavini.
Síðan skrifar þú bréfið og vandar
þig vel! Þú lýsir sjálfri þér og fjöl-
skyldu þinni, áhugamálum, skólan-
um, eftirlætisnámsgreinum - og
öðru því sem þig langar til að segja
frá.
Stundum hefur fólk oróið svo
góðir vinir með bréfaskiptum aó
það hefur heimsótt hvort annað og
treyst vinaböndin með því.
Hve oft er skrifaó og hve langt
bréf í hvert sinn verður að mótast
af því hve duglegir bréfritarar
pennavinirnir eru.
Gangi þér vel!
Til góðs og
gamans
Kæri Æskupóstur!
Hvað er Æskan gömul?
Hver á Æskima?
Ég.
Svar:
Æskan hefur komió út frá því
1897 - í 93 ár. Nú er 91. árgangur
hennar að hefja göngu sína. I tvö
ár var ekki hægt að gefa blaóió út,
1909 vegna fjárhagserfiðleika og
1920 vegna skorts á pappír.
Útgefandi og eigandi Æskunnar
er Stórstúka Islands - en það er
nafn á landssamtökum góðtempl-
22 Æskan