Æskan - 01.01.1991, Blaðsíða 13
Tónlistarnám
er aðaláhugamálið
Höfundur verðlaunasögunnar, Kvalir á norðurslóðum,
er Kristín Maria Gunnarsdóttir, 15 ára nemandi í Holtaskóla
í Keflavík. Hún segist hafa fengist dálítið við sagnagerð ..
„Já, ég hef stundum sett sam-
an sögur þegar við höfum átt að
semja ritgerðir. Það hefur líka
komið fyrir að ég hafi samið
bara fyrir sjálfa mig. En það er
eklci oft sem maður fær góðar
hugmyndir."
- Um hvað skrifarðu?
„Um lífið og tilveruna - það
sem mér dettur í hug í hvert
sinn ..."
- Ætlarðu að leggja stund á rit-
störf?
„Ég veit ekki ... - en það má
vel vera."
- Lestu mikið? Hvað helst?
„Já, ég les þónoldtuð - allt
mögulegt. Frá Sidney Sheldon til
Halldórs Laxness. Af ritum Lax-
ness er Sjálfstætt fólk eftirlætis-
saga mín."
- Hvaða námsgrein þykir þér
skemmtilegust?
„íslenska."
- En hvert er helsta áhugamál
þitt?
„Það er tónlistarnámið. Ég hef
verið í Tónlistarskóla Keflavíkur
og lært á klarinett í nokltur ár,
hef tekið 4. stig, og nýlega byrj-
aði ég líka að iæra á píanó. Ég
fékk píanó í fermingargjöf."
- Stefnir þú að því að ljúka
einleikaraprófi á bæði hljóðfær-
in?
„Ég ætla að talca 8. stigs próf á
klarinett en býst við að hætta pí-
anónámi áður en ég næ því."
- Hlustarðu oft á tónlist?
„Dálítið - en ég framleiði svo
mikið af hljóðum sjáif að ég hef
ekki þörf fyrir það.
Mér finnst öli sígild tónlist
ágæt - og sumt í poppmúsík en
annað í poppi finnst mér ekkert
sérstakt.
Eftirlætistónskáld? Mozart og
Chopin."
- Hefur þú æft íþróttir?
„Ég lék badminton (hnit) en er
hætt því. Ég lét tónlistina ganga
fyrir."
- Hefur þú ferðast víða?
„Við fjölskyldan höfum marg-
sinnis farið hringveginn. Já, jafn-
vel oftar en einu sinni á ári. í
hittifyrra fórum við tvisvar, í
fyrra einn hring. Við vorum sex
vikur í ferðinni. Síðan fórum við
til Egilsstaða og aftur til baka.
Við gistum oftast í hústjaldi.
Mér finnst mjög skemmtilegt að
ferðast þannig.
Ég hef farið tvisvar til Dan-
merkur, með lúðrasveitinni og
fjölskyldu minni, og einu sinni
til Spánar."
- Hvar hefur þér þótt fallegast?
„í Skaftafelli. Tvímælalaust."
- Hefur þú ákveðið frekara
nám og framtíðarstarf?
„Ekki starf - en ég fer í Fjöl-
brautaskólann á Suðurnesjum,
líklega á eðlis- og náttúrufræði-
braut."
Æskan 1 3