Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.08.1992, Qupperneq 20

Æskan - 01.08.1992, Qupperneq 20
ÆSKU PÓSTUR Pósthólf 523 -121 Reykjavík ÁR í HEIMAVISTARSKÓLA Hæ, hæ, kæra Æska! Pabbi á gömul Æskublöö frá 1960-1973. í þeim var ýmislegt skemmtilegt efni og ég er að vona að þið viljið birta aftur söguna Ár í heimavistarskóla. Ég sendi I maí bréf til framleið- anda þáttanna, Leiðin til Avonlea, en hef ekki fengið blaðið um krakk- ana sent. Með þökk fyrir blað sem verð- ur alltaf betra og betra. Aðdáandi. Svar: Það er sannarlega af mörgu að taka úr áhugaverðu efni Æsk- unnar í 95 ár! Við munum at- huga hvort farin verður sú leið að endurbirta örlítið brot afþví... Okkur þykir leitt að framleið- andinn, sem þú nefnir, skuli ekki standa við fyrirheit um að senda fréttablað til þeirra sem óska eft- ir því. MIG LANGAR TIL AÐ VERÐA ... Kæri Æskupóstur! Mig langar til að verða arkitekt. Hvað er námið langt og hvar er best að stunda nám? í hvaða fram- haldsskóla er best að fara til að undirbúa sig? J.H.S. Svar: Almennt nám til prófs í arki- tektúr tekur 5-7 ár eftir stúdents- próf. Það þarfað stunda erlend- is. Ekki er hægt að nefna einn skóla öðrum fremur þar sem heppilegt sé að læra til stúdents- prófs - en við Fjölbrautaskólann í Breiðholti er kennd listasaga sem ákjósanlegt er að þekkja til. Ágætur undirbúningur er að leggja rækt við teikningu - og ekki sakar að nema raungrein- ar vel. - Sjá og 7. tbl. Æskunnar 1991. Kæri Æskupóstur! Mig langar til að verða hár- greiðslumeistari. Hvernig er nám- inu háttað? Hver er besti undirbún- ingurinn og hve langt er það? Forvitin. Svar: Hárgreiðsla er kennd við iðn- skóla og á hárgreiðslustofum. Nemandi stundar í byrjun nám í iðnskóla einn vetur, ersíðan 18 mánuði í starfsþjálfun, lýkur námi á einni önn í skólanum. Nemandi sér sjálfur um að ráða sig á hárgreiðslustofu til starfs- þjálfunar. (Áður lýst í 9. tbl. 1991 ...) SAMAN í LEIKSKÓLA ... HALLÓ, BESTA ÆSKA! Mig langar til að auglýsa eftir krökkum sem voru með mér á leik- skólanum Ægisborg á Ægissíðu. Þar var ég 1983-1985. Þetta virð- ist kannski kjánalegt en samt... Krakkarnir, sem ég man eftir, heita Ari, Svanhildur Þóra (kölluð Svana að mig minnir), Þór, Eva, Daníel, Ósk, Pétur Axel og Sturla. Ef einhver þeirra er áskrifandi að Æskunni eða einhver áskrifandi þekkir þá þætti mér vænt um að þeir skrifuðu mér. Við vorum á „yngri deild“. Vonast til að heyra frá ykkur! Tinna Sigurðardóttir, Odda, 851 Hella. LUKKUPAKKAR OG LEIKARAR Halló, Æskupóstur! Ég hef nokkrar spurningar sem mig langar til að fá svör við: 1. Hvað er í lukkupakka? 2. Hvenær verða nöfn safnar- anna í spilaklúbbnum birt? 3. Ég dái Jason og Kylie en veit næstum ekkert um þau. Gætuð þið haft grein um þau í Æskunni? Ein að austan. Svör: 1. í lukkupökkunum eru bréfsefni, ritföng, minnisbækur, myndasögur o.fl. 2. í þessu tölublaði - á bls. 28. 3. Við sögðum frá Kylie í 7. tbl. 1992 og Jason í 8. tbl. 1990. ENN UM NÝJU KRAKKANA ... Elsku besti Æskupóstur! Mig vantar upplýsingar um það hvemig ég get sent bréf til Jordans í NKOTB. Heldurðu að hann svari mér? Hvernig er aðdáendaklúbbur hljómsveitarinnar rekinn? Er hægt að skrifa til klúbbsins en biðja þá sem taka við bréfunum að láta Jor- dan fá bréfið? Þarf að skrifa á ensku? Lesa strákarnir öll bréfin sem þeir fá? Jordan. („Aðdáandi" sendi „kæra ynd- islega meiriháttarÆskupóstinum“ bréf sama efnis...) Kæra Æska! Við, nokkrar stelpur fyrir vest- an, höfum stofnað aðdáendaklúbb NKOTB og biðjum þig að birta heimilisfangið: íslenskur aðdáendaklúbbur NKOTB, Pósthólf 73, 415 Bolungarvík. Krakkar! Skrifið, spyrjið að vild og þið fáið upplýsingar, svör og umsóknareyðublað um hæl! S.S. Æska! Ég sendi þér New Kids-upplýs- ingar á þýsku. Ég vona að þú get- ir notað þær sem grein í Æskunni. Getið þið ekki birt meira um Nýju krakkana en þið hafið gert? Jóhanna. Svar: Við getum ekki fullyrt hvern- ig farið er með bréf sem berast aðdáendaklúbbi Nýju krakk- anna. Eflaust er þeim þó skipt milli þeirra eftir óskum aðdá- enda. Skrifið á ensku. Póstföng aðdáendaklúbba: N.K.O.T.B. Fan Club - P.O.Box 7001, Quinzy, MA 02269, Bandaríkjum N-Am. N.K.O.T.B. - c/o Columbia Rec., J1 West 52nd Street, New York. N.Y. 10019- Bandaríkjum N-Am. í þættinum Héðan og þaðan (bls. 24-25) er sagt frá NKOTB - með hliðsjón afþýsku greininni og upplýsingum sem Erla í Bol- ungarvík sendi. Á blaðsíðu 61 er fyrsti hluti framhaldsþáttar um Nýju krakkana ... eftir Salóme í Bolungarvík. SÖNGNÁM OG „DROTTNING“ Kæri Æskupóstur! Við erum systur sem langar til að spyrja spurninga og koma beiðni á framfæri: 1. Viltu hafa veggmynd af Queen, Metallica eða Roxette? 2. í hvaða skóla er best að fara ef maður vill læra söng? Hve mörg ártekur námið? 3. Gætuð þið haft þátt með óskaprinsum og -prinsessum? Tvær úr Tungunum. Svör: 1. Þessu blaði fylgir vegg- mynd af Queen. Slíkar myndir af 2 0 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.