Æskan - 01.08.1992, Side 39
iniD
KISS
Halló, kæra Popphólf!
Ég var að lesa í Æskunni að
Gene Simmons í Kiss heiti í alvör-
unni Chaim Witz. í blaði frá aðdá-
endaklúbbi Kiss stendur að maður-
inn heiti Gene Klein. f öðru tölu-
blaði af Æskunni stóð að ættar-
nafn hans sé Klein. Á öðrum stað
stóð að Bruce Kulick heiti Bob en
hann heitir Bruce.
Af hvaða ættum er Georg Mich-
ael? Hans raunverulega nafn er
furðulegt.
Getið þið birt veggmynd af
Kiss?
Kiss-aðdáandi
Kæra Popphólf!
í tilefni af 20 ára afmæli Kiss
tókum við saman þessi atriði um
hljómsveitina.
Hljómsveitin Kiss var stofnuð
1972 af Gene Simmons, Paul
Staniey, Ace Frehley og Peter
Criss.
Gene og Paul voru áður í
hljómsveitinni Vicket Lester. í uþþ-
hafi var grfn gert að Kiss og hljóm-
sveitin var bara vinsæl í Bandaríkj-
unum.
1976 var hljómsveitin orðin vin-
sæl víðar. Hámarksvinsæidum
náði hún með þlötunni „DestroyeC.
1977 urðu hljómieikar Kiss að
enn meiri sýningu en áður. Gene
fór að sþúa eldi og fleiru. Þá kom
út ógleymanleg tónleikaplata, „Ali-
ve ll“.
1979 kom út vinsæl en hræði-
leg Kiss-plata, „Dynasti", með lag-
inu „I was made for Loving You“.
1980 hætti Pétur. í staðinn kom
Eric Carr.
1982 hætti Ace. 1988 hélt
hljómsveitin hljómleika í Reiðhöll-
inni í Reykjavík.
Á þessu ári gaf hljómsveitin út
minningarplötu um Eirík Carr sem
lést úr heilablóðfalli. Platan heitir
„Revenge". Þar eru þeir komnir í
þunga rokkið aftur.
Plötur: 1. Kiss, 2. Hotter Than
Hell, 3. Dressed To Kill, 4. Alive,
5. Destroyer, 6. Rock’Roll Over, 7.
Love Gun, 8. Alive II, 8. Double
Plaitum, 9. Ace, 10. Gene, 11.
Paul, 12. Peter, 13. Dynasti, 13.
Unmasked, 14. Elder, 15. Creat-
ures Of The Night, 16. Lic It Uþ,
17. Animalize, 18. Asilum, 19. Cr-
azy Nights, 20. Smashes Thras-
hes & Hits, 21. Hot In The Shade,
22. Revenge.
Núverandi liðskipan er þannig:
Gene, Paul, Bruce Kulick og Eric
Singer.
Kiss-aðdáandi í Möðrufelli
Svar:
Hugsanlegt er að mismun-
andi nöfn á Gene Simmons
megi rekja til þess að hann er
ættaður frá Palestínu (ísraei). Á
heimaslóðum hans vare.t.v. not-
að annað nafn en í Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Ef aðdáendur
Kiss vita meira um þetta mál þá
eru þær upplýsingar vel þegn-
ar.
Við þetta er því að bæta að á
Hvammstanga er starfræktur
sérstakur Kiss-klúbbur. Hann
heitir Love Gun. Heimilisfangið
er: Hvammstangabraut 13, 530
Hvammstanga. Klúbburinn dreif-
ir til félagsmanna myndum af
Kiss, upplýsingum, barmnælum
o.fl. Klúbburinn útvegar líka
Kiss-myndbönd, Kiss-klukku
o.fl.
Framandi nafn Georgs
Mikjáls er ættað frá Grikklandi.
QUEEN
Hæ, hæ Popphólf!
f umfjöllun um Queen var nafn-
ið Brian þýtt sem Brjánn. Sama
sagan var með Freddý og Roger.
Þetta kalla ég að endurskíra þá.
Annars er Æskan frábært blað en
mig langar í veggmynd með
Queen.
Queen-aðdáandi
Es.: Hvað lestu úr skriftinni
og hvað er ég gömul?
Hæ, hæ, Popphólf!
Æðislegar þakkir fyrir fróð-
leiksmola um Queen. Ég tel að
pljöturnar „The Works“ og „A Kind
Of Magic“ séu gefnar út ári seinna
en þið segið (1984 og 1986). Þá
er ég ósátt við þýðinguna á plöt-
unni „Live Magic“ sem þið þýðið
„Lífstöfrar". Orðið „Live“ þýðir Beint
en ekki líf. Líf er skrifað life.
Erna Rún Einarsdóttir,
Ystafelli 30, 109 Fteykjavík.
Svar:
í sérstöku hljómplötublaði,
Record Hunter, sem fylgdi
enska timaritinu Vox í febrúar
1992 er útgáfudagur „The
Works“ sagður hafa verið í mars
1983. I sama blaði er platan „A
Kind Of Magic" sögð hafa kom-
ið út í maí 1986.
Algengt er að hljómplata
komi út einu til tveimur árum
síðarí Bandaríkjum Norður-Am-
eríku en í Erópu. Sú staðreynd
flækir málið þegar settur er upp
plötulisti. Eftir nákvæma könnun
virðist sem „The Works" hafi
fyrst komið út 1984.
Athugasemd þín um nafngift-
ina „Live Magic" er réttmæt.
Með „lifandi töfrum" (live = lif-
andi (merkir einnig að lifa))
munu liðsmenn Queen eiga við
að um töfra lifandi músíkur sé
að ræða.
Þegar við lögum nöfn er-
lendra skemmtikrafta að ís-
lensku þá reynum við að gæta
þess að erlenda heitið komi jafn-
framt fram i sömu grein. Ástæð-
an fyrir því að við lögum erlend
nöfn að íslensku er m.a. sú að
á þann hátt er auðveldara acI fall-
beygja nöfnin.
Ur skrift Queen-aðdáanda má
lesa að hann sé u.þ.b. 13-14 ára.
Stafirnir hallast til vinstri. Það
bendir til hlédrægni eða hóg-
værðar.
DOORS
Kæra Popphólf!
Mér finnst vanta umfjöllun og
veggmynd af Doors. Ég er mikill
aðdáandi Doors og þá sérstaklega
Jims Morrisons.
Jim Morrison-aðdáandi
í Hafnarfirði
Svar:
í næsta þætti verður fjallað
um Doors og Jim Morrison í
Sögu rokksins.
' \
/
• ' * v. mr >-
I -m* ■ .
Jim Morrison söngvari Doors
NÝJU KRAKKARNIR ...
Kæra Popphólf!
Hvers vegna gerið þið svona
mikið úr NKOTB? Eruð þið svona
hrifnir af þessum krökkum? í Stykk-
ishólmi dáirenginn NKOTB. Flest-
ir dá Guns N’ Roses og Metallicu.
Hatið þið GN’R? Hvers vegna
syngja NKOTB ekki sjálfir á plöt-
um sínum?
Þorsteinn Eyþórsson,
Stykkishólmi
Svar:
Áhugi okkar á Nýju krökkun-
um í hverfinu er tvíþættur: Ann-
ars vegar er þessi glaðværi
sönghópur núna einn sá vinsæl-
asti í heiminum. M.a. voru Nýju
krakkarnir... valdir vinsælasta
erlenda hljómsveitin í vinsælda-
vali Æskunnar um síðustu ára-
mót.
í annan stað boða Nýju
krakkarnir vímuefnalaust líferni.
Það er ástæða til að fagna þeirri
afstöðu. Þó að fjöldi frægra
dæguriagasöngvara neyti ekki
áfengis eða annarra vímuefna
(t.a.m. söngkonan Cher, söngv-
arinn Michael Jackson, Kurt
Cobian söngvari Nirvana og
söngkonan Tína Turner) þá eru
varla fleiri en feðgarnir Frank
Zappa og Dweezil Zappa sem
gert hafa vímuefnalaust lífsvið-
horfað baráttumáli.
Dweezil lýsti afstöðu
skemmtikrafta til áfengis á þenn-
an hátt þegar hann ýtti úr vör
samtökunum Rokk gegn vímu-
efnum (Rock Agains Drugs) fyr-
ir nokkrum árum: „Þegar Eric
Clapton, Ringo Starr eða Phii
Collins auglýsa áfengi þá opna
þeir dyr sem lúta að fyrirgreiðslu
á músík þeirra. Áfengisframleið-
endur stýra að verulegu leyti út-
varpsdagskrám,, myndbanda-
vali sjónvarpsstöðva, forsíðu-
viðtölum tímarita, vali á
skemmtikröftum á hljómleikahá-
tíðum o.s.frv. Þessu stýra áfeng-
isframleiðendur með auglýsing-
um og fjárframlögum. Og það
eru engir smáaurar sem dæmið
snýst um.
Þegar aftur á móti einhver
fordæmir áfengisdrykkju þá
sjást hvorki auglýsendur né
styrktaraðiljar. Þvert á móti.
Hann fær á móti sér alla áfeng-
ismafíuna eins og hún leggur
sig. Það eru fáir reiðubúnir til að
Æ S K A N 4 3